Feitir Suðurríkjamenn

Já, þekki þetta. Þyngdist um 10 kíló á nokkrum mánuðum, aðallega af Popeye's Chicken og öðrum djúpsteiktum óþverra. 

Síðan er bara samfélagsmenning Kananna mjög úr takti við allt sem heitir almenn skynsemi. Þessi skyndibitamenning hefur gert þá feita og tregða til hreyfingar og heilbrigðar vinnu hefur ekki bætt úr skák.

En mér leið vel þarna "suðurfrá". Hafði það ágætt og var á meðal grennstu manna á svæðinu! Og þrátt fyrir að vera bara í Virginíu!


mbl.is Þriðji hver íbúi of feitur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gríman fellur

Jæja, þrátt fyrir allt meiköppið og kapítalísku grímuna er kommúnismi bara kommúnismi, þegar eyrun koma fram undan húfunni.

Hryggilegt að þetta eitt mesta menningarríki sögunnar skuli láta svona.


mbl.is Hert eftilit með listamönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara að velta fyrir mér

hvað Dagur og co gerðu fyrir miðborgina á stjórnartíma sínum? Ja, eiginlega, hvað þetta fólk gerði af viti á þessum tíma, ég man satt best að segja ekki eftir neinu.

Fyrrv. meiri hluti lét eftir sig ljótan miðbæ og í niðurníðslu eftir óstjórn R-listans.

Hvað er þetta lið að væla?


mbl.is Segir minnihluta fara með ósannindi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimsmeistarar í megrun barna?

Jæja, þá. Ég er samt viss um að hlutfallslega fleiri eru í "megrun" í Súdan, Zimbabve og reyndar flestum ríkjum Afríku og stórum hluta Asíu og Latnesku Ameríku.

Íslendingar eiga því ekki heimsmeistara í megrun barna enda segir í fréttinni: "Hvergi á Vesturlöndum..."

Rétt til að minna Moggamenn og aðra á; það er til heimur fyrir utan Vesturlönd!


mbl.is Heimsmeistarar í megrun barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÍA blæs til sóknar gegn Honkytonka!

Jæja, Guðjón allur að færast í aukana. Nú skal blásið til sóknar. Það er nefnilega skráður sóknarmaður í liðinu!


Ætli hann verði samt ekki aðallega að sinna varnarhlutverki og að hlaupa á eftir kick-and-run boltunum?


mbl.is 3:0 tap ÍA gegn Honka í Finnlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfsmorðsárás

Þetta flokkast nú varla undir annað en sjálfsmorðsárás á ökumenn á Reykjanesbrautinni. Mikil mildi að umræddum ökumanni tókst ekki að fremja verknaðinn.
mbl.is Tekin á 199 km hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldsneyti lækkar

Jæja allt í áttina. Þá erum við komin c.a. aftur um eina viku.

En það er ekki svo langt síðan að manni ofbauð þegar verðið fór í 150 kr. í sjálfsafgreiðslu. Nú er maður ánægður með verðið lækki niður í 170 krónur!

Ömurlegt


mbl.is Eldsneytisverð lækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með rokk í hjartanu!?

Úff, þetta hlýtur að vera sárt. Ég veit ekki um aðra, en mamma hefur nú bara rokkinn sinn í stofunni.
mbl.is Er með rokk í hjartanu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. júlí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband