Sunnudagur, 27. janúar 2008
Vandamál demókrata
Helsta vandamál Demókrataflokksins er, að amk þrír mjög frambærilegir kostir eru í boði: Obama, Clinton og Edwards.
Sjálfur hugnast mér Clinton best...þó ég hafi svo sem ekki gert það að neinum trúarbrögðum að styðja hana frekar en hina og gæti vel skipt um skoðun. En stuðningur minn (sem skiptir engu máli í sjálfu sér) kemur ekki til vegna þess að hún er kona. Það er heldur ekki þrátt fyrir hún sé kona. Ég tel hana einfaldlega hæfasta frambjóðandann, þó vissulega sé hún ekki gallalaus. Og hún mun njóta góðs af Billy, ef hún sigrar. Síðan er flott að hafa sömu ættirnar í þessu: Bush-Clinton-Bush-Clinton Og af þeim er Clinton x2 skárra en Bush x2. En af þeim síðarnefndu er sá yngri skárri en sá eldri. "Read my Lips".
Obama er svona meira óskrifað blað, og þó ekki. Hann virðist mjög frambærilegur kostur líka og virðist njóta þess, og kannski ekki, að vera örlítið hörundsdökkur, og hið sama má segja um ætterni hans, en það vekur deilur meðal meirra. Og millinafn hans, Hussein, gæti fælt suma frá, ekki síst þar sem Kanar láta oft furðulegustu atriði ráða því, hverja þeir kjósa. En hann virðist frambærilegur og myndi ég svosem ekki súta það neitt, þó hann myndi vinna, en ekki Hillary, en þó með því skilyrði að hann komi hingað sem fyrst og fái sér pulsu í Bæjarins beztu.
Ég hef lítið velt Edwards fyrir mér, en mig rámar í að á sínum tíma hafi mér þótt nokkuð í hann spunnið. EN ég man ekki af hverju mér hætti að lítast á gripinn...en af einhv. ástæðu hefur hann dottið niður um sæti. Ég vildi að ég myndi af hverju. Kannski er ég bara þreyttur á því að fá "White, male American" í Hvíta húsið.
En hver svosem þessara muni vinna, er ég handviss um, að Demókratar munu taka yfir Hvíta húsið í næstu forsetakosningum. Þá breytir engu hver vinnur hjá Repúblikönum, flokkseigendamaðurinn Rom...(Romney?), McCain eða Huckabee.
En ég spái því semsagt að Clinton og Obama muni fara saman í Hvíta húsið. Spurningin er, hvort þeirra verður forseti og hvort varaforseti.
![]() |
Obama fær stuðning Kennedys |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 27. janúar 2008
Var hún Marg-grét að ljúgja?
Vissi hún þá kannski alltaf að Ólafur Friðrik væri á spjalli við Sjálfstæðismenn? Og vísast hefur hún lekið því í Dag & Co, eða ...?
Í öllu falli heldur hún trúnað við Rugl-listafólkið og því kæmi mér ekki á óvart þó hún hafi sagt þeim frá þessum "samtölum". Og ef svo var, hvers vegna voru Rugl-listamenn þá svo "hissa" þegar í ljós kom að samkomulag hafði náðst?
En ef hún þagði, til að halda trúnað við F-listann, hvers vegna heldur hún þá ekki trúnað við hann núna?
Ég er alveg hættur að botna í þessu.
![]() |
Ólafur sagði F-lista frá samtölum við sjálfstæðismenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Sunnudagur, 27. janúar 2008
Fokið í flest skjól?
Ja, Suðurnesjamenn lenda í því núna.
En sagt hefur það verið með Suðurnesjamenn, að fast þeir sæki skjólin og sæki þau enn.
Þeim hefur þó vonandi verið óhætt.
![]() |
Fjölmörg útköll vegna foks |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 27. janúar 2008
Gasleki
![]() |
Gasleki í Stokkhólmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 27. janúar 2008
Aha, þess vegna var fluginu aflýst!
Sunnudagur, 27. janúar 2008
Hellisheiðargöng?
Þennan pening mætti taka og gera Öskjuhlíðargöng...eða leggja inn á solid Hellisheiðargöng, sem myndi tengja Suðurlandið, vaxtarbrodd íslensks samfélag, við Reykjavíkursvæðið. Jafnframt myndi þá Selfoss og nágrenni verða í raun beinn hluti af höfuðborgarsvæðinu, en ekki jaðarsvæði eins og nú er.
![]() |
Fóru út af á Hellisheiði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 27. janúar 2008
Olsen, Olsen
En að þessu sinni ætlar Olsen, M-K, að sleppa við vandræðin, enda var hún ekki á staðnum.
En svona er frægðin.
Æ, ætli hún sé virði allra þeirra vandamála sem fylgja?
![]() |
Olsen ekki yfirheyrð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 27. janúar 2008
Ætli það detti ekki bara beint
![]() |
Njósnagervitungl mun hrapa til jarðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |