Einkaþotukaup

Mig langar í eina svona, svipaða og Baugsmenn eiga. Ætli sé hægt að fá svona tæki á VISA raðgreiðslum eða hjá Lýsingu?
mbl.is Einkaþotur aldrei vinsælli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi

Grái fiðringurinn greinilega að taka Spitzer fyrir. Mér skilst reyndar að hann hafi sagt af sér; sá það á skákbloggsíðu Susan Polgar rétt áðan.

En þar sem grái fiðringurinn og skák koma saman má minna á vísuna frægu:


Í tafli lífsins telst ég peð
tapa stundum eða vinn.
En getur skeð ég gangi með
gráa fiðringinn?


mbl.is Ríkisstjóri grunaður um kaup á vændi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fríir smokkar

Eins og ég hef áður sagt væri lang best að dreifa fríum smokkum í Vesturbænum. Ágætt að fækka KRingum aðeins! Heimir, er það ekki.
mbl.is Dreifa 50.000 smokkum til forvarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málið dautt

Fabregas myndi auðvitað skemmta sér vel í sumar, þegar hann væri að komast upp úr unglingaliðinu hjá Barcelona...eða þá í leik með b-liðinu.

Ég efast um að hann hefði fengið eins gott tækifæri hjá Barcelona.
mbl.is Fabregas: Sé ekki eftir að hafa yfirgefið Barcelona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórkostlegir þættir

Ég keypti mér DVD með þessu í London í fyrra eða hittiðfyrra. Á nú allt safnið. Þetta er algjör snilld, óborganlegir þættir: Allo, Allo!


Eru í topp þrjú í sjónvarpsþáttum hjá mér, á eftir Yes MInister / Prime Minister og MASH.


mbl.is Breskt heimstyrjaldargrín selt til Þýskalands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leiðinlegasti bloggari landsins?

Spurning að gera skoðanakönnun.

En annars held ég að þess þurfi ekki. Ég held ég viti hver það er. En hann þykist vera mjög klár og með allt á hreinu. En hann heldur ekki rauðum þræði, er fullur af svívirðingum og dónaskap í garð annarra bloggara.

Þetta er maður sem ég held að ætti að halda sig fjarri almenningi...og helst að láta einhvern sérfræðing skoða sig.


Íslendingar eldast

Skrítið. Ég hef þá kenningu að hver einn og einasti Íslendingur eldist um einn dag á hverjum degi. Wink
mbl.is Íslendingar eldast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æjá, strákar, take a break, plís

Og helst sem lengst.
mbl.is Ísrael og Hamas ræða vopnahlé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég skil þetta ekki!

"Mjög hefur dregið úr flugskeytaárásum herskárra Palestínumanna á Gasasvæðinu yfir landamærin til Ísraels. Frá því á fimmtudag hefur einungis einu til tveimur 15 flugskeytum verið skotið yfir landamærin daglega."


Þetta fer að verða normið, að fréttir á mbl.is séu skrifaðar illa og vitlaust.


En hitt er svo annað mál, að hernaðaraðgerðir Ísraels um daginn virðast hafa hrætt Hamas, amk í bili.
mbl.is Dregur úr flugskeytaárásum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 10. mars 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband