Frjálslyndir "eflast"

Já, og hafa nú náð að safna saman í einum flokki flestum óvinsælustu pólítíkusum landsins og mörgum þeim vitlausustu.

Nú þyrftu bara Mörður Árnason og Jón Bjarnason að ganga í xF þá væri amk topp 5 listinn yfir leiðinlegustu og lélegustu pólítíkusa landsins allur kominn saman á einum stað.

En þetta er nú bara bjarnargreiði hjá Ólafi. Koma hans verður amk ekki til að styrkja flokkinn.


mbl.is Ólafur F. til liðs við Frjálslynda flokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt í plati

Ég er viss um að Rússaher verður enn í Georgíu á laugardaginn. Málið dautt.
mbl.is Medvedev segir Rússa verða farna á föstudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Olíuverðið hækkar

Sniðugt hjá Chavez og kumpánum hans að stríða Vesturlöndum.

Þetta hlýtur að vera plat. Persaflóaríkin munu hlýða Könunum og halda áfram á sömu braut, eða jafnvel auka framleiðsluna enn frekar, hver veit.

En varla minnka.

 


mbl.is Olíuverð hækkar vegna yfirlýsinga Venesúela
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blekkjandi fyrirsögn

Úff, þetta var þá um ruslafötur, ég hélt að það væri verið að tala um þingmenn Samfó?!
mbl.is Talandi ruslafötur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dólgar og dræsur

Jæja, flugdólgar (karlkyns) og flugdræsur (kvenkyns) ríða nú húsum.

En má ekki staðfæra þetta yfir á ýmis önnur svið? T.d.:

Stjórnmáladólgar og stjórnmáladræsur
Fótboltadólgar og fótboltadræsur
Bloggdólgar og bloggdræsur
Bíldólgar og bíldræsur
Músíkdólgar og músíkdræsur

osfrv.

Því alls staðar má finna dólga og dræsur, menn þurfa bara að geta skilgreint fólk með afgerandi hætti.

 


mbl.is Tveir flugdólgar leiddir burt í járnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Boxarar á Suðurnesjum

Aldeilis að hnefarnir á Suðurnesjamönnum eru öflugir. Fyrir ekki svo löngu síðan létust að mig minnir tveir náungar í Reykjanesbæ eftir að hafa fengið hnefahögg framan á andlitið.

Og þessi liggur á gjörgæslu.

En hvaða brjálæðingur er þetta að kýla dráttarbílagaurinn svona. Hann var bara að gera skyldu sína, vinna vinnuna sína.

Senda svona menn í geðrannsókn og loka inni. Málið dautt.


mbl.is Á gjörgæsludeild eftir líkamsárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Össuri ekki treystandi?

Jæja, Össur sagði að Guðni væri hvalreki...ekki Guðni Ágústsson, hann er kúreki, heldur Guðni hinn. En Svavar segir að Össuri sé ekki treystandi.

Ætli Guðni hinn sé þá ekki hvalreki eftir allt saman?

En hitt er svo annað mál að ég myndi frekar treysta Össuri en Svavari, aðallega af því að ég þekki Össur betur og hann er haukur í horni. Helsti galli hans er, að hann er með pólítískt kvef og skilur ekki að hann á ekkert erindi í þennan hálfsósíalista kvennalistaflokk Ingibjargar og ætti að halda með det same yfir á blárri gresjur.

Ég hef bara einu sinni hitt Svavar, þegar hann veitti mér einhver verðlaun fyrir nærri því 20 árum. Hef ekkert út á hann að setja persónulega, en treysti illa mönnum sem burðast með beinagrind í skápnum og vilja ekki grafa hana með sómasamlegum hætti.

Jú, íslensku kommarnir eiga eftir að gera upp málin, svo sem hvað snertir blindan stuðning við Sovétið og fleiri mál.

En Svavar er vísast byrjaður, skv. dagbókum Matthíasar. Hann er amk byrjaður að gera upp við nokkra félaga sína. Ólafur Ragnar er semsagt fjármálasukkari, og einhverjum komma og Merði Árna er ekki viðbjargandi. Þetta með Mörð skil ég reyndar ósköp vel. Minnir að bloggari hafi verið sömu skoðunar nýlega.


mbl.is Svavar dregur dagbækur í efa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lækkar olíuverðið á Íslandi?

Eða hvað ætli olíufélögin græði margar milljónir á því að lækka "á morgun eða hinn"?

En þau hækka auðvitað samstundis þegar verð hækkar ytra - eins og allir vita.

Þetta er allt að því glæpsamlegt.


mbl.is Olíuverð niður fyrir 112 dali tunnan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svindlað

Þetta er ekkert nýtt. Hefur verið í gangi í Búdapest í fjölda ára. Svindl og svínari á báðar hendur.

Ekkert nýtt við þetta.

 


mbl.is Reynt að svindla á ferðamönnum í Búdapest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimskir Ameríkanar?

Maður hefur heyrt margar sögur af heimsku eða amk fáfræði Kana sem virðast voða lítið vita hvað er að gerast fyrir utan þeirra eigin "county" (nema hjá fræga fólkinu). Og auðvitað er varla til vitiborið líf utan Bandaríkjanna og Kanada, það segir sig sjálft. Þegar ég bjó þarna héldu margir að ég byggi á ísjaka eða væri eskimói, jafnvel í höfuðstaðnum, Washington DC. En þeir, sem mest vissu og höfðu bestan "almennan fróðleik" voru tiltölulega nýkomnir innflytjendur.

Ég held að það hafi verið 2003 að Jay Leno tók könnun um, hver væri forseti USA. Þá svaraði víst meiri hlutinn "Bill Clinton"!!

En þetta skot hér að neðan er snilld, enn eitt dæmið um að Kanarnir eru ekki alveg að meika það. Sjáið svarið þarna neðst!

snilld

 


Næsta síða »

Bloggfærslur 19. ágúst 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband