Umdeild þögn rofin

Gaman að hægt sé að deila um þögnina. Ágætis tilbreyting frá deilum um það sem mennirnir láta út úr sér.

 


mbl.is Danskur ráðherra rýfur umdeilda þögn sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Greiðfært á öllum Aðalheiðum"

Gott að vita þetta...slæmt að maður skuli ekki þekkja neina Aðalheiði.

P.S. Viðbót. Jæja, nú er búið að breyta Aðalheiði í aðalleiðir 


En hvað var aftur ort um Ómar Ragnars (man þetta ekki alveg):


........ fórstu oft
á feikilegu skeiði.
Endaðir svo upp í loft
upp á miðri Heiði.

 

Man einhver upphafið?


mbl.is Greiðfært á öllum aðalleiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar í Belgrad

Jæja, Eurobandið komið til Belgrad og byrjað að breika. Annars held ég nú að gengið þarna suðurfrá þurfi frekar að hafa áhyggjur af kynningu sinni meðal annarra þjóða, en ég veit það af eigin raun að Íslendingar eru vel metnir í Serbíu; amk hef ég ekki rekist á annað  þau skipti sem ég hef komið til Belgrad.

Ég er líka ánægður með að athyglin beinist nú að Belgrad. Mér þykir vænt um þessa borg og fólkið þar. Vonandi að þetta verði "búst" fyrir borgarbraginn og landsmönnum til upplyftingar.


mbl.is Íslendingar kynna sig í Belgrad
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning

hvort stúlkur fengju að fara í sund með körlum í Saudi-Arabíu,t.d. á bíkíní? Eða í mörgum öðrum íslömskum löndum?

Þetta gengur í báðar áttir. Er ekki bara hægt að heimta það af Evrópubúum í löndum íslams að þeir aðlagi sig að samfélagi múslíma, múslímar verða að gera slíkt hið sama í vestrænum samfélögum.

Málið dautt.


mbl.is Bakslag í aðlögun múslíma að dönsku samfélagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stöð 2 bauð í Fjölskyldugarðinn

Skrítið, ég vissi ekki að Fjölskyldugarðurinn hafi verið til sölu. En hvað bauð Stöð 2 annars háa upphæð?
mbl.is Stöð 2 bauð í Fjölskyldugarðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. maí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband