Nýjasta ránið

var framið í 10-11-12 í kvöld, þegar þrír menn, vopnaðir segulbandstæki og spólu með lögum Wham!, hótuðu starfsmanni  að spila Club Tropicana nema þeir fengju féð úr búðarkassanum. Starfsmaðurinn neitaði, enda var hann ungur að árum vissi hann ekki hvað Wham! var, en strax og fyrstu tónarnir heyrðust, brast hann í grát og afhendi féð.


Ræningjarnir komust undan á hlaupum.


mbl.is Rændu búð með garðklippum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigur Arsenal aldrei í hættu

Bara spurning um þolinmæði! Smile

 

Ok, ég viðurkenni að hafa gefið upp vonina í hálfleik. En seigla í mínum mönnum að hafa náð að landa sigri, manni og tveimur mörkum undir.


Er meistaraheppnin að taka sér bústað hjá Arsenal eftir margra vikna frí?


mbl.is Ótrúlegur sigur hjá Arsenal - Derby fallið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nektin kennir stjórnvöldum að malbika

Spurning að Reykvíkingar taki þetta kerfi upp á ætluðu vegarstæði Sundabrautar?
mbl.is Nekt skilaði vegabótum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varasamur banki

Ég skil ekki af hverju menn skipta við þennan Eldeyjarbanka, ef hann er svona varasamur?
mbl.is Fékk veiðarfæri í skrúfuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið rými í rassi Madonnu

"Sprautaði Timberlake í rassinn".


Ég fatta ekki hvernig Madonna:

a) Kom Timberlake inn í sprautuna
b) Kom Timberlake úr sprautunni og inn í "Fíatinn", án þess að það sjáist á myndum.


Hún hlýtur að hafa aukið rýmið í rassinum verulega á síðustu misserum. Eða er kannski "Timberlake" ný vítamín tegund eða efni náskylt Botoxi?


mbl.is Sprautaði Timberlake í rassinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undir áhrifum

Lýðheilsulöggan stöðvaði í gær ungt par, sem var á leiðinni heim sín eftir veislu. Vegna gruns um ofneyslu sykurs var tekin blóðprufa og kom þá í ljós, að ökumaður bílsins var með 15% sykurmagn í blóðinu og var samstundis fluttur í fangageymslur, þar sem hann fær að sofa úr sér og nokkra insúlínskammta.


mbl.is Ökumenn undir áhrifum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. mars 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband