Slítur Samfó stjórnarsamstarfinu?

"Segir Wade að nú sé ríkisstjórn Íslands í miklum vanda og orðrómur sé uppi um að Samfylkingin vilji ljúka stjórnarsamstarfinu og boða til nýrra kosninga. Skoðanakannanir bendi til þess að Sjálfstæðisflokkurinn muni gjalda afhroð ef kosið yrði nú og að Samfylkingin gæti náð nægu fylgi til þess að mynda samstarfsstjórn með einhverjum minni flokkanna."

 

Kæmi ekki á óvart. Samfó hefur bara það markmið að stjórna. Vantar stefnu og hugsjónir, málefni og hreinlega ábyrgðartilfinningu. Samfó hefur verið að leika stjórnarandstöðu í stjórninni og látið allt snúast um að auglýsa upp flokkinn og ráðherranna; svo mikið, að þeir hafa lítinn tíma haft til að stjórna fyrir PR-múfum.

En stjórnarslit myndu vísast gleðja Capecent og Félagsvísindadeild HÍ. Þá myndi verða hægt að gera margar, margar skoðanakannanir!

EN ef samfylking Kvennalistakellinga og gamallra komma (manna eins og Kallavallamatt byltingarmanns og tukthúslims, svo ekki sé talað um þá þekktu) slítur stjórninni og vill boða til kosninga til að fara í stjórn með umhverfiskommunum, gæti Geir Haarde hlegið að þeim með þriggja flokka stjórn með Framsókn og Frjálslyndum :) Það yrði ábyggilega skárra en þessi hörmung.

 


mbl.is Rót vandans einkavæðing íslensku bankanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

30. jan. 1933

Það hefur lærst af reynslunni, að það er ekki hægt að fara í samsteypustjórnir með valdagráðugum, spilltum, hatursfullum, ofbeldishneigðum og veruleikafirrtum brjálæðingum.

 Til hvers ætti stjórnarandstaðan að hafa áhuga á að taka þátt í svoleiðis rugli með Mugatler?


mbl.is Hvetja til viðræðna í Simbabve
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„1,2 og Reykjavík farðu í rassgat"

Er sumt fólk gengið af göflunum?


mbl.is Málningu kastað á heimili byggingarfulltrúa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættan kemur að utan

Já, kemur ekki á óvart. Erlendir glæpa- og þjófahópar vaða hér uppi og löggan á í erfiðleikum með að stöðva þá.

Spurning að fara að grípa til harðari aðgerða, strákar?


mbl.is Aukin umsvif glæpahópa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biskupinn

Amraury Bischoff er genginn til liðs við Arsenal. Merkilegt. Óþekktur leikmaður. Ég las um hann á Arsenal síðu nýlega. Þar var hlegið að þessu, enda hefði þessi leikmaður verið meira eða minna meiddur á síðustu árum.

En kannski er Wenger að kaupa þarna solid backup mann. Hver veit. Kallinn veit sínu viti.


mbl.is Arsenal fær miðjumann frá Bremen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Two blonde bitches

2 ljóskur komnar í sílíkon saman. Pamela ætti annars að tala sem minnst um að aðrar konur séu "tíkur" og "hórur". Hún virðist nú líklegri til afreka á þeim vettvangi en frk. Simpson.

En að kalla aðra konu þessum nöfnum fyrir það eitt að borða kjöt er mjög hörð röksemd gegn þróunarkenningunni og gæti Mofi notað þetta, greinilega. Greinilegt að þegar skynsemi og greind fólks þróaðist, gleymdist að gera ráð fyrir að skaffa Pamelu nægjanlegt magn af ofangreindu.

Í mínum huga er þetta sílíkonskrípi ómerkileg og verðlaus fígúra sem ætti að hafa vit á því að halda kjafti...hafi hún á slíku að skipa.


mbl.is Pamela Anderson fellir dóm: Jessica er hóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ritþjófnaður í breskri ritgerð

Greinilegt að umræddur nemandi klúðraði skelfilega. Hann gleymdi að setja "f***you" í gæsalappir, enda er þessi "ritgerð" velþekkt og hefur komið fyrir margsinnis áður.

Hvað ætli Helga Kress segi við þessu Wink ?


mbl.is Fékk einkunn fyrir tveggja blótsyrða ritgerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. júlí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband