Sko gamla manninn

Ég er nú ekkert sérlega hrifinn af Berlusconi og af ýmsum ástæðum, ma. þeirri sem hleypur um grasvelli í rauð-svartröndóttum búningi!


En allt er skárra en vinstra-ruglið, jafnvel Berlusconi. Hann er þó ekki alvitlaus, eins og sjá má á Vísi


Kannski eru hægri sinnaðar konur fallegri en vinstri sinnaðar?Wink


mbl.is Berlusconi með forskot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt umræðuhorn/spjallborð

Jæja, nú er umræðuhorn/spjallborð komið inn á Taflfélagssíðuna


http://www.taflfelag.is/spjall


Skákmönnum og skákáhugamönnum er velkomið að skrá sig og taka þátt.


Undirskriftalisti gegn hausverkjum

Ok, hvar á ég að skrifa undir?
mbl.is Afhentu undirskriftir gegn hausaverkun í Þorlákshöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Græðum við á EB aðild?

Ja, að mínum dómi eru þetta nú ekki hlutlausir aðilar. Það væri eins og að miðstjórn Framsóknarflokksins myndi gefa út skýrslu þess efnis, að kjör Íslendinga myndu batna um 25% við það að Framsóknarflokkurinn kæmist til valda.
mbl.is Telja líklegt að kjör almennings myndu batna með ESB-aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnarfundur Hamas?

Ja, nú vantar bara Ögmund til að fundurinn verði löglegur. Wink

En ég skil ekki hvers vegna þessi fundur er haldinn í Sýrlandi. Miklu nær væri að Carter myndi hitta leiðtoga Hamas í Þýskalandi, t.d. í Wannsee!


mbl.is Carter á fund leiðtoga Hamas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig á að stytta biðlista að geðdeildum?

Ja, ég þekki nú einn geðsjúkan mann sem hefur náð að halda sjúkleika sínum niðri með því að starfa við geðdeild Landspítalans.

Spurning hvort ekki mætti prófa þetta system hjá BUGL líka?

 

Viðbætur: Umræddur maður hefur verið meira og minna að agnúast út í mig í hálfan áratug og stundum með svívirðilegum hætti. Og síðan þegar ég hef svarað árásum hans og endalausum hnýtingum, hefur hann litið á sig sem fórnarlamb og vælt þessu lifandis ósköp. OHag nú hefur hann verið að hnýta í mig á vettvangi þar sem ég get ekki varið mig, get ekki svarað mig. Og þegar ég svara fyrir mig hér, á mínu eigin bloggi, heldur hann áfram vælinu á hinum staðnum, vitandi að ég get ekki varið mig, og vælt eins og smákrakki og náð að kría út samúð manna sem eiga að vita betur.  Hann gat alveg svarað svari mínu á eigin bloggi, hann hefur haft hér blogg sem að vísu er lítið lesið vegna annars vegar óvirkni og hins vegar dónaskapar. Eins og umræddur maður er góður penni og bráðskemmtilegur þegar hann er "í lagi" -- en svona geta sjúkdómar leikið jafnvel hina skemmtilegustu menn.


mbl.is Biðlistar BUGL hafa styst
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Þegar skrúfurnar vantar í litla, fína höfuðið

Auðvelt fyrir Svía, sem ekki eru mikil fiskveiðiþjóð, að horfa upp á sívaxandi stofna hvala éta upp fiskinn frá fiskveiðiþjóðunum. Rétt eins og mér væri skítsama þótt bæði Volvo og IKEA færu á hausinn, þó ráðherrann yrði vísast ekki mjög hrifinn.

Ráðherrann kann greinilega ekki að setja sig í spor annarra. En það er hans vandamál.
mbl.is Svíar gagnrýna hvalveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sæðisbankastjóri á hausnum

Greinilegt að þessi netbanki hans hefur orðið fórnarlamb spákaupmanna og braskara.
mbl.is Sæðissvindlari sakfelldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kveðjubréf

jonrognvaldsÉg horfði á Jón Rögnvaldsson vegamálastjóra í "Íslandi í dag" í gær í tengslum við Reykjanesbraut og slysið hræðilega þar í gærmorgun. Persónulega fannst mér hann komast vel frá þessu öllu saman.


Þar kom líka fram, eins og vitað var, að hann væri að láta af embætti eftir um 43 ára starf hjá Vegagerðinni. Mig grunar fastlega að bæta mætti við "farsælu starfi".


Ég þekki ekki Jón Rögnvaldsson vegamálastjóra, en ég þekki Jón Rögnvaldsson fyrrv. forseta Skáksambands Íslands og formann Taflfélags Garðabæjar. Þar fer mjög vandaður maður, traustur og ábyggilegur. Efa ég ekki að þeir eiginleikar hans hafi jafnframt komið fram í störfum hans hjá Vegagerðinni.


En vegurinn hlýtur að enda einhvers staðar og nú hefur Jón ákveðið að láta gott heita, en hann er að nálgast sjötugt. Óska ég honum alls velfarnaðar í því sem hann mun taka sér fyrir hendur á komandi misserum.


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 10. apríl 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband