Hvað ætli þeim finnist þá um Ástþór?

Þegar hann fer í jólasveinabúninginn og sturtar á sig tómatsósunni?
mbl.is Börn eru hrædd við trúða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ert þú af óþekktu kyni?

"Samtals greindust 1863 einstaklingar með klamydíu á árinu 2007 og er það aukning miðað við árið á undan. Alls greindust 1108 konur með klamydíu og 692 karlar en í 63 tilvikum var kyn óþekkt."

Jæja, þetta segir í fréttinni.

Mig langar til að vita, hverjir eru af óþekktu kyni. Ert þú kannski einn af þeim?
mbl.is 1863 greindust með klamydíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stofnandi Tottenham fundinn

Jahérna, loksins er stofnandi Tottenham fundinn. Þó fyrr hefði verið.
mbl.is Steingerð höfuðkúpa af risa nagdýri rannsökuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Global Cooling?

Ja, a.m.k. miðað við veðrið í Evrópu að undanförnu.


Kannski Al Gore geri núna nýja mynd um umhverfismál og biðji svo Óskar að koma inn!
mbl.is Kaldasti vetur á Grænlandi í tíu ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju?

Af hverju ættu olíuríkin að vilja lækka olíuverð?

Hvað snertir Venesúela og arabaríkin kemur það sér svosem vel að halda verðinu háu af augljósum ástæðum og líka til að veikja efnahagskerfi Bandaríkjanna og Vesturlanda.

Af hverju ættu olíuríkin að vilja lækka olíuverð?
mbl.is Bush vongóður um að OPEC auki olíuframleiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Birta kortleggur pólítíkina

Þar sem Össur er dálítið ráðavilltur í pólítikinni hefur dóttir hans nú kortlagt pólítíkina svo pabbi geti ratað betur um refilstigu stjórnmálanna.


Hann byrjaði rólega en færðist smám saman yfir til vinstri, eins og hann sagði forðum í bráðskemmtilegu viðtali á RUV, í þættinum Á líðandi stundu, sem Ómar Ragnarsson, Sigmundur Ernir og Agnes Bragadóttir stjórnuðu.


Hann var þá stoltur Allaballi, en færðist síðan yfir í Alþýðuflokkinn og síðan í Samfó.  En stundum sér maður ekki betur en að hann sé nokkuð til hægri við miðju. Jafnvel hægra megin við Sjálfstæðisflokkinn.


En gott fyrir hann að dóttirin skuli hafa kortlagt pólítíkina. Því ef Össur virkilega er jafnaðarmaður, ætti hann helst heima í stærsta jafnaðarmannaflokki Íslands, Sjálfstæðisflokknum, en ekki í Kvennalistanum.


Kannski það standi á kortinu hennar Birtu?
mbl.is Dóttir Össurar kortleggur ráðuneytið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. janúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband