Föstudagur, 28. mars 2008
Undur og dásemdir kommúnismans
Þetta hlýtur að koma af stað kommúnískri byltingu víða um heim.
![]() |
Almenningur á Kúbu fær að eiga farsíma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 28. mars 2008
Mikið rétt. Glæpagengi lét myrða Hariri
![]() |
SÞ: Glæpamenn myrtu Hariri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 28. mars 2008
Ét og drekk og ver glaður
Ja, danskir víkingar voru e.t.v. hamingjusamir. En þeir sem flúðu til Íslands hafa nú varla búið við mikla hamingju.
En samt eru Íslendingar einna hamingjusamastir þjóða.
![]() |
Fengu hamingjuna í arf frá víkingunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 28. mars 2008
Brennuvargur handtekinn
Lögreglan í Reykjavíkur hefur staðfest, að maðurinn sem sé í haldi, grunaður um íkveikju í rútu Dalton bræðra, sé enginn annar en Þorlákur Jónsson.
Þorlákur þessi er góðkunningi lögreglunnar og þekktur sem Lukku-Láki í undirheimum Reykjavíkur.
![]() |
Eldur í rútu Dalton hljómsveitarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Aulahúmor | Breytt s.d. kl. 15:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 28. mars 2008
Veginum lokað
Þjóðkirkjuprestar lokuðu í dag sjálfstæða trúfélaginu Veginum í Kópavogi til að mótmæla hækkandi tíðni Vegfarenda.
Talið er að hér sé á ferðinni tilraun biskups og undirsáta hans til að hefta framgang sjálfstæðra vegfarenda í trúarumferðinni.
![]() |
Vegi lokað við Rauðavatn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 28. mars 2008
Yfirgangur og frekja femínista
Já, var það ekki bara. Nú heimta femínistar "jafnrétti" við karla í sundlaugum. Já, þær vilja nú troða berum brjóstum framan í saklausa karlmenn, sem eru auðvitað óviðbúnir svona sendingum.
Þetta er enn eitt dæmið um yfirgang femínista. Nú er kominn tími til að við karlmenn tökum höndum saman og snúumst til varnar. Við getum auðvitað ekki sætt okkur við það, að þurfa að horfa upp á nakin kvennabrjóst í öll mál.
![]() |
Heimilt að synda berbrjósta í Kaupmannahöfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 28. mars 2008
Ömurlegar aðstæður
Ömurlegt að horfa upp á svona rugl viðgangast. En e.t.v. er þetta lýsandi fyrir þær aðstæður, sem t.d. Pólverjar og aðrir útlendingar, ásamt innfæddum láglaunamönnum og öryrkjum, búa við, einkum í Reykjavík.
Í heildina má segja að leigumarkaðurinn í Reykjavík sé allt að því glæpsamlegur. Litlar íbúðir, samþykktar eða ósamþykktar, kosta sjaldan undir 100.000 á mánuði og herbergi, eins og þetta sem Marszalek, bera svimandi leigu.
Er ekki hægt að gera eitthvað í þessu?
![]() |
Kytra leigð á 90.000 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 28. mars 2008
Ertu að Fitna?
Spurning: Athugaðu það bara sjálfur.
http://www.liveleak.com/view?i=7d9_1206624103
![]() |
Umdeild kvikmynd á vefnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)