Kínverjar herða eftirlitið

Vá, það er aldeilis að Kínverjar ætla nú að herða eftirlitið. Þeir fara bráðum að ná Bandaríkjunum, sem nýlega reyndust vera mesta "eftirlitsríki" heims.
mbl.is Kínverjar herða eftirlit á vefsjónvarpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beckham og Arsenal

Ok, enginn á í raun von á því að Beckham verði lánaður frá LA til Arsenal í nokkra mánuði. En hrikalega yrði það nú gaman, því ég held að leikstíll Arsenal henti Beckham ágætlega. Og akkúrat núna vantar hægri kantmann hjá Arsenal: Eboue í Afríku, etc.


T.d. 2 mánaða eða 3 mánaða lánssamningur gæti hentar báðum vel, Arsenal og Becks.


Og ef svo er, af hverju ekki að láta reyna á viðbrögð LA, sem gætu alveg þegið að losna við að borga Becks amk hluta af þeim rosalegu launum, sem hann fær frá félaginu, jafnvel þegar hann er í fríi!
mbl.is Beckham æfði með Arsenal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ónákvæmni í frétt

Umræddur spítali er ekki skrifaður "sjúkrahús", heldur "geðsjúkrahús". Bara að hafa það á hreinu.
mbl.is Britney flutt á sjúkrahús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitraðar pulsur

Hér fyrir nokkru veiktust nokkrir leikmenn Tottenham á ögurstundu, eftir að hafa borðað pulsurnar á White Hart Lane. Og nú kemur í ljós, að þeir eru ekki einir um það, heldur 600.000 til 1 milljón Breta, þ.e. bæði heimaaðdáendur (og fjölskyldur þeirra, enda taka Spursarar með sér pulsur heim til vina og vandamanna) og þeir áhorfendur, sem fylgja útiliðinu.

Besta leiðin til að losna við þetta vandamál er einfaldlega að jafna White Hart Lane við jörðu og láta Tottenham spila heimaleiki sína í Exeter.

"Að lokum legg ég til að White Hart Lane verði jafnaður við jörðu".
mbl.is Þúsundir Breta veikjast af ælupest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lok, lok og læs??

 "Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt skipstjóra til að greiða 250 þúsund króna sekt fyrir að veiða innan skyndilokunarsvæðis norður af Deild í júní. Kröfu ákæruvaldsins um að veiðarfæri og afli yrðu gerð upptæk var hinsvegar hafnað. "

 

Jahérna, ég er með þrjár spurningar:

 

a) ef þetta var lokað hólf, hvernig komst hann þá inn?
b) og hver opnaði þá fyrir honum?
c) of af hverju drukknaði skipstjórinn ekki, ef hann óð út í sjó án þess að vera á báti?


Ég hef oft heyrt talað um að skip sé að veiðum, eða skip hafi verið tekið að ólöglegum veiðum, en man ekki eftir að skipstjóri hafi verið þarna úti að synda með veiðarfærin með sér og verið gómaður glóðvolgur.


mbl.is Sektaður fyrir veiðar innan lokaðs hólfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég líka

Ég neita líka algjörlega að taka þátt í ástarsenum með Vince Vaughn. En ef hann verður nú rekinn fyrir ömurlega hegðun, skal ég fúslega taka við hlutverki hans, amk þeim þáttum sem hann átti í vandræðum með að sinna sökum andstöðu mótleikkonunnar.

Nú, þar sem ég er svipaður í vexti og Vince, gæti ég líka tekið að mér að vera stunt-double í þeim atriðum sem hér eru til umræðu.

mbl.is Neitar að taka þátt í ástarsenum með Vince Vaughn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heyrðu Tommi

Ég veit ekki hvaða mamma þín kenndi þér um býflugurnar og það allt, en menn geta ekki börn með því að hoppa upp og niður á sófa!

Málið dautt! 


mbl.is Gengur illa að geta barn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skeljungsmótið 2008 hefst 6. janúar -- Skráning hafin

Skeljungsmótið - Skákþing Reykjavíkur 2008 mun hefjast sunnudaginn 6. janúar 2008. Teflt verður, að venju, á sunnudögum kl. 14.00 og miðvikudögum og föstudögum kl. 19.30.

Teflt verður í einum flokki, opnum öllum skákmönnum. Tímamörk eru hefðbundin, eða 90 mínútur á skák, en að auki bætast við 30 sekúndur á leik.


Dagskrá mótsins  

1.  umferð sunnudag      6. janúar  kl. 14-18 

2.  umferð miðvikudag  9. janúar  kl. 19.30-23 

3.  umferð föstudag      11. janúar  kl. 19.30-23 

4.  umferð sunnudag    13. janúar  kl. 14-18 

5.  umferð miðvikudag 16. janúar  kl. 19.30-23 

6.  umferð föstudag      18. janúar  kl. 19.30-23 

7.  umferð sunnudag    20. janúar  kl. 14-18 

8.  umferð miðvikudag 23. janúar  kl. 19.30-23 

9.  umferð föstudag      25. janúar  kl. 19.30-23 


Skákþingið er reiknað til íslenskra og alþjóðlegra skákstiga. 


Skráning fer fram í síma 895-5860 (Ólafur) eða í netföngin  taflfelag@taflfelag.is  og oli.birna@simnet.is


Nokkrir keppendur hafa þegar skráð sig, þeirra á meðal stórmeistarinn Henrik Danielsen og FIDE-meistarinn Sigurður Daði Sigfússon.


Þeir sem hafa munnlega lýst yfir áhuga á þátttöku í Skákþinginu eru vinsamlegast beðnir að staðfesta þátttöku sína með tölvupósti.


Verðlaun verða:

1. sæti: 100.000
2. sæti:   60.000
3. sæti:   40.000


Þátttökugjöld verða : 3.500 krónur fyrir fullorðna / 2.000kr. fyrir grunnskólabörn.


Sigurvegarinn hlýtur jafnframt nafnbótina Skákmeistari Reykjavíkur, sé hann búsettur í Reykjavík eða félagi í reykvísku taflfélagi.


Núverandi skákmeistari Reykjavíkur er Sigurbjörn J. Björnsson.


Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið sunnudaginn 27. janúar og hefst það kl. 14.00. Tefldar verða 2x7 umferðir eftir Monradkerfi.


Þegar eru skráðir:

Henrik Danielsen
Sigurður D. Sigfússon
Þórir Benediktsson
Kristján Örn Elíasson
Paul Frigge
Páll Sigurðsson
Bjarni Jens Kristinsson
Agnar Darri Lárusson
Ingvar Þór Jóhannesson
Hjörvar Steinn Grétarsson
Jóhann H. Ragnarsson
Sverrir Þorgeirsson
Ingvar Ásbjörnsson
Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir
Jón Viktor Gunnarsson
Daði Ómarsson
Matthías Pétursson (með fyrirvara)
Omar Salama
Arnar E. Gunnarsson (með fyrirvara)
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
Sigríður Björg Helgadóttir
Tinna Kristín Finnbogadóttir
Hulda R. Finnbogadóttir
Aron Ingi Óskarsson
Birkir Karl Sigurðsson
Dagur Kjartansson
Hörður Aron Hauksson
Siguringi Sigurjónsson
Guðmundur Kjartansson
Helgi Brynjarsson
Dagur Andri Friðgeirsson
Kristján Eðvarðsson
Páll Andrason
Ólafur Magnússon


LitlaHraun.is

Það hlýtur svo að vera hægt að nýta vefhæfileika þessa manns t.d. með því að halda úti heimasíðu Litla Hrauns.


En svona menn á bara að loka inni og láta Sóley hafa lykilinn. Þá fengi maðurinn ekki einu sinni að gera athugasemdir!
mbl.is Yfirheyrður vegna skapari.com
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Napóli að drukkna í sorpi?

Nú, ekki vissi ég að Tottenham hefði verið að spila þar í Evrópukeppni félagsliða.
mbl.is Napólí drukknar í sorpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Bloggfærslur 4. janúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband