Hvað ætli nýr ritstjóri Mbl geri fyrsta daginn?

Ja, nú veit maður auðvitað ekki. En þrír skynsamlegir kostir koma til greina:

a) Ráða 2-3 valinkunna íslenskufræðinga til að prófarkalesa Mbl., sérlega vefhlutann

b) Senda blaðamenn Mbl. á íslenskunámskeið, sér í lagi vefblm

c) Ráða nýja blaðamenn sem kunna að skrifa á íslensku.


mbl.is Nýr ritstjóri hlakkar til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmælin í grafík: Af Jútúb


mbl.is Mótmælaaðgerðir á YouTube
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr vegamálastjóri

mun amk halda vegunum hreinum.


En án alls gríns virðist þetta hinn frambærilegasti maður.


mbl.is Hreinn nýr vegamálastjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmæli atvinnubílstjóra

Ég verð nú að segja að mér finnst hrikalegt að horfa upp á lögguna með hjálma og skildi eins og í verstu óeirðum utanlands.


Ég skil atvinnubílstjóra vel, en er þó ekki mjög hrifinn af því að valda þessum spjöllum. Ég skil lögguna vel að vilja framfylgja landslögum.

En nú spyr ég; hvar er samgönguráðherra? Hefur hann yfirleitt áhuga á einhverju öðru en göngum á Norðurlandi?


mbl.is Mótmælendur handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hommfengi

Er þetta ekki nýyrði, "hommfengur"? Minnir á heitfengur!


Þessu má snúa á ýmsan annan hátt:

"KR-fengur" um íbúa Vesturbæjar
"Kratafengur" um hrokafulla menntamenn og menningargúrúa
"Illur fengur" segir sig sjálft

osfrv.


mbl.is „Hommalegra en hommalegt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eurobandio

Jæja, einhverjir fávitar úti í heimi fá kikk yfir nafni íslensku flytjendanna, Eurobandio! Alltaf gaman að sjá, í Fréttó í dag held ég, ummæli ólæsra manna sem ganga um með stólpípu í Jónasnum og þykja vera einhver númer.


Hitt er svo annað mál að ég efast stórlega um að Eurobandið komist upp úr undanrásunum.

Ég hef nú ekki heyrt eitt einasta lag úr keppninni, nema það íslenska, en ég spái samt San Marínó öruggum sigri.


mbl.is Flestir veðja á Rússa í Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. apríl 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband