Dannielynn Hope erfir Önnu Nicole Smith

En spurning hvort hún erfi brjóstastærð móður sinnar?
mbl.is Dóttir Önnu Nicole Smith erfir móður sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

The Winner Takes It All!

iceland05Merkileg umfjöllun er komin á erlenda skáksíðu um nýafstaðið Íslandsmót skákfélaga, þar sem við strákarnir í TR unnum eftir harða baráttu við Helli.

Já, fyrirliðinn og formaðurinn þarna fremstir á mynd.

Vírus á Mogganum

Ætli þessi símavírus sé af sama meiði og stafsetningarvilluvírusinn sem hefur leikið lausum hala þarna á blaðinu á síðustu mánuðum?
mbl.is Bilun í símkerfi Morgunblaðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegur sigur Arsenal

Málið dautt. 2-0 fyrir Arsenal. Milan niður í logum.


Ítölsku liðin greinilega ekkert sérstök þessi misserin.


Áfram Arsenal


mbl.is Arsenal vann frækinn 2:0 sigur í Mílanó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Chavez og FARC

Kommarnir standa saman. Það segir sig sjálft. Um FARC, sjá t.d. hér.

Þetta er orðið ágætis bandalag: "Öxulveldi hins illa", plús Kúba, Chavez, FARC, Hamas, Hizb'Allah, Ögmundur Jónasson, Al-Kaída, etc, etc.


Ég skil ekkert í þessu merkilega fólki og merkilegum hreyfingum/ríkjum að hafa ekki fyrir löngu náð yfirráðum í heiminum.


En kannski er heimurinn orðinn þreyttur á fólki sem byggir grundvöll sinn á hatri og/eða grimmd.


mbl.is Yfirvöld Kólumbíu krefjast ákæru gegn Chavez
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þá Global Warming umhverfisvænt fyrirbrigði?!

Von að maður spyrji? Þetta veður minnir amk lítið á hnattræna hlýnun. Ég er alveg hættur að botna neitt í þessu systemi öllu.
mbl.is Rysjótt tíð dregur úr mengun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýru húsin í Kensington

Hvað ætli Íslendingar séu nú að reyna að selja mörg hús í Kensington?
mbl.is Dýrustu einbýlishúsin í Kensington
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimatilbúnar rakettur

ná ekki frá Gasa til Ashkelon. Hér er um að ræða alvöru flaugar, vísast komnar frá 30.000 eldflauga vopnabúri Hizb'Allah, sem fengu þeir frá Sýrlandi og Íran.

En það góða við þessar árásir er, að Ögmundur Jónasson getur nú glaðst yfir þeim mikla árangri sem vinir hans í Hamas og Islamic Jihad eru að ná með þessum árásum sínum.
mbl.is Flugskeyti hafnaði nærri heimili ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

30.000 eldflaugar

Og sumar þessara eldflauga enda í Gasa, og fara þaðan t.d. til Askelon.

Ætli nokkrar þeirra hafi ekki mynd af Ögmundi, með kveðju?
mbl.is Vopnabúr Hisbollah telur 30.000 eldlaugar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn af Mogganum

Manni sárnar að sjá hve vinnubrögðin á Mogganum hafa farið halloka fyrir kröfunni um skrifa fréttir á eins litlum tíma og hægt er, svo litlum, að menn gefa sér ekki tíma til að lesa yfir skrif sín.

Í umfjöllun um Reykjavíkurskákmótið í blaðinu í morgun heiti ég skyndilega Sneott Bergsson, Hannes Hlífar tapað r-i og ýmsar fleiri villur að finna.

Þetta er orðið þreytandi, því þetta virðist orðið merkilega algengt í þessu áður vandaða blaði.

Næsta síða »

Bloggfærslur 4. mars 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband