Þessir sofandi flugmenn

Air India eru auðþekkjanlegir. Ég skal segja frá þeim:

a) halda með Liverpool í enska boltanum
b) eru í jafnaðarmannaflokki Indlands - bræðraflokk Samfó á Íslandi
c) héldu með Ítölum á EM
d) komu til Íslands einu sinni á vegum Air India og fóru beinustu leið í pílagrímsferð í Frostaskjólið.

Málið dautt.


mbl.is Sofandi flugmenn fóru framhjá áfangastaðnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spánn Evrópumeistari

Þýska stálið var þá bara plast eftir allt saman. En gott að alvöru lið vinni...búnað fá nóg af Þjóðverjum í þessu.
mbl.is Spánn Evrópumeistari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valsararnir að standa sig vel

Þeir eru tveimur mörkum yfir gegn liði sem er nokkuð fyrir ofan þá í töflunni? En a.m.k.: Valsarar eru þá ekki lengur í fallhættu.
mbl.is Þróttur - Valur, bein lýsing, 0:3
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og síðan eru menn hissa þó margir þoli ekki Svía?

Sænsk samfélag er bilað. Það hefur skemmt marga ágæta Íslendinga, sem þangað hafa farið (ok, suma ekki, eins og gefur að skilja), en þetta er dæmi um að eitthvað er að í Svíaríki.

Maður þarf nú ekki annað en að taka tvö dæmi um fína menn, sem hafa snúið aftur til Íslands eftir dvöl í Svíþjóð og upp frá því hefur farið smám saman halloka fyrir þeim...skákmenn vita víst nákvæmlega hverja ég á við. Grin

Svíar eru einfaldlega allt of "PC"... þetta er tómt rugl. Og þessi kennari ætti að vera sendur eitthvert í refsingarskyni, t.d. gera hann að sturtuverði á Anfield eða á White Hart Lane. Málið dautt.


mbl.is Barnaafmæli veldur uppnámi í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítið, seint komið og lélegt

Af ákveðnum ástæðum renndi ég yfir kjarasamning BHM fyrr á þessu ári. Maður fékk sjokk. Ég hefði ekki efni á að taka að mér starf á þeim kjörum. Svo einfalt er það.

Þessi samningur lagar málin aðeins til, en gengur alltof skammt. Það er amk mín skoðun.


mbl.is Samið til loka mars 2009
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérsveitin send til Grímseyjar!

Þessu hefði maður aldrei trúað. Þetta er svona álíka og að Liverpool myndi vinna Englandsmeistaratitilinn.


Nei, bara djók...útkall sérstveitarinnar til Grímseyjar var líklegri.


mbl.is Vopnaður maður handtekinn í Grímsey
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. júní 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband