En góðu fréttirnar eru...

a) Þetta getur varla versnað. Leiðin er upp á við héreftir.
b) Íslenska landsliðið í handbolta hefði vísast sigrað það sænska í fótbolta.
c) Óli Stef fær núna þá skipun að SKJÓTA, en ekki senda, sérstaklega þegar hann er í dauðafæri.

Málið dautt.
mbl.is Guðjón: „Spiluðum eins og kjánar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dónaskapur hjá Norðmönnum

Hvað á það að þýða hjá Norðmönnum að setja leik Íslendinga og Svía beint ofaní afmælisveislu Davíðs Oddssonar.


Æjá, stjórnvöld þar eru krat-sósíalísk og hafa sennilega haft áhrif á mótshaldara og beðið þá að setja leikinn á þennan tíma til að dissa Davíð. Vísast að undirlagi hérlendra sósíalista.


En þar sem við getum varla gert innrás í Noreg til að hefna þessar móðgunar við Davíð, er það algjört lágmark að sniðganga norskar vörur næstu vikurnar.

Málið dautt.
mbl.is Fjölmenni í sextugsafmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

5 marka tap

Já, ég spáði fimm marka tapi og það gekk eftir, því miður. Ég var reyndar bjartsýnni í morgun, en þá spáði ég þriggja marka tapi.

Málið er, að við eigum engar stórskyttur. Óli þorir ekki að skjóta á markið og hinir geta það varla, nema undirhanda.

Og með Svensson í markinu er málið dautt. Við áttum aldrei séns.

Ég spáði okkur neðsta sætinu í riðlinum og beinu flugi heim. Ég sé ekkert benda til, að spá mín sé úr korti.

Amk ekki enn sem komið er. En nú verða strákarnir að spýta í lófana og skjóta á markið, því við skorum ekki með því að henda boltanum í Svíana með von um að þeir skori sjálfsmark.


mbl.is Svíar sigruðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýklahernaður Bandaríkjanna

Jæja, dollarinn er sú mynteining, sem hve víðast og mest er notuð.


Spurning hvort CIA laumi ekki t.d. nokkrum sýklum á dollarana sem sendir eru til t.d. Írans eða Rússlands?


Málið dautt.


mbl.is Flensuveirur þrífast dögum saman á peningaseðlum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjör í Þrándheimi

Jæja, fjörið fer að byrja.


Ég þekki nokkra Íslendinga í Svíþjóð og Noregi sem ætla á leikinn. Ekki málið. Og litla systir er þarna með kærastanum.


Þetta verður magnað.


Áfram Ísland.
mbl.is Reiknað er með 500 Íslendingum í Þrándheimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru engir Íslendingar giftir?

"Segir í tilkynningu að þau hafi ákveðið að gifta sig ekki í Bandaríkjunum sem er nauðsynlegt til þess að hjónavígslan teljist lögleg."

Hafa Bandaríkjamenn einkaleyfi á giftingum? Geta menn ekki gift sig löglega í öðrum löndum?
Og hvað með Kana sem gifta sig t.d. á Ítalíu eða í Árbæ?

Hvaða rugl er þetta eiginlega?
mbl.is Stutt hjónabandssæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ellefu hundruð milljónir

króna fóru í bíómiða á síðasta ári.


Ég tók ekki þátt í þessu og eyddi nákvæmlega 0 krónum í bíóferðir.


Og sé ekki eftir krónu sem fór í þetta.
mbl.is Flestir sáu Simpsons en Astrópía skilaði mestu í kassann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Britney og tengslin við Ísland

Já, meikar sens. Fólk slefar yfir vandamálum annarra, ekki síst fræga fólksins, til að þurfa ekki að hugsa um sín eigin.


Minnir svolítið á röflið í krötunum út af ráðningu Þorsteins Davíðssonar til að þurfa ekki að hugsa mikið um mannaráðningar og bitlingadreifingu krataforystunnar.
mbl.is Federline segir vanda Spears eðlilegan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað á að gera við liðsmenn Sea Shepherd?

Málið einfalt. Loka þá inni í fangelsi í Sri Lanka. Málið dautt.
mbl.is Liðsmenn Sea Shepherd enn í haldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. janúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband