Fimmtudagur, 6. september 2007
Stöð 2 dregur bullið til baka
http://www.visir.is/article/20070906/FRETTIR01/70906131
En biðst þó ekki afsökunar. Lélegt. En betra en ekkert þó.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 6. september 2007
Grautfúlt
Roar, lék mig í mát í dag á Skákþingi Íslands eftir að hafa haft gjörunnið tafl. Með sigri hefði ég náð áfanga að alþjóðlegum meistaratitli og verið efstur ásamt Hannesi Hlífari og Stefáni, sem ég fæ á morgun. Sárgrætilegt, eins og maður hafði teflt þetta vel.
Ég vitna í Sigurbjörn Björnsson: "Skák er ömurleg".
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fimmtudagur, 6. september 2007
Undrandi á þessu?
![]() |
Shevchenko undrandi á Mourinho |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 6. september 2007
Wenger heldur áfram
Já, þetta kom áðan á www.soccernet.com. Moggamenn eiga þakkir skildar fyrir að fylgjast svona vel með þessari frábæru fótboltasíðu.
Og ég er ánægður með að hafa kallinn áfram, það segir sig sjálft.
Nú bíð ég bara eftir fréttum á Stöð 2: Wenger rekinn! En AW ætti þó að sleppa. Hann hefur ekki verið að gagnrýna fréttastjórann neitt upp á síðkastið!
![]() |
Wenger samþykkir að gera nýjan þriggja ára samning |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 6. september 2007
Fréttastjórinn hefnir sín: Skamm Denni!
Nú, jæja, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, forseti Skáksambands Íslands, ku hafa skrifað grein, þar sem hún var síður en svo ánægð með, að Steingrímur Ólafsson skuli hafa rekið fréttakonu úr starfi.
Fréttastjórinn svarar nú fyrir sig, með því að ráðast á Skáksambandið, þar sem Lilja er í forystu, með lygum og óhróðri.
Í fréttum Stöðvar 2 í gær segir, að í karlaflokki séu mun hærri verðlaun en í kvennaflokki, þeas Landsliðsflokki beggja kynja. Haha, þarna ætlaði Denni að ná sér niðri á femínistaforseta Skáksambandsins. En vopnin snerust.
Það er enginn karlaflokkur til, heldur Opinn flokkur, enda er sterkasta skákkona landsins þátttakandi í Landsliðsflokki og ég keppti einmitt við hana í gær, og myndatökumaður Stöðvar 2 tók myndir af því!
Í öðru lagi, þá er styrkleiki skákmanna mældur með skákstigum. Því miður eru konur stigalágar og hefði þessi eina kona í Landsliðsflokki ekki komist inn, nema af því að henni var boðið sérstaklega. Það er einfaldlega himinhrópandi styrkleikamunur á körlum og konum í skákinni hér á Íslandi, og það er staðreynd. Og í Landsliðsflokki kvenna eru jafnvel byrjendur með, stúlkur sem kunna afar lítið fyrir sér, meðan í Opnum flokki eru flestir af sterkustu skákmönnum landsins. Og hér er ekki hægt að bera við annars konar líkamsburðum eins og t.d. í íþróttum.
Því eru hærri verðlaun í Landsliðsflokki "karla" en "kvenna".
Þar fyrir utan er Skáksamband Íslands ein feminiskustu samtök landsins í dag. Meiri hluti stjórnar er skipaður konum og þeim er miskunnarlaust veittur forgangur .... þ.e. jákvæð mismunun, eins og það er kallað, enda hafa konur ekki verið mikið fyrir keppnistaflmennsku og eitthvað þarf að gera til að auka áhuga kvenna.
Hvað gerir Stöð 2 næst? Kallar femínistafélag Íslands kannski karlrembusamtök?
En svona ófagleg vinnubrögð, eins og Stöð 2 sýndi þarna (en þessu bulli var sem betur fer hent út af www.visi.is (en eftir að allskonar kellingar ruku upp til handa og fóta í hneykslan!!!)), en nú á Stöð 2 að biðjast afsökunar og birta leiðréttingu, og Denni á að hunskast burtu. Hann á greinilega ekkert erindi í þetta jobb...úr því hann ætlar að misnota stöðu sína til að ráðast gegn þeim, sem gagnrýna hann -- nema hann hafi ekki stjórnað þessu, og þá biðst ég forláts, en hann ber samt ábyrgð á þessu rugli.
En hann getur auðvitað beðist afsökunar En hitt er svo annað mál, að ég er eiginlega feginn að losna við umræddan fréttamann af skjánum. Ég var amk ekki að fíla hana sem fréttamann, og hef ekkert út á það að setja hjá Denna... hafi faglegar ástæður legið að baki.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Fimmtudagur, 6. september 2007
Góður gæi
![]() |
Thompson tilkynnir framboð sitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)