Ástþór þeirra Kananna

Atkvæði út um gluggann í báðum tilvikum.
mbl.is Nader ætlar að bjóða sig fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef Jack Nicholson

á skilið verðlaun fyrir leiðindi, hvað ætti þá Jón Bjarnason að fá?

Fálkaorðuna?


mbl.is Á skilið verðlaun fyrir leiðindi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væri ekki gott að fá svona borgarstjóra?

Maður sem er falinn á bak við grímu og enginn getur skammað öðruvísi?
mbl.is Kalkúnn fulltrúi Íra á Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er stjórnarandstaðan að missa marks?

Skrítið. Jafnan er það þannig, að stjórnarandstöðuflokkar hækka í skoðanakönnunum, a.m.k. séu þeir að standa sig í stjórnarandstöðunni.

En bæði Framsókn og VG tapa fylgi, Framsókn sýnu meira. Nú er svo komið að xB er, skv. þessari könnun, við það að falla út af uppbótarþingmannakerfinu. Hvernig stendur á þessu? Ætli þjóðin sé búin að fá upp í kok af þessu ágæta fólki sem stjórnar Framsókn? Eða eru það stefnumálin sem gera fólkið afhuga flokknum?

Og F-listamenn eru rétt með botnfylli og þurfa að herða taktinn ætli þeir sér upp aftur. Kannski Brúnkugengisránið í Lækjargötu hafi fengi menn til að fá ógeð á Jóni Magg? Eða eru það skoðanir hans? Eða er ástæðanna fyrir óvinsældum F að finna annars staðar?

pappirslaustEn í öllu falli er stjórnarandstaðan að gera í leðurbuxurnar. Jafnvel VG, sem jafnan kemur vel út úr skoðanakönnunum, er ekki alveg að meika það.

En stjórnarandstaðan er a.m.k. búin með pappírinn.
mbl.is Fylgi Sjálfstæðisflokks eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bullshit

TaylorsenasmijesioHann hefur sést glottandi á mynd, beint eftir brotið(til vinstri). Myndband frá atvikinu sýnir að hann átti aldrei séns í boltann en fór engu að síður beint í manninn.

Ég trúi honum ekki. Maðurinn er að ljúgja. Hann ætlaði að fara í manninn, þó vísast hafi hann ekki ætlað að meiða hann svona rosalega.

En svoleiðis á ekki að sjást og ekki að líðast. Ég endurtek því fyrri orð mín, að Taylor eigi að fara í langt, langt bann.
mbl.is Taylor: Enginn ásetningur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eurovision

Jæja, þetta var svosem ágætt. Upphaflega hélt ég með Hóhóhó laginu, en var farinn að fá nóg af showinu í kringum lagið í fjölmiðlum. Líkaði best við sigurlagið, lag Guðmundar Jónssonar, í flutningi Páls Rósinkranz, en einnig köntrí Magga Eiríks.


Mér fannst lag dr. Gunna lélegt Eurovisionlag af einhverjum ástæðum. Kannski finnst mér það bara ekki passa í þetta...eða kannski Eurovision ramminn skakkur. En persónulega hefði ég aldrei kosið þá.


En a.m.k. get ég alveg sætt mig við þetta. En strákar og stelpur í Eurobandinu. Vantar ekki einhvern til að vera ykkur innan handar þarna í Belgrað? Vanan mann? Wink


100_0164Hvað er flottara en að fara í gamla tyrkneska virkið að kvöldi til, það sem stendur á mótum þriggja fljóta, sem koma þar saman af fullu afli? Þetta er eitt af því sem vissulega er fegurra en vorkvöld í Reykjavík.

(Hér er ég með serbneskum skákmanni, Ivan, í virkinu fræga, við fallbyssuna.)
mbl.is Eurobandið fer til Serbíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 24. febrúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband