Þriðjudagur, 27. maí 2008
Hverju tekur Lindsay Lohan upp á næst?
Skammt stórra högga á milli í lífi Lindsay Lohans. Hvað ætli hún geri næst? Tilkynni um inngöngu í nunnuklaustur eða upptöku íslamstrúar og flutning til Saudi-Arabíu?
Hvað veit maður?
![]() |
Lohan vill kvænast Samönthu Ronson |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 27. maí 2008
Bretar orðnir Sturl-aðir
En málið er, að það þarf frekar að fara all-in á Sauda og aðra olíuframleiðendur sem halda verðinu háu, vísast af ásettu ráði.
Hitt eru bara aukaverkanir.
![]() |
Atvinnubílstjórar mótmæla í Bretlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 27. maí 2008
Framsóknarfréttir
Jæja, nú fer Fréttastofa Framsóknarflokksins stórum. Skotmark: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Og Geir kemur Ingibjörgu til varnar, en FF hafði verið að bögga hana með því, að rifja upp fyrri yfirlýsingar í ljósi samtímans.
Ég verð reyndar að viðurkenna að ég skil FF afskaplega vel. Samfó hefur ekki verið þekkt fyrir að halda fast við skoðanir og skipt þar reglulega um.
Þó auðvitað megi deila um hvort FF fari hér yfir strikið er hitt svo annað mál, að Ingibjörg á ekki að vera hafin yfir gagnrýni. Hún þarf að taka því að vera minnt á skoðanakannanastefnu Samfó og stefnuflökt. Annað væri "hneyksli".
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)