Arsenal Englandsmeistari

Gaman að hafa svona titil. En stelpurnar eru einfaldlega bestar. Málið dautt. Hreint yfirburðalið í kvennaboltanum.

Og síðan kemur tími strákana á næsta eða þarnæsta ári.


mbl.is Arsenal Englandsmeistari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FRAM - Valur í úrslitum

Þetta er bara eins og í gamla daga. Áfram bláir.
mbl.is Fram í úrslit deildabikarsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bréf til Láru

Ég hef sjálfur sagt ýmislegt í hita leiksins. Ég hef sagt hluti sem ég iðrast. Stundum hef ég reynt að breiða yfir þá og reynt að draga úr þeim með einhvers konar fjasi um að þetta hafi bara verið í gríni. Og stundum var það bara í gríni. En öllu gríni fylgir einhver alvara.

Ég þekki því hvað það er að vera eldrauður upp fyrir haus, vitandi að ég hef klúðrað "bigtime". Tilraunir til að breiða yfir slíkt hafa jafnan gert illt verra. Amk skv. minni reynslu.

Ágætt þó að segjast hafa gert mistök. Þú gerðir mistök. En mistök eru til þess að læra af þeim. Við gerum öll mistök, en þurfum að bera ábyrgð á þeim.

Ég hef engan áhuga á að heimta þitt annars ágæta og vel útlítandi höfuð á diski, eins og Heródías eða hvað hún hét annars kellingin forðum. Við erum öll breisk. Ég vil sjálfur geta átt von á fyrirgefningu þegar mér verður á -- það gerist því miður alltof oft.

En fréttamenn bera ábyrgð, meiri ábyrgð en margir aðrir. Þessi mistök þín eru ekki aðeins blettur á þínum annars ágæta ferli, heldur einnig á fréttastofunni. Þetta er því ekki aðeins þitt mál, heldur mál vinnuveitenda þinna og þeirra sem kaupa þjónustu hjá því fyrirtæki.

Ég veit ekki hverju ég á að trúa. Varstu að "sviðsetja" fyrir myndavélar eða vildirðu í raun taka þátt í leiknum? Eða ertu ekki betri fréttamaður en þetta? Eða gerðirðu bara "mistök" sem þú lofar að gera aldrei aftur?

En hvernig sem þetta fer hjá þér núna mun þetta mál fylgja þér lengi. Þér verður ekki treyst jafn rækilega og áður. Þú verður semsagt að gera betur en þetta til að ávinna þér traust fólksins að nýju.

Ég vil ekki heimta fallöxina yfir þig vegna þessa. Ég held, og er reyndar viss um, að þér líði alveg nógu illa yfir þessu þegar. Ég held að einmitt það sé næg "refsing" og ég tel mig ekki hafa rétt til að heimta neinar refsingar til viðbótar.

Ég óska þér alls hins besta og vona að þú komist heil út úr þessu leiðinlega máli.

Og fyrir þá, sem slysast hafa til að lesa þetta: Höfum við nokkuð efni á að kasta steinum þetta skiptið? Gerum við ekki öll mistök?

Ég tek svo fram að lokum að ég er með hausverk og kann það að skýra þessar furðulegu pælingar mínar.


mbl.is Yfirlýsing frá Láru Ómarsdóttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hálfs árs fangelsi fyrir tæklingu

Mikið var Roy Keane heppinn að spila í Englandi, svo ekki sé talað um ónefndan leikmann Birmingham. Hins vegar er hálft ár dálítið strangt!?

 

 

 


mbl.is Hálfs árs fangelsi fyrir glórulausa tæklingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja, nóg komið

Eru menn að glata glórunni?


Maður hafði löngum samúð með mótmælum bílstjóra en ekki lengur. Jafnvel þótt þessi gaur hafi ekki verið úr þeirra hópi hafa atvinnubílstjórarnir komið á "anarkískri stemningu" sem alls konar fólk með geðtruflanir eða hatur á yfirvaldi nýtir sér til að fá útrás.

 


mbl.is Ráðist á lögregluþjón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýmæli á Íslandi

Já, nýmæli á Íslandi: Lyfjapróf í réttum.

 

Lyfjapróf verða tekin upp á einni stærstu réttum Íslands á hausti komandi. Verður blóð sauða og þvag skimað eftir lyfjum, ef dýralæknum þykir hegðun skepnanna gefa ástæðu til.


mbl.is Nýmæli á Spáni: Lyfjapróf í nautaati
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég mætti í skýrslutöku í morgun

Já, ég tók skýrslu úr möppu og renndi lauslega yfir hana. Ágætis skýrslutaka.


mbl.is Mættir í skýrslutöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erlendir atvinnubílstjórar?

Mig langar mest til að vita hvað þessi Arnór Jónsson hét áður en hann fluttist til Íslands?

 

 

 


mbl.is „Gerðu þjóðini greiða og skjótu þig"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldsneytið á Gasa

Ég minni á nýlega frétt um eldsneytismálin á Gasa. Ég held að þetta sé að sumu leyti áróðurstrikk. Það stendur ekki á Ísraelum að flytja eldsneyti, sé tryggt að  Palestínumenn hætti að ráðast á og skjóta eldsneytisflutningamennina. Sjá t.d:

 http://afp.google.com/article/ALeqM5i76n2oR-d81TM2xUI10fJZc2F9oA

 

 "The UN official said that one million litres of fuel are being held on the Palestinian side of the terminal -- enough to supply Gaza with just over two days' worth of fuel for cars and electricity generators.

"Israel cannot pump more fuel because there is no place to store it, since the general petroleum association is looking for guarantees from Israel to supply more fuel. This is a logjam," the official said.

 

Merkilegt hversu lágt menn eru tilbúnir að leggja í áróðursskyni. Sjá einnig:

 http://www.ynetnews.com/articles/0,7340,L-3534910,00.html

http://www.ynetnews.com/articles/0,7340,L-3533205,00.html

 


mbl.is Hætta hjálparstarfi á Gaza
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

18.000 kall

Ja, ríkið mætti byrja á því að hækka lífeyri um 18.000 kall. En ef ég væri vinnandi maður á taxta t.d. BHM yrði ég ekki sérlega sáttur við þessa "hækkun". En svona er lífið!
mbl.is Ríkið býður 18.000 kr. launahækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 24. apríl 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband