Mánudagur, 28. júlí 2008
Vinnudeiluskóli
Mikil snilld.
Annars skilst mér að launin þarna séu nú til háborinnar skammar, svo ekki er erfitt að skilja hvað fólk þetta er að fara.
![]() |
Vinnudeila í Vinnuskóla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 28. júlí 2008
Okrarar?
Ok, fyrirtæki hlaut djobbið á tæpar 7 milljónir. Annað fyrirtæki bauð 21,6 milljónir fyrir sama verk, svo dæmi sé tekið.
En maður spyr sig; hvaða forsendur höfðu "dýru" verktakarnir? Áttu að mála þakið með gulli, eða?
Eða voru þeir bara heimskir og ágjarnir?
Eða lélegir í reikningi?
Mig grunar að þetta fyrirtæki muni ekki vaða í verkefnum á næstunni, nema með því að gera eitthvað solid PR-trikk.
![]() |
Sjö milljónir fyrir þakmálun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 28. júlí 2008
Óróaseggir teknir
Jæja, "fasismi" segir í titli SI bloggins. Ég skil það nú ekki. Þarna var bara verið að handtaka fólk sem brotið hafði lögin. Ekkert einfaldara en það.
Og margur hefur nú verið handtekinn fyrir minna.
![]() |
Sjö handteknir á Hengilsvæðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 28. júlí 2008
Fjölmiðlar samdauna vitleysunni
Þessi vitleysa SI liða yrði marklaus og tilgangslaus ef fjölmiðlar væri ekki hangandi í skottinum á þeim hverja stund til að fá fréttaefni.
Ef þetta lið yrði bara látið í friði, án fjölmiðlaathygli, myndi það varla nenna að standa í þessu áfram. Það er amk mín skoðun.
![]() |
Með aðgerðir á Hellisheiði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 28. júlí 2008
Brutust öryggisverðir inn á landareign Pitts og Jolie?
Jæja, hér segir:
"Til slagsmála kom á milli öryggisvarða og dulbúins ljósmyndara sem brutust inn á landareign bandarísku kvikmyndaleikaranna Angelina Jolie og Brad Pitts í Frakklandi um helgina."
Ok, skv. þessi "brutust dulbúinn ljósmyndari" inn á landareignina. Eitthvað skrítið við þetta. En ef maður gefur sér að greinarhöfundur kunni ekki sem regluna og sé að meina, að öryggisverðirnir hafi brotist inn á landareign PItts og frúar, spyr ég: Hvers vegna voru öryggisverðir að brjótast inn þarna?
![]() |
Blóðug slagsmál á landi Jolie og Pitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 28. júlí 2008
Húsið í Japan
![]() |
Úrhelli í Japan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 28. júlí 2008
Mafíuleiðtogi handtekinn í fatakaupum
Ef þessi árátta lögregluyfirvalda, að handtaka mafíósa, fer að breiðast út má telja líklegt að einstaka foringjar íslenskra mafíudeilda fari að loka sig inni.
Væri líka sniðugt að gera "fríríki" mafíunnar, t.d. einhvers staðar í Vogunum?
![]() |
Mafíuleiðtogi handtekinn í fatakaupaleiðangri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 28. júlí 2008
Óvandaður sparnaður
Mér var sagt frá nýlega, að sums staðar væri sú venja að hin pólítísku yfirvöld velji sér starfsfólk í ákveðin störf, en auglýsi þau engu að síður til að framfylgja formsatriðum. Síðan fari verkferli í gang, en við "lok dagsins" séu þeir aðilar ráðnir, sem hafðir voru í huga upphaflega.
Það er engu betra, því þá er verið að vekja vonir fjölda fólks um starf, fólks sem á enga möguleika á að hljóta það starf sem sótt er um.
Þá er leið Kópavogsbæjar betri...
![]() |
Telur óvandað að auglýsa ekki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)