Dáleiðsla gegn sársauka

Þessi maður gæti gagnast vel í þinginu enda sumir þingmenn greinilega sársaukavaldandi.
mbl.is Dáleiddi sjálfan sig fyrir skurðaðgerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafnað boði um hlutverk í Hringadróttinssögu

Já, ég hafnaði líka hlutverki, því ég átti sko að leika í erótískum sennum með Umu. En þar sem hvorugt okkar vildi vera með, þá var þetta bara klippt út úr handritinu Wink


Hmm, ok, jæja, en ég get ekki horft á þetta heldur, því þegar ég sé suma karakterana þarna finnst mér ég vera að horfa í spegil að morgni dags.


mbl.is Getur ekki horft á Hringadróttinssögu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yndislegt veður

Vaknaði snemma í gærmorgun og tók pápa með í skottúr austur í Skaftárhrepp. Rúntuðum aðeins, stoppuðum hjá Herði í Efri-Vík og heimsóttum leiði ömmu og afa í Prestbakkakirkjugarði. Og veðrið var dásamlegt; heiðríkja, sól og nánast logn. Yndislegt!

 Svona á þetta að vera.

 

P.S. Ótrúlega mikill snjór þarna austurfrá. Maður man ekki annað eins. Og Mýrdalur nánast hvítur enn!!


mbl.is Hæglætisverður á landinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"67,8 vilja hefja undirbúning aðildarumsóknar "

Ekki mikið fylgi við aðildarumsókn greinilega, því aðeins 67,8 Íslendingar vilja hefja undirbúningsferli umsóknar, eins og segir í titli fréttarinnar.  En hvaða Íslendingur er bara 0,8 af manni? Þessi aðili hlýtur að búa í Vesturbænum?
mbl.is 67,8 vilja hefja undirbúning aðildarumsóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. apríl 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband