McCain?

Bíddu, eru það ekki frosnar franskar kartöflur?
mbl.is Clinton og McCain líklegust samkvæmt skoðanakönnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ha, á að sleppa þeim úr landi?

Ja, upp á síðkastið hafa menn í farbanni getað labbað inn og út úr landinu eins og þá lysti.

Er verið að reyna að koma þeim úr landi, eða meina menn þetta núna?
mbl.is Óskað eftir farbanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lindsay Lohan í "starfskynningu"

Ja, ef hún heldur áfram, eins og hún hefur hagað sér undanfarið, er alveg eins líklegt að hún komi aftur á þennan stað, en þá í láréttri stöðu.


Hrikalegt að sjá fólk kasta lífi sínu á glæ með þeim hætti, sem frk. Lohan hefur gert.
mbl.is Lindsey Lohan í líkhúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný skýrsla CIA um pólítísk morð á Íslandi

Jájá, Snorri Sturluson var veginn af útsendurum Al-Kaida.

Málið dautt.
mbl.is CIA telur að al-Qaeda beri ábyrgð á morðinu á Bhutto
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lán í óláni

Ekki gott að missa Óla. En nú kemur Einar Holmgeirsson sterkur inn. Hann þorir þó amk að skjóta á markið.

Hver veit nema við skorum einhver mörk utan af velli gegn Slóvökum?
mbl.is Ólafur líklega ekki með í næstu tveimur leikjum á EM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fischer: besti skákmaður allra tíma

Fischer látinn.


Ég efa að nokkurn tíma muni annar eins skákmaður koma fram. Afrek hans voru ótrúleg, snilli hans með eindæmum.


Ég vil minnast hans eins og hann var, skákmanns sem bar af öðrum.


Það mun vísast aldrei koma fram annar eins snillingur.


Au revoir


mbl.is Bobby Fischer látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bobby Fischer látinn

fischerÞetta kemur fram á http://www.visir.is/article/20080118/FRETTIR01/80118030

Hrafninn flýgur með penna á lofti

Í myndinni Hrafninn flýgur segir "Írinn", þe söguhetjan í myndinni, jafnan að penninn sé máttugri en sverðið, sem íslensku víkingarnir höfðu með sér.


Ég veit nú ekki, hvort þetta sé allskostar rétt hjá honum, amk ekki í samhengi víkingaaldar. En í öllu falli hefur Penninn reynst máttugri en margt annað á Írlandi.
mbl.is Penninn í útrás á Írlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að fara ekki eftir óskráðum reglum

"David Miliband, utanríkisráðherra Breta, segir framkomu Rússa gagnvart starfsfólki Breska menningarráðsins (British Council) í Pétursborg og Jekaterinburg sýna þjóðum heims að ekki sé hægt að treysta því að Rússar fari að óskráðum siðareglum í milliríkjasamskipum og að framkoma þeirra í málinu minni mest á aðferðir þeirra á tímum Kalda stríðsins."


Bíddaðeins félagi. Hvernig er hægt að skamma aðila fyrir að fara ekki að óskráðum reglum? Ætli þeir þekki reglurnar, úr því þær eru ekki skráðar?
mbl.is „Ekki hægt að treysta Rússum"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. janúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband