Sami aðili?

Menn læra greinilega aldrei. Hér segir:

"Dropinn sem fyllti mælinn".


Fyrir nokkrum dögum var þetta í fyrirsögn og ég m.a. benti á, að kornið fyllir mælinn en dropinn holar steininn.


Greinilegt að Moggamenn læra ekki. Það er hreint ótrúlegt að önnur-þriðja hver frétt er meira og minna brengluð. Og fyrir þetta fær fólk borgað ... ágætis fólk vafalaust, en augljóslega komið í djúpu laugina fyrir aldur fram.

Mogginn hlýtur að fara að gera meiri kröfur til starfsfólks síns, þegar það eru áberandi villur í á að giska annarri eða þriðju hverri frétt. 

Menn gera auðvita mistök, ekkert við því að segja. En þetta er orðið full algengt.

Það er eitt að skrifa óvandaðan texta t.d. í bloggi. Það er hobbí fólks. En þegar menn fá borgað fyrir svona vinnu...

...og þetta er fyrir utan óvönduð vinnubrögð við efnistök, eins og því miður er farið að aukast líka.

Þetta hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir Mbl.is.


mbl.is Ráðherrar hvattir til að ýta Brown til hliðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar eitthvað fer úrskeiðis

 

 

 Ég hef sankað að mér allskonar grínmyndum, jpg og þess háttar, í nokkur ár, en hef voðalea lítið notað þær á blogginu. En datt í hug, í tilefni dagsins, að byrja að lauma nokkrum inn, rétt til hátíðarbrigða.

 !cid_FFDA0352-49E5-40B7-885A-357847179FDC!cid_A270D584-64EC-499F-869B-E5613716511D


Frumlagsfælni

Æ, maður á ekki að láta þetta bögga sig,en það gerist samt.

En maður er samt hættur að vera hissa...


mbl.is Gullverðlaunin fær Pekinglögga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snilld

Þetta er nú alveg rakin snilld. En auðvitað hefði átt að koma upp vídeócameru til að skrá þetta merkilega atvik.

Þetta er snilld.

Davíð hefur greinilega ekki glatað húmornum. Þetta er brandari af bestu gerð. 


mbl.is Davíð boðaði Sigurð Kára á leynifund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

14 ára fótboltafantur?

Ja, titill Moggans segir: "Fjórtán ára réðst á dómara".

En síðan segir í fréttinni:

"Leikmaðurinn, sem er tæplega 14 ára gamall, sparkaði svo harkalega í hné Smára að gera þurfti hlé á leiknum meðan hlúð var að honum."


Ég hélt að "tæplega 14 ára gamall" merki, að drengurinn sé ennþá 13 ára? Er það ekki?


?


mbl.is Fjórtán ára réðst á dómara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Saving Afghanistan!

Jæja, hjálpum nú Afghönum enn meira og selflytjum þetta SI-lið bara til Afghanistan. Kannski Friðrik Sophusson borgi flugfarið?

En Afghanistan þarf greinilega hjálpar við, hjálpar sjálfsskipaðra besserwissera sem hljóta nú að taka upp harða baráttu gegn þessum vatnsaflsvirkjunum í Afghanistan.


mbl.is Borga tuttugu smávirkjanir í Afganistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. júlí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband