Partí hjá Páli Óskari

IMG_2991Æ, ég fer aldrei á svona, en varð að koma að myndinni af litla snússa, Arnari Mána, með Páli Óskari. Arnar er, eins og allir sjá, sonur Munda bróður.

Ég er ekki viss um að hvaða tilefni þessi mynd var tekin, en sjá má á svipnum á Arnari litla að þarna var "svaka partí hjá Páli Óskari" á ferðinni.


mbl.is Partí hjá Páli Óskari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hlýnun ekki ógn á Íslandi"

Nei, auðvitað ekki. Flestir eru ánægðir með að fá smá hlýja strauma yfir landið LoL

Hitt er svo annað mál að loftslagsbreytingar hafa ekki síður áhrif á Ísland og önnur lönd, t.d. gæti ferli Golfstraumsins breyst og hvar stæðum við þá? Og ef Grænlandsís bráðnar hækkar vatnsborðið og Frostaskjólið færi kannski í kaf....

Bíddu við, já, nú fer ég að skilja af hverju Íslendingar eru svona jákvæðir í garð loftslagsbreytinga Errm


mbl.is Hlýnun ekki ógn á Íslandi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Lecter" í vandræðum

LecterJæja, Guðjón "Lecter" er kominn í vandræði. Nú fer hann vísast í bann og fær jafnvel sekt í ofanálag.

En mikil mildi að Einar Kárason var hvergi nærri í gær.


mbl.is Ummæli Guðjóns til umfjöllunar hjá aganefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hægri umferð 40 ára gömul"

haegriÆææ, ég er ekki í skapi fyrir svona núna. En ég verð þó að taka ofan hattinn fyrir Mogganum að leyfa menntaskólanemum að koma í starfskynningu og sletta úr pennum sínum á vefnum; og fá borgað fyrir það!

Ég var að enda við að lesa yfir 30 síðna "ritsmíð" þar sem hver einasta setning var móðgun við íslenskt málfar og málskilning, þrátt fyrir háskólamenntun viðkomandi.

Ég þoli ekki meira í bili og neyðist því greinilega til að sleppa því að lesa mbl.is, a.m.k. eitthvað fram eftir degi. 

Þá er nú visir.is skárri. Þar má þó ganga að því vísu, að ein og ein frétt sé vel skrifuð.


mbl.is Hægri umferð 40 ára gömul
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. maí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband