Davíð Kjartansson er skákmeistari Reykjavíkur 2008

Jæja, síðustu umferð var að ljúka. Skemmtilegu móti lokið.

Og Davíð sigraði stórmeistarann Henrik Danielsen í kvöld og urðu þeir efstir og jafnir, en Henrik býr í Firðinum og er í haukum, svo hann getur ekki orðið Skákmeistari Reykjavikur.

En lokastaðan er hér:

Er búið að leita á Íslandi?

Ja, hér virðast amk vera fölsuð málverk í tonnavís og af hverju ekki stolin líka?
mbl.is Leituðu stolinna listaverka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Burning down the house

Ætli þarna hafi verið á ferðinni brennuvargur sem hafði tapað hressilega í kasínóinu?
mbl.is Eldur í frægu hóteli í Las Vegas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki byrjar það vel

Ég er fylgjandi friðunum á merkilegum byggingum, sérstaklega þeim frá 19. öld.

En ég skil ekki til hvers á að friða þessa skúra við Laugaveg?

Jæja, ekki byrjar það vel, en maður gat svosem sagt sér þetta.
mbl.is Borgin kaupir Laugaveg 4 og 6
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sköfuveturinn mikli

Æjá, maður hefur þurft að skafa af bílnum nánast daglega síðan fyrir jól.

Bíddu, hvað var þetta Global Warming aftur? Átti ekki að hlýna á Íslandi við þetta?

Eða er þetta bara Global Cooling?

 

Ömurlegur vetur þetta árið, sérstaklegaí samanburði við þá síðustu.


mbl.is Hellisheiði enn ófær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Foreldrar loka inni dætur sínar

Og bæjaryfirvöld hefja dreifingu á sveitarstjórnasmokkum.
mbl.is Tommy Lee alsæll á Egilsstöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lengjum helgina

Spurning að hinn nýi borgarstjóri gefi út þá yfirlýsingu, að allt mannlíf í Reykjavík munu liggja niðri rá hádegi í dag og láta loka helstu götum og strætum.

Ágætt að gefa borgarbúum frí í einn dag, rétt til að ná sér eftir atburði gærdagsins.
mbl.is Viðvörun til vegfarenda enn í gildi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óveður í Reykjavík

Æjá, ég asnaðist af stað í morgun.

Ég bý neðst í botnlangagötu og átti nóg með að komast upp brekkuna. En síðan tók við Breiðholtsbraut og Sæbraut í miklum umferðarþunga. En það versta var að taka beygjuna upp frá Sæbraut inn á Miklubraut. Þar sá maður ekkert út og lenti ég utan vegar einu sinni, en komst inn aftur og náði að feta mig á lúsarhraða inn á Miklubraut og síðan á skrifstofuna í Ármúla. Málið dautt.

En það er langt síðan maður hefur átt svona erfitt með að komast leiðar sinnar í Reykjavík.
mbl.is Ekkert ferðaveður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. janúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband