Þriðjudagur, 8. júlí 2008
Er fiskur megrunarfæði?
![]() |
Fiskurinn frábært megrunarfæði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 8. júlí 2008
Hestamenn í þyrlum?
Hrossavinur vanur því
að vera aðal gæinn.
Þarf að nota þyrlu í
að þjóta strax í bæinn.
![]() |
Þyrlur sóttu tugi manna á Suðurland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 8. júlí 2008
Að forða frá glötun og gleymsku
Jæja, hinn nafnlausi "admin" á Skákhorninu hefur enn einu sinni sýnt vald sitt og gengið fram með furðulegum hætti. Hann gat reyndar ekki annað, því þegar Sæ... svampur er blautur af fýlu fer admin af stað og gerir vilja meistara síns.
Það sýður reiðin í mörgum skákmönnum...aðrir eru bara gáttaðir.
En ég ætla að ná mér aðeins niðri á þessum nafn- og andlitslausa náunga, sem hagar sér eins og "eðjót" eða er svoleiðis, að því að Frændinn tjáði skákheimi.
Þegar mér sárnar eða verð alveg bit á framkomu manna á ég til að yrkja níðvísur. Margar góðar hafa komið fram í gegnum tíðina; þessi er reyndar lélegur leirburður, en ég hvorki nenni né má vera að því að vanda þetta neitt. En hún kemur hér semsagt (áður en ég gleymi henni eða týni):
Nú admininn okkar er kominn á kreik /
keikur er valdmannskassinn./
Síðast hann sást í mjög eldheitum sleik /
en Sæ... lagði til rassinn./
Afsakið....en mér er nóg boðið. Best að stíma nú út áður en ég verð reiður.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 8. júlí 2008
Afleikurinn mikli
Sagnfræðingar og aðrir hafa löngum skellt skuldinni af síðari heimsstyrjöldinni á herðar Þýskalandi. Að ákveðnu leyti er það rétt. Þjóðverjar hófu heimsstyrjöldina óformlega með því að hunsa ákvæði Versalasamningsins, innlimun Súdetahéraða Tékkóslóvakíu og Austurríkis. Bein átök við Vesturveldin hófust svo þegar Adolf Hitler skipaði herjum sínum að gera innrás í Pólland, 1. september 1939. En þjóðir Evrópu hefðu aldrei þurft að hleypa nasistum svo langt, aukinheldur voru það Bretar og Frakkar sem lýstu yfir stríði á hendur Þjóðverjum, ekki öfugt. En nóg um það.
Bretar höfðu talið að hafa mætti hemil á Hitler með því að gefa honum eftir forn-þýsk svæði í Mið-Evrópu. Margir breskir stjórnmálamenn höfðu aukinheldur samúð með og studdu jafnvel sameiningu Þjóðverja í eitt ríki. Þannig gæti myndast öflugt mótvægi við Sovétríkin, ríki sem hrundið gæti hugsanlegri atlögu kommúnistaríkisins í austri gegn lýðræðisríkjum Evrópu. En utanríkisstefna Bretlands, leikurinn mikli, var eins lítt skynsamleg þá og hún hafði alltaf verið. Eins og leikurinn mikli hafði getið af sér styrjaldir í tæp 200 ár leiddi þessi stefna Breta til styrjaldar að þessu sinni.
Þegar í upphafi árs 1933 gerði breska sendiráðið í Þýskalandi stjórnvöldum í London nákvæma grein fyrir eðli ríkisstjórnar Adolfs Hitlers: Gyðingaofsóknir, morð á og fangelsanir pólítískra andstæðinga, gífurleg vopnaframleiðsla og hernaðaruppbygging til árásarstríðs. Bresk stjórnvöld vissu því nákvæmlega hver stefna Hitlers var. Joachim von Ribbentrop, sendiherra Þýskalands í London og síðar utanríkisráðherra, hafði lagt fram samningsdrög sem hljóðuðu upp á að Þýskaland myndi ekki ásælast lönd eða áhrif Bretaveldis í stað þess að Bretar gæfu Þjóðverjum frjálsar hendur í austri.
Bretar vissu þegar árið 1933 að Hitler ætlaði í stríð við Sovétríkin. Þeir töldu víst, að mörgu mætti fórna til að hjálpa honum í því að kveða niður kommúnismann. Því tóku Bretar með silkihönskum á nasistum Hitlers, ólíkt þeim gaddasvipum sem þeir höfðu stöðugt lamið með lýðræðiskjörin og friðsöm yfirvöld Weimar-Þýskalands. Ráðherrar sem höfðu barið í gegn niðurlægingu Þýskalands 1932 tóku nú að friðmælast við einræðisherrann í Berlín. Jafnvel þegar Frakkar reyndu að hafa hemil á Þjóðverjum, mættu þeir skilningsleysi af hálfu ráðamanna í London.
Árið 1935 höfðu Frakkar og Ítalir myndað óformlegt harðlínubandalag gegn Nasista-Þýskalandi. Á ráðstefnu Frakklands, Ítalíu og Bretlands í Stresa tókst Bretum að kæfa niður harðlínuandstöðu ríkjanna tveggja. Og til að bæta við smá olíu á eldinn, beindi breski utanríkisráðherrann og síðar fjármálaráðherrann John Simon augum Mússólínis frá Þýskalandi og gaf honum þegjandi samkomulag sitt við innrás Ítala í Abyssinínu (Eþíópíu). Simon leit á þetta fornfræga sjálfstæða ríki í Afríku eins og krabbamein í líkama heimsins og á keisara þess sem Djöfulinn sjálfan, einkum vegna þrælahalds sem enn viðgekkst í landinu. Mússólíni væri því velkomið að strunsa þangað inn og leggja landið undir sig. Ítalía, sem fylgt hafði vinsamlegri utanríkisstefnu gagnvart Bretaveldi frá valdatöku Mússólínis 1922, fékk nú að njóta ávaxtanna.
En skömmu eftir að Mússólíni réðist inn í Abessinínu sneru Bretar við blaðinu og samþykktu refsiaðgerðir gegn Ítalíu. Því til staðfestingar var Anthony Eden, gamalgróinn Þjóðverjavinur og hatrammur andstæðingur Ítala, gerður að utanríkisráðherra. Með efnahagsþvingununum á hendur Ítalíu var Mússólíni allt að því rekinn á fjörur Hitlers og Þýskalands nasista. Enn einn fáránleiki breskrar utanríkisstefnu var orðinn að veruleika og ekki sá síðasti.
Árið 1937 tók Neville Chamberlain við húslyklunum að Downingstræti 10 í London og þarmeð löglegri setu í stóli forsætisráðherra Bretaveldis. Hann hræddist fasistaógnina í Evrópu og leit á spænsku borgarastyrjöldina sem vísi þess sem koma myndi ef ekki yrði gripið í taumana. En Chamberlain réði lítið við Eden utanríkisráðherra sem skeitti því litlu þótt Hitler ógnaði Austur-Evrópu og Austurríki. Eden, væglega vitiborinn maður sem stjórnaðist meira af tilfinningum en rökhyggju, var jafnvel hlynntur innlimun Austurríkis í Þýskalands, en afdrif Austurríkis voru helsta deiluefni Hitlers og Mússólínis. Hann hafði viðbjóð á Mússólíni og Ítalíu en aðdáun á Þýskalandi og lét hann þær persónulegu tilfinningar hlaupa með sig og hálfa heimsbyggðina í gönur.
Neville Chamberlain, friðsamur og veikgeðja stjórnmálamaður, var of seinn að átta sig og þegar hann tók loksins af skarið og vék Anthony Eden úr embætti, einkum vegna þess að Eden neitaði að samþykkja bandalag við Mússólíni til að hindra innlimun Austurríkis, var það orðið of seint. Hersveitir Hitlers voru komnar að landamærum Austurríkis og skömmu síðar var innlimun þess í Þýskaland staðreynd. Að því búnu vaknaði Chamberlain upp við þann vonda draum að nú gæti Tékkóslóvakía ekki lengur varist þýskri árás, nú þegar hernaðaraðstaða í Austurríki væri á valdi Þjóðverja. Því reyndi hann að friðmælast við Hitler með því að gefa eftir tékknesku Súdetahéruðin, en þau voru einkum byggð Þjóðverjum. Frakkar og Sovétmenn voru hins vegar tilbúnir að berjast við Hitler til að bjarga Tékkóslóvakíu. En eins og Eden hafði hatað Ítalíu, hataði Chamberlain kommúnistaríkið í austri. Hversu mikil sem ógnin væri frá Hitlers-Þýskalandi teldist hún skömminni skárri en rauða pestin í austri. Hann neitaði algjörlega að berjast við hlið Sovétríkjanna til að bjarga Tékkóslóvakíu og sendi leynileg skilaboð til Hitlers og Mússólínis. Þau leiddu til friðarráðstefnunnar í München í september 1938, þar sem Chamberlain samþykkti skilmála Hitlers í andstöðu við samþykktir eigin ríkisstjórnar.
En vonir Chamberlains um að Hitler myndi láta staðar numið við innlimun Austurríkis og Súdetahéraðanna urðu að engu í mars 1939 þegar þýskar hersveitir þrömmuðu inn í Prag. Bretar höfðu gefið Þjóðverjum eftir hinn forna Bæheim og Mæri og nú var röðin komin að Póllandi sem hafði stærra þýskt" land innan mæra sinna en nokkuð annað ríki. Þegar Hitler krafðist þess að pólska hliðið og fríríkið Danzig, sem aðskildu meginland Þýskaland frá Austur-Prússlandi, yrði sameinað Þýskalandi lýstu Bretar yfir vernd Póllands.
Chamberlain vissi þó að varnir Póllands yrðu aðeins tryggðar með samvinnu Sovétmanna, braut odd af oflæti sínu og hóf leynilegar samningaviðræður með Frökkum og Sovétmönnum um bandalag gegn Hitler og stöðvun útþenslu Þýskalands í austur. En Chamberlain lék tveimur skjöldum. Hann leit enn á Hitler sem skjöld Evrópu gegn kommúnistahættunni og sumarið 1939, meðan hann stóð enn í samningum við Stalín, kom hann á biðilsbuxunum til Hitlers og Mússólínis. Stalín, sem vildi helst af öllu koma á bandalagi með Bretum, komst að svikum Chamberlains og sendi þá erindreka sína til Berlínar.
Skömmu síðar sömdu Joachim von Ribbentrop, utanríkisráðherra Þýskalands, og Vladislav Molotov, sovéski starfsbróðir hans, um skiptingu Póllands og hluta Evrópu milli Þýskalands og Sovétríkjanna. Leikurinn mikli, hin kjánalega utanríkisstefna sem Bretar höfðu fylgt um langt skeið, hafði breyst í afleikinn mikla. Vitleysisgangur breskra ráðamanna var engu síður en árásarstefna Hitlers orsök síðari heimsstyrjaldarinnar. Vitfirring Hitlers og kumpána hans hefði aldrei þurft að ná lengra en til Berlínar hefðu Bretar ekki látið persónulegar skoðanir ráðamanna og fornar hefðir í utanríkismalum blinda sér sýn. Afleikurinn mikli opnaði fyrir honum hálfa Evrópu. Aldrei hafa jafn margir átt jafn fáum svo mikið að bölva.
Síðari heimsstyrjöldin var hafin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 8. júlí 2008
Til hamingju Sigurbjörn
Með nýju frændsystkinin. Og jafnvel til hamingju með frænda, sem er nú að slá í gegn í USA; ein helsta kvikmyndastjarna ársins.
Gaman að vera Panda þessa dagana
![]() |
Fyrstu pandahúnar ársins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 8. júlí 2008
Tafir við göngin í kvöld
Frá kl. 22 til fjögur eða fimm í nótt.
Þetta segja þær nú alltaf stelpurnar, eða...?
![]() |
Tafir við Oddsskarðsgöng í kvöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 8. júlí 2008
Hvernig fyrstu "kynni" geta verið misvísandi
Það var hér fyrir nokkrum árum að ég var sannfærður um, að Sigurjón Þórðarson væri lélegasti þingmaðurinn, sem hefði stigið í pontu Alþingis í fjölda ára. Jafnvel þegar sumir þingmenn Samfó væru teknir með.
Maður fékk hálfgert menningarsjokk þegar Sigurjón steig í pontu og man ég ekki betur en að JC eða eitthvað slíkt félag hafi kosið hann lélegasta ræðumanninn á Alþingi.
En Sigurjón tók sig á. Hann tók miklum framförum í ræðumennsku og málflutningur hans varð smám saman traustari. Ég kýs ekki frjálslynda en í síðustu kosningum þótti mér leitt að Sigurjón skyldi detta út. Síðan tók við þrautaganga hjá kappanum, vesen með loforð og svikin loforð, en hann stóð sig vel í þessari orrahríð. Maður varð að viðurkenna að fyrstu "kynni" voru misvísandi. Ég skal játa, að mér skjátlaðist um Sigurjón.
Ég les blogg Sigurjóns að jafnaði , nema þegar hann skrifar um sjávarútvegsmál. Ég hef hvorki vit né áhuga á því máli. Og ég tel sanngjarnt að ég viðurkenni það, að hann heldur áfram að vaxa í áliti og hefur áunnið sér virðingu mína.
Ætli ginsengið frá Sigga bróður hafi kannski gert honum svona gott...?
-----
En á hinn bóginn hefur Björgvin Guðni Sigurðsson viðskiptaráðherra valdið mér miklum vonbrigðum. Ég taldi að hann væri einn sá skásti í þessum ruglingslega pakka Samfylkingarinnar -- hann er jú sagnfræðimenntaður að ég held amk.
En nú kemur hann mér fyrir sjónir sem tækifærissinnaður götustrákur sem hefur fengið að leika sér með fræga fólkinu. Ég meina, í samanburði við Björgvin Guðna kemur jafnvel Ágúst rektorssonur ágætlega út. Og þá er mikið sagt.
En merkilegt að Samfó skuli hafa svona mikið fylgi þrátt fyrir óframbærilega frambjóðendur og foringja, og tækifærissinnaða stefnu sem tekur mið af vinsældum mála en ekki hugsjónum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 8. júlí 2008
Atvinnuleysi framundan?
En nú verður spurningin, verða Íslendingar tilbúnir til að vinna skítverkin frekar en ekki neitt? Eða munu landar vorir frekar sitja á bótum en að vinna á lágmarkslaunum?
En síðan kemur spurningin um þessar þúsundir útlendinga sem vinna hér. Þeir vilja vísast frekar vera hér atvinnulausir en á heimaslóðum, eða það býst ég við.
Síðan er þriðja hjólið. Mig grunar að atvinnurekendur, sumir a.m.k., vilji frekar hafa útlendinga í vinnu en Íslendinga. Þeir eru e.t.v. ódýrari og gera minni kröfur, t.d. um atbúnað.
En a.m.k. er atvinnuleysi framundan. Ég er eiginleg hissa á að því hversu atvinnan hefur haldist miðað við ástandið.
![]() |
Þúsundir án atvinnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 8. júlí 2008
Ekki verið lægri í mörg ár
Já, við fermingu var ég 1,78 og hálfur metri að hæð. Nú er ég bara 177,5.
Ég hef ekki verið lægri frá því um 1980.
Sá sem stal af mér þessum sentímetra er vinsamlegast beðinn að skila honum aftur.
![]() |
Dow Jones ekki lægri í tæp 2 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |