Skandinavíu sundrað

Ja, tungumálin hafa verið að fara hvert í sína áttina, þó danska fjarlægst einna mest.

Skynsamlegast væri auðvitað að snúa aftur til upprunans, áður en norrænir menn fengu sinn babelsturn og tungurnar rugluðust.

Því er auðvitað það eina skynsamlega í stöðunni að hverfa aftur til hinnar upprunalega norræna tungumáls.


Ergo: íslenska verði tekin upp a Norðurlöndum.


mbl.is Skandínavísk ungmenni skilja ekki hvert annað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svik Rússa: herinn enn í Georgíu

Jæja, þeir sem hafa hamast mest hér á blogginu um heilindi Rússa og óheilindi og gyðingasamsæri Georgíumanna hljóta að sitja hljóðir um þessar mundir.

Rússar létu hluta íbúa S-Ossetíu og Abkhazíu fá rússnesk vegabréf fyrir ekki svo löngu síðan. Og núna réðust þeir inn fyrir viðurkennd landamæri Georgíu til að vernda sömu borgara og sitja þar enn, jafnvel á þeim hluta sem ekki er deilt um (en er olíu- og gasleiðslulega mikilvægur).

Hvað myndi verða ef t.d. Pólverjar myndu ráðast inn í Ísland til að vernda pólska borgara á Íslandi fyrir aðhlægi í kjölfar sigurs Íslands og Póllands í handboltanum.

Eða ef t.d. Danir myndu láta alla íbúa Grafarvogs fá dönsk vegabréf og ráðast inn í Ísland til að verja þessa þegna sína gegn vondum Íslendingum sem væru vísast í samsæri með Svíum.

Jú, sósíalistarnir myndu vísast styðja sjálfstæðisbaráttu Grafarvogsbúa.

En S-Ossetíumenn virðist ekki vilja sjálfstæði, heldur sameinast öðru héraði, sem er í Rússlandi. Svo ekki er um að ræða sjálfstæðisbaráttu, heldur samasem Súdeta-ÞJóðverjar 1938. Ef þessir menn vilja búa í Rússlandi geta þeir bara flutt þangað - enda hafa þeir rússnesk vegabréf!


mbl.is Lítið fararsnið á Rússum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð þjónusta

Jæja, var að fá bílinn úr viðgerð. Startarinn algjörlega farinn.

Ég verð að fá að commenta á góða þjónustu og gott verð hjá Rafstillingu.

Ég þekki strákana þarna ekki neitt, en var bent á að Kiddi í Rafstillingu myndi redda mér. Hann stóð fyrir sínu og vel það.

Takk fyrir!


Kjaraskerðing

Jæja, nú á að auka kjaraskerðingu almennings, ef hann slysast til að þurfa að versla í þessari okurholu.

Ég "neyddist" til þess nýlega...merkilegt að fyrirtækið skuli leggja svona miklu meira á sömu vöru en keppinauturinn nokkrum húsum utar.

En ég mun reyna að skipta ekki við Office 1 nema ég þurfi þess nauðsynlega með og varla þá, nema fyrirtækið fari að verða samkeppnishæft í verði við t.d. Griffil.


mbl.is Verslanir Office 1 opnar allan sólarhringinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prins Póló

Ísland mun keppa við Pólland í 8 liða úrslitum ÓL. Prins Pólóið verður tekið upp til hátíðarbrigða.

En nú er að hefna.

En skrítið fyrir íslenska landsliðið að keppa við erlent landslið sem nýtur stuðnings ca 20% íbúa Íslands.

Afram Island.


mbl.is Íslendingar mæta Pólverjum í 8-liða úrslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðni hvalreki?

trifarar_025Jæja, ég hélt nú að hér væri Össur að tala um Guðna Ágústsson. Hann er eini "Guðninn" sem þarf ekki föðurnafn með.

En jæja,Mogginn ræður þessu.

En ef Guðni er hvalreki, hvað er þá Össur?

Rostungsreki? Var ekki einn slíkur að "reka á land" nýlega?

 


mbl.is Össur: Guðni sannkallaður hvalreki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búið að velja flytjendur í Eurovision 2009

"Frábær dúett".


Málið er dautt. Veigar og Pálmi munu án vafa fara á East-Eurovision 2009 fyrir hönd Íslands.

Málið dautt.


mbl.is Frábær íslenskur dúett
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breskar konur flytjast til Ástralíu

Jæja, vandamál breskra kvenna virðist vera að leysast. Dæmigerðar breskar konur á þrítugsaldri geta nú flutt til Queenslands í Ástralíu til að ganga út. Wink

 


mbl.is Ákall til ófríðra kvenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heppnisjafntefli:endurtekið efni

Hmm, fór ekki líka 32-32 gegn Dönum? Og aftur var það NAFNI sem skorar jöfnunarmarkið nokkrum sek fyrir leikslok, að þessu sinni klæddur í gult markmannsvesti.

En jæja, betra en tap.

Afram Ísland


Leikurinn: Svíar ofsækja Íslendinga

Í gær voru það vanhæfu og rugluðu sænsku dómarar. Í það er Svíi að lýsa leik Íslendinga og Egypta í íslenska sjónvarpinu.

Ég ætlaði að horfa á leikinn. En úr því Adolf Ingi Erlingsson lýsir leiknum held ég að ég fari bara að sofa.

Áfram Ísland.


mbl.is Aftur gerði Ísland jafntefli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. ágúst 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband