Sunnudagur, 22. júní 2008
Spánn - Ítalía
zzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzz. Hefðu átt að létta fólki lund og byrja bara strax á vítakeppninni.
Vítakeppnin byrjar eftir smástund...hvernig ætli fari?
Ég spái því, að núna verði það Spánverjarnir sem vinni í vítaspyrnukeppninni, þó Ítalir séu vissulega alltaf sigurstranglegir í vítakeppnum. :)
Viðbót: Glæsilegt! Fínt að fá sóknarlið áfram á kostnað þessara morknu Ítala. Og auðvitað var það Cesc Fabregas sem skoraði "sigurmarkið". Að sjálfsögðu! Glæsilegt.
![]() |
Heimsmeistararnir fallnir úr keppni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 22. júní 2008
Ofbeldið sigrar
Amk í bili. Fasistastjórn Mugabe virðist ætla að sitja að völdum áfram.
Þetta er hryggilegt. Nú verður alþjóðasamfélagið að grípa til einhverra aðgerða til að stöðva þennan viðurstyggilega mann, Mugabe.
![]() |
Tsvangirai hættur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 22. júní 2008
Fasistaríkið Simbabve
Og heimurinn stendur hjá, meðan brjálaður fasisti fær að murrka lífið úr eigin þjóð. Hafa menn ekkert lært af sögunni?
Morð eru slæm, en líknarmorð geta stundum verið ásættanleg....spurning hvort Búlgarir eigi ekki solid regnhlífar sem þeir eru hættir að nota?
Til að líkna milljónunum í landinu. Þessari ógnarstjórn Mugabes verður að linna.
![]() |
Reynt að koma í veg fyrir kosningafund í Simbabve |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 22. júní 2008
Seltjarnarnesið
Seltjarnarnesið er lítið og lágt sagði Þórbergur forðum. Þar væru íbúar fáir og hugsi smátt, eða eitthvað í þá áttina.
En er gott að búa á Nesinu? Heyrði þessa um ábúð á Nesinu:
Ekki er það nú enn sokkið í sæinn
Seltjarnarnesið, utan við bæinn.
En það versta er ýlan
og KR fýlan
er fyllir vitin allan daginn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 22. júní 2008
Blessað veðrið
Jæja, sunnudagsmorgunn kl. 05:43. Ég er kominn á litlu skrifstofuna mína, með stóru gluggana í átt að Esjunni.
Síðustu daga hefur verið nánast ólíft hérna inni sökum hita, þrátt fyrir viftusystem og léttan klæðning undirritaðs. En nú er þetta miklu betra. Morgunsólin er falin bak við skýin. Glæsilegt.
En sumarið er komið. Yndislegt veður. Ohhh hvað þetta er miklu betra en þessi týpíski íslenski rigningarsuddi og rokrassgat.
![]() |
Veðurblíða áfram á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 22. júní 2008
Veggurinn á Ströndum
Þetta var vísast glæsilega að verki staðið. Og Veggurinn sigraði á mótinu glæsilega og Húnninn, forseti Skáksambandsins, kom annar.
Þarna hefur verið virkilega gaman á þessum fallega stað í yndislegu veðri. Rosalega langaði mig að fara, en ég nennti ekki...:)
En gaman að halda svona mót úti á landi, ákveðin stemning.
![]() |
Helgi Ólafsson sigraði í Djúpavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)