Bakkabræður reisa álver

Fyrr má nú rota en dauðrota. Er álver virkilega að koma í hvern fjörð?


Verður kannski Húsavík sett í örnefnamat og nefnd Álvík í kjölfarið?


mbl.is Undirbúningur álvers á Bakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gula spjaldið

Jæja, þá er þessu máli lokið, í bili a.m.k. En hvernig ætli þetta komi saman við kröfur ákveðinna akademíka sem svöruðu spurningum Kistunnar, en mér virðast a.m.k. flestir þeirra vera vinstri sinnaðir?

En a.m.k. getur Hannes amk verið sáttur við að ná dálitlum varnarsigri gegn vinstri sinnuðu menningarmafíunni í Háskólanum, þrátt fyrir allt og allt.

  


mbl.is Átelur vinnubrögð Hannesar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Mikil eru mannauðsfræðin"

sagði Rúnar Berg, þegar hann las nýjasta bullið frá umsjónarmanni Skákhornsins, umræðuhorns skákmanna.


Mér fannst þetta svo greindarlegt comment, að ég varð að koma því á framfæri.


Kjör BHM-manna

Ég skoðaði einmitt í gær kjarasamning BHM við sveitarfélög, af ákveðinni ástæðu. Ég fékk nú eiginlega vægt áfall.


Mikið ósköp skil ég vel þá BHM-menn sem telja launin sín of lág.


Greinilegt að háskólamenntun dugar lítið nú til dags.


mbl.is Telja að launin þurfi að hækka um 26-28%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikill hiti í mönnum

Spurning þá að taka inn magnyl og fara heim að leggja sig, eða...?
mbl.is Mikill hiti í bílstjórum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vestfirðir

Oftlega er leiðin löng
sem liggur milli vina

Það ætti að grafa undirgöng
undir Vestfirðina

(Guðm. Ingi og Flosi)


mbl.is Stefnt að eflingu háskólanáms á Vestfjörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grand Prix í kvöld

TRGrand Prix mótaröð T.R. og Fjölnis  heldur áfram í kvöld, í Skákhöll Reykjavíkur að Faxafeni 12, og hefst kl. 19.30. Tefldar verða 7 umferðir eftir Monrad kerfi  með 7 mínútna umhugsunartíma.

Aðgangseyrir er kr. 500 fyrir fullorðna en ókeypis er fyrir börn á grunnskólaaldri.

Tónlistarverðlaun í boði að venju


Umferðartafir

Úff, það var erfitt að komast leiðar sinnar á Reykjanesbraut í morgun. Ég hafði vaknað á normal tíma, en skriðið upp í aftur. Kom heim vel yfir miðnætti og var þreyttur og hafði skyndilega elst um heilt ár frá því í gærmorgun. Ég fór því ekki af stað fyrr en um 8 leytið. Big mistake, einsog skáldið sagði. En allt tókst þetta nú að lokum.


En hafa atvinnubílstjórar ekki komið skilaboðum sínum á framfæri. Ef þetta heldur svona áfram, glata þeir þeim stuðningi, sem þeir þó höfðu meðal almennings.


mbl.is Útlit fyrir miklar tafir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Condí Rice

hefði aldrei getað orðið utanríkisráðherra Indlands, því skv. nýsettri reglugerð er bannað að flytja út hrísgrjón frá Indlandi, nema basmatí-grjón.


Ja, Condí gæti skipt um nafn og tekið upp fornafnið Basmatí.


mbl.is Ingibjörg Sólrún hittir Rice
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt merki Samfylkingarinnar?

samf_thbJæja, nýtt merki Samfó er víst komið fram, í stað "japanska fánans". Ég fékk það eftir krókaleiðum, en ekki tekst að rekja það lengra aftur til til Jóhanns Steinars. Hvort sem þetta verður samþykkt eður ei, passar það ágætlega við, að mér finnst a.m.k.

Bloggfærslur 3. apríl 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband