Laugardagur, 21. júní 2008
Nærbuxnaslys!
![]() |
Nærbuxnaslys kært |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 21. júní 2008
Snilld hjá stelpunum
Flott hjá Margréti Láru að skora þrennu, en ég hafði samt mest gaman að þessum snillingi í hægra bakverðunum, Ástu held ég að hún heiti. Mögnuð innköst og frábær "útskipting".
Kona leiksins. Ekki spurning!
![]() |
Margrét Lára með þrennu og 40. markið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 21. júní 2008
Mun ísbúð opna á Mars?
![]() |
Telja sig hafa fundið ís á Mars |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 21. júní 2008
Áfangasigur
Jæja, þá er níðmeistari Íslands kominn langt ef ekki varanlegt í bann frá Skákhorninu, en hann er í banni á fjölmörgum umræðuvettvöngum hér innanlands, og með honum fóru nöldurmeistari Íslands og undirritaður, bullmeistari Íslands.
Þessi fórnarkostnaður, 60 daga bann, var vel þess virði. Nokkrar solid níðvísur til andsvars dónaskap þeirra félaga var vísast eitt af því sem kostaði rauða spjaldið, en ég er mjög sáttur. Umræðuhorni skákmanna er því bjargað, amk í bili.
Lauma með einu "leikbroti", rétt til að forða því að þetta týnist!
Hér er allt á tundri og tjá
tæpast við að horfa.
Því fátt er forljótara að sjá
en fésið á'onum Torfa.
En vér erum sáttir...þessir rugludallar og meistarar í dónaskap og leiðindum eru komnir á braut...fórnarkostnaðurinn ásættanlegur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 21. júní 2008
Heilabilaður og veruleikafirrtur forseti
![]() |
Mugabe fordæmir lygar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 21. júní 2008
Næmni fyrir smáatriðum
Ég var að lesa gömul blöð á Þjóðarbókhlöðu fyrir nokkrum árum síðan, eins og svo oft áður og síðar, en í filmuherberginu var þá jafnan sami maðurinn og urðum við kunningjar af þessum löngu samvistum við blaðalesturinn.
Nú var svo að við fórum samtímis út einn daginn, en þá beið vinur þessa manns eftir honum á bíl og saman ætluðu þeir að bralla eitthvað. Sá maður var Arnaldur Indriðason. Ég kvaddi og þeir fóru.
Daginn eftir spurði þessi maður mig, hvernig þekkir þú Arnald Indriðason?
Ég sagðist ekki þekkja Arnald Indriðason neitt.
Þá kom úr dúrnum að Arnaldur hafði spurt mann þennan: "Er þetta ekki Snorri Bergs"?
Þá mundi hann eftir mér frá því um 1980 þegar ég var stundum "í Heiðargerðinu", heimili Indriða og fjölskyldu, eitthvað að bralla með "Púmma", litla bróður Arnaldar. Ótrúlegt að hann skyldi muna þetta, því var ekki eins og ég væri þarna daglegur gestur.
Uppfrá þessu hef ég borið extra-mikla virðingu fyrir Arnaldi. Menn sem hafa svona minni og skarpskyggni hljóta jafnframt að vera næmir fyrir smáatriðum þeim, sem gera spennubækur góðar, betri, bestar.
Skrifin eru í blóðinu. Það er alveg á hreinu.
Óska ég Arnaldi til hamingju með enn eina rósina í hnappagatið.
![]() |
Arnaldur hlaut Blóðdropann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)