Notarðu ipod? Verður ipodinn þinn rannsakaður af löggunni?

Jæja, alheimslöggan er komin af stað. Nú geta ipod og fartölvueigendur átt von á því í náinni framtíð að vera stoppaðir og rannsakaðir, ef innanborðs er ólögleg músík eða annað höfundarvarið efni. En hvernig á svo að gera greinarmun á löglegu niðurhaldi, t.d. á www.tonlist.is, og ólöglegu niðurhali. Hvernig verður hægt að gera greinarmun á hvaða efni er löglegt og hafa efni er á gráu svæði, a.m.k.


Þetta verður ekki síst gert við landamæri, t.d. munu Kanarnir vísast ganga fram hart, enda er stefna þeirra sú að hræða sem flesta ferðamenn frá landinu með landamærafasisma.

Hvenær? Maður veit ekki.
Pottþétt? Ja, ætli það ekki úr því Kanarnir vilja þetta.

Hér er grein um þetta...

 


Leyndardómar Snæfellsjökuls lofaðir!

Jæja, þá eru Leyndardómar Snæfellsjökuls lofaðir. Hver ætli séu sú heppna? Köld slóð?
mbl.is Leyndardómar Snæfellsjökuls lofaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrítnir þjófar

braudristOk, ég skil þetta með brauðristina. En hvað ætla þjófarnir eiginlega að gera við tölvur?
mbl.is Þjófar höfðu á brott með sér tölvur og brauðrist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málið einfalt

Ef Dagur B. Eggerts heldur einhverju fram, hlýtur það að vera vitlaust, eða þá að einhver hafi boðið honum hálaunastarf fyrir að segja rétt frá.

Hvort ætli eigi við hér?


mbl.is Dagur: Kostnaður mun meiri en haldið er fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alls staðar má orðið spara

Kannski ég hendi bara út aftursætunum á bílnum mínum. Hann verður þá léttari og eyðir minna bensíni.

Eða...


mbl.is Hætta kvikmyndasýningum í flugvélum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrífarar vikunnar II

whiskeySFRÆ, bara smá djók...ekki illa meint að þessu sinni!

Hammershøj

Jæja, litli bærinn Hammershøj er kominn í fréttir á mbl.is. Merkilegt, því þessi litli bær á Jótlandi er nú lítt merkilegur í sjálfu sér.

Ég hef dvalið þarna tvisvar, fyrst í skólaskákmóti og síðan með unglingalandsliðinu, við keppni. Afskaplega næs bær, en lítill og lítið að gerast. Minnir mann óneitanlegan á íslensk sveitaþorp, nema hvað mikið er um tré og gróður. En þetta er frábær staður til að slappa af og njóta sveitasælunnar.

Hinn tvítugi Dani sem lenti í þessum hremmingum hefur þó varla slakað mikið á þessa nóttina!


mbl.is Beið björgunar í garðinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 10. júlí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband