Fimmtudagur, 3. janúar 2008
Úff, ekki líst mér á þetta
Fái hann að spila, þeas.
![]() |
Wenger hyggst hvíla Gallas og Clichy |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 3. janúar 2008
Matargræðgin ber menn ofurliði
![]() |
Ók á sláturhúsið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 3. janúar 2008
Fæðingarhríðir?
En hver er móðirin? Úff, hún hlýtur að hafa látið taka þetta flykki út með keisaraskurði.
![]() |
Ný pláneta finnst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 3. janúar 2008
Var ekki bara ágætt að vera laus við þá?
![]() |
Spjallþættir birtast aftur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 3. janúar 2008
Margt leynist í þokunni
Jafnvel hreindýr.
En hvað var þetta með mbl.og blog.is. Hrundi þetta hjá öllum, eða bara hjá mér?
![]() |
Varað við hreindýrum vegna þoku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 3. janúar 2008
Málið dautt!

Þetta segir allt sem segja þarf. Liverpool er úr leik.
![]() |
Benítez heldur enn í vonina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 3. janúar 2008
Skeljungsmótið hefst 6. janúar - skráning hafin

Teflt verður í einum flokki, opnum öllum skákmönnum. Tímamörk eru hefðbundin, eða 90 mínútur á skák, en að auki bætast við 30 sekúndur á leik.
Dagskrá mótsins
1. umferð sunnudag 6. janúar kl. 14-18
2. umferð miðvikudag 9. janúar kl. 19-23
3. umferð föstudag 11. janúar kl. 19-23
4. umferð sunnudag 13. janúar kl. 14-18
5. umferð miðvikudag 16. janúar kl. 19-23
6. umferð föstudag 18. janúar kl. 19-23
7. umferð sunnudag 20. janúar kl. 14-18
8. umferð miðvikudag 23. janúar kl. 19-23
9. umferð föstudag 25. janúar kl. 19-23
Skákþingið er reiknað til íslenskra og alþjóðlegra skákstiga.
Skráning fer fram í síma 895-5860 (Ólafur) eða í netföngin taflfelag@taflfelag.is og oli.birna@simnet.is
Nokkrir keppendur hafa þegar skráð sig, þeirra á meðal stórmeistarinn Henrik Danielsen, alþjóðlegu meistararnir Jón Viktor Gunnarsson og Arnar E. Gunnarsson og FIDE-meistararnir Sigurður Daði Sigfússon og Ingvar Þór Jóhannesson. Síðan er næsta víst að fleiri bætast í hópinn.
Verðlaun verða:
1. sæti: 100.000
2. sæti: 60.000
3. sæti: 40.000
Þátttökugjöld verða : 3.500 krónur fyrir fullorðna / 2.000 kr. fyrir grunnskólabörn.
Sigurvegarinn hlýtur jafnframt nafnbótina Skákmeistari Reykjavíkur, sé hann búsettur í Reykjavík eða félagi í reykvísku taflfélagi.
Núverandi skákmeistari Reykjavíkur er Sigurbjörn J. Björnsson.
Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið sunnudaginn 27. janúar og hefst það kl. 14.00. Tefldar verða 2x7 umferðir eftir Monradkerfi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 3. janúar 2008
Mér finnst þetta andstyggilegt
Í mínum huga er þetta ekki bara spurning um, að konan stjórni eigin líkama. Hún er komin með annan líkama inni í sér og ég veit ekki til að hún hafi siðferðilegan rétt til að taka hann af lífi.
En ok, sú umræða er stærri en getur farið fram hér.
En hér á í hlut aðferð sem að mínum dómi er andstyggileg og lítilsvirðing við hinn litla líkama, sem býr inni í henni. Þetta er lítilsvirðing við líf. Ef hún virkilega vildi eyða fóstrinu -- og það er heimilt skv. landslögum, hefði hún átt að gera það með skárri hætti, þ.e. á spítala, eins og venjan er.
Ef ég lem einhvern á kjaftinn og segist ráða yfir mínum hnefa, er þá samt ekki að gera öðrum miska? Bara smá pæling.
Það má ekki flengja börnin sín í dag, helst ekki. Það telst ofbeldi. En það má hins vegar drepa þau, þegar þau eru algjörlega varnarlaus. Það telst frelsi.
Æ, ég skil þetta ekki.
![]() |
Eyddi fóstri heima |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 3. janúar 2008
Hvar eru ungir jafnaðarmenn núna?
Og þá er ég ekki bara að tala um þetta mál, heldur einnig annað svipað, sem var meðfylgjandi þessu, sjá hér.
![]() |
Vill rökstuðning ráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)