Heildarvísitalan svipuð og í fyrra!

En kauphöllinni er vísast sama.

Annars get ég glatt landsmenn með því að stofnvisitala mín hefur hækkað frá sama tíma í fyrra.


mbl.is Stofnvísitala rækju svipuð og í fyrra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nöldrarar

Leiðinda nöldur þetta í Björku og taglhnýtingum hennar. Maðurinn skilar sínu verki, og er jafnframt í eigin tíma að læra borgarfræði.

Ekki veitir af til að redda borginni eftir áratugar óstjórn R-listans og síðan vitleysisganginn á Vinstri-sundrungsstjórninni og Villta Tryllta.

Ágætt að einhver þarna í Ráðhúsinu skuli hafa þekkingu á borgarmálum í fræðilegum skilningi, ekki síst til að vega upp á móti vitleysunni sem vellur upp úr erindrekum sósíalistaflokkanna.


mbl.is Gísli Marteinn fær launahækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grænir og vænir - ekki fyrir blinda?

Nú, mega blindir ekki kjósa Framsóknarflokkinn?
mbl.is Grænir og vænir - ekki fyrir blinda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drukkið í laumi

"Þyrla sem forsætisráðherra Noregs, Jens Stoltenberg, hefur samið um afnot af næstu þrjú árin, er meðal annars útbúin með barskáp, en hún var áður í eigu krónprinsins í Sameinuðu arabísku furstadæmunum."

Nú, var krónprinsinn að detta í það í laumi? Er ekki bannað að drekka áfengi í SAF?


mbl.is Þyrla Stoltenbergs vekur athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð skipti

Góð skipti já. Hanna Birna er skörungur, Ólafur F. virðist vera illa marktækur og þar að auki haldinn einhverjum Napóleonscomplexum.

Ólafur réðst með offorsi á Sjálfstæðisflokkinn og borgarstjornarflokkinn, sem átti víst að hafa verið að plata.

Jón Magnússon alþm. hefur nú afhjúpað að nefið á Ólafi hefur lengst undanfarið. Hann er amk ekki í alveg eins góðu sambandi við sannleikann og hann vildi sjálfur vera láta.

Maðurinn er greinilega veruleikafirrtur og því fyrr sem hann hverfur af vettvangi, því betra (að vísu ágætt að hafann í minnihlutanum,...ef minnihlutinn kærir sig um hann!) 


mbl.is Lyklaskipti í Ráðhúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meira ruglið

Ekki er þessi stjórnarandstaða trúverðug. Samansull af rugludöllum og pólítískum viðrinum, flestum stefnulausum.

Ég er svo gjörsamlega steinhissa á Ólafi. Hann getur sjálfum sér um kennt.

En viðrinisgangur Dags kemur ekki á óvart. Maður átti ekki von á öðru en einhverjum skrípaleik, eins og venjulega.


mbl.is Svik, lygi og pólitísk slátrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr meirihluti snýst um að

bjarga borginni frá vinstra-ruglinu.

Feis it.


mbl.is Nýr meirihluti snýst um stóriðjustefnuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rugl í Degi

"Hann sagði, að Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, hefði ekki reynst hafa bein í nefinu, úthald og sjálfstraust til að standa við þau pólitísku markmið, sem stjórnarandstaðan í borgarstjórinni setti fram í febrúar. "


Ja, ekki tókst þessu liði að setja fram pólítísk markmið þá 100 daga sem það stjórnaði borginni. Það tókst ekki að búa til málefnasamning, hver höndin upp á móti annarri og stjórnun borgarinnar í molum.

Auðvitað er ætlast til af honum að láta svona núna ... hann þarf að redda andlitinu, ef kostur er.

En voðalega er lágt risið á manni sem lætur svona, í ljósi fyrrgreindra atriða. 


mbl.is Atkvæði misnotuð í pólitískum hráskinnaleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óli F. enn á ný

Æ, greyið, spilar fórnarlambið.

Hann getur sjálfum sér um kennt. Hann spilaði meira og minna sóló, hegðaði sér eins og diktator og kennir svo öðrum um þegar einræðisherranum var steypt af stóli.

Ég efast um að nokkur vilji kjósa þennan mann til áhrifastöðu og ábyrgðarstarfa í framtíðinni. Hann hefur sýnt að slíkt er glapræði.


mbl.is „Nýr meirihluti grundvallaður á óheilindum og lygum"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skinkan er mygluð

Já, danska skinkan stinkar. Ótrúlegur hroki í Dönunum. Þeir máttu nú bara þakka fyrir að komast áfram úr undanrásunum. Fengu stig með hjálp dómara gegn okkur (þegar á heildina er litið) og fengu sigur með því að skora úr aukakasti eftir að venjulegum leiktíma var lokið.

Þeir spiluðu bara illa og eiga ekki skilið að ná neinum árangri. Ekki síst fyrir það hugarfar sem leikmenn bera, svo ekki sé talað um Múmínálfa-þjálfarann.


mbl.is Missa Danir móðinn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Bloggfærslur 21. ágúst 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband