Ætli RUV liðar færu í verkfall?

Ef svipað myndi gerast hér?
mbl.is Starfsfólk ljósvakamiðla í verkfalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borgarsmokkur?

Vá, New York er aldeilis komið framúr Reykjavík á þróunarbrautinni. Hér höfum við bara KR smokka og erum fullsæmdir af.
mbl.is Opinber borgarsmokkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrar umbúðir

Merkilegar dýrar umbúðir a tarna. Ég hefði getað skilið þetta, svosem, ef notkun á varningnum hefði verið innifalin. Blush
mbl.is Dýr brjóstahaldari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingeyingar framleiða bíla!

Þingeyingar þekkjast oft
og þeirra kindur.
Á því hvað í þeim er lítið loft
og ljúfur vindur.
(Flosi)
mbl.is Bíll sem gengur fyrir lofti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjarstýrðar sáðfrumur!?

Maður spyr, hvort þetta geri það að verkum, að menn geta bara lagt sig heima í sófanum og sent nokkrar með fjarstýringunni yfir til sætu stelpunnar í næsta húsi?
mbl.is Fjarstýrðar sáðfrumur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru handboltadómarar búnir að missa vitið?

http://www.drengsson.net/fram/andri/

Í leik Fram og KA í gær í bikarnum missti einn leikmaður KA skyndilega vitið. Hann ýtti við leikmanni Fram og kýldi hann. Hann fékk að sjálfsögðu rautt spjald í kjölfarið, en það merkilega er, að svo fékk leikmaður FRAM, NB! Einn albesti leikmaður Fram.

Og fyrir hvað?

Jú, hann lét útlending kýla sig niður! Ætli þessir dómarar séu svona ákafir þjóðernissinnar að þeir telji þetta vansæmd við íslenska kynstofninn að láta Slava kýla sig?

Hvaða ástæða önnur gat verið fyrir því að gefa manni rautt spjald fyrir að vera kýldur niður?

Besti þjálfari heims?

Já.


Ekkert skrítið þó stórlið Barcelona vilji fá Arsene Wenger. En nei takk, hann verður áfram hjá Arsenal. Málið dautt.
mbl.is Barcelona vill fá Wenger
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barcelona ræður hreinsitækna

Kemur ekki á óvart. Ekki nóg að safna stjörnum saman, þær þurfa að geta spilað saman.


mbl.is Hreinsunum spáð hjá Barcelona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvítlaukurinn hefur sín áhrif

Skrítið hjá Beckham að vera svona andfúll þegar hann er í public.
mbl.is Féll í yfirlið við koss frá Beckham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 13. febrúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband