Chelsea safnar

Ég vil frekar að Chelsea safni atkvæðum en stigum eða heimsklassa leikmönnum.
mbl.is Chelsea safnar atkvæðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vér mótmælum allir

Nú á bara almenningur á Vesturlöndum að mótmæla t.d. dauðarefsingum í Íran, t.d. fyrir að drekka áfengi 4x, mótmæla kúgun og ýmsu því sem finna má þarna suðurfrá.

Og af nógu er að taka, t.d. mætti mótmæla skrípamyndum í írönskum blöðum.
mbl.is Danskir þingmenn hætta við Íransför
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki er ég nú spámannlega vaxinn

Léleg frammistaða Arsenal en glæsilega gert hjá Man Utd. Þeir spiluðu stórkostlega.

Ég hafði reyndar spáð 3-1 fyrir Man Utd, hafði einhvern veginn á tilfinningunni að mínir menn myndu ekki vera með í dag. En þeir eru verri en ég hafði látið mér detta í hug og rugludallurinn Eboue er enn að sanna að það vantar í hann nokkrar blaðsíður.

En deginum er reddað, því Liverpool stóð lengi vel amk jafnfætis Barnsley og stundum gott betur, en þrátt fyrir að hafa kanónurnar flestar inni á vellinum tókst þeim ekki að knýja fram jafntefli, eins og ég hafði spáð (reyndar í gríni), enda er Barnsley sterkara en Havant & Waterlooville.

En jæja, nú er bara að spýta í lófana og ná góðum úrslitum gegn Milan.
mbl.is Man Utd tók Arsenal í kennslustund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

M/s Framsókn

En ætli VGliðar nái að draga Framsókn að landi?


mbl.is Vélarvana flutningaskip dregið til hafnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málið dautt?

Eiginlega vona ég að nú sér þessu Fischer máli lokið og að menn láti kappann hvíla lúin bein þarna við gangstéttina án þess að um mál hans sé rifistí fjölmiðlum og víðar.
mbl.is Minningarathöfn um Bobby Fischer
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður Obama næsti forseti?

Ef Obama fer gegn McCain mun hann vísast vinna, ekki síst þar sem fíflið hann George Bush eldri hefur lýst yfir stuðningi við Macca.

En Obama þarf fyrst að klára Clinton...óvíst hvort það takist, þrátt fyrir allt
mbl.is Fleiri lýsa yfir stuðningi við Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sprenging í Mexíkó

Fulltrúar Hamas og Hizb'Allah hafa þegar kennt Ísraelum um árásina.
mbl.is Sprenging í Mexíkóborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. febrúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband