Miðvikudagur, 5. september 2007
Eru menn á Stöð 2 tómir fávitar?
Skv fréttum Stöðvar 2 í kvöld:
Er svarið já. Það er lágmark að hafa grunnstaðreyndir málsins á hreinu (það sem snertir skákina).
En sem betur fer var þessu bulli hent út af visi.is, eftir að menn, sem vissu eitthvað um málið, hröktu þennan dæmalausa óhróður og bull. Nú skal Stöð 2 biðjast afsökunar og/eða reka það fífl, sem þetta skrifaði, úr starfi. Svoleiðis maður er ekki starfi sínu vaxinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 5. september 2007
Sætasta stelpan á ballinu
Jæja, þetta var þá rétt hjá Geir. Karlar vilja fallegustu stelpuna á ballinu, en hitt er ljóst, að þeim tekst ekki alltaf vel upp hvað það snertir.
Annars held ég að þetta sé kannski ekki alveg rétt. Karlar vilja held ég frekar konur eins og þá, sem ég hitti nýlega: gullfallega og með frábæran karakter.
Ég vil svo nota tækifærið og óska vini vorum Birni Þorfinnssyni frá Löngumýri til hamingju og Þorfinni föður hans þingmannssyni með hamingju með tengdadótturina.
En þeir, sem þekkja ekki Björn Þorfinnsson, þá er hann bróðirinn sem skipulagði þetta fyrir litla bróður:
En þessi gjörningur er þó dæmi um, að konur vilja kannski frekar staurblanka, bráðskemmtilega og menn með gott hjarta, en leiðindagaura þó þeir séu með 2 millur á mánuði.
![]() |
Karlar vilja fegurð en konur leita ríkidæmis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 5. september 2007
Maggi Kja í útreiðartúr
![]() |
Maggi Kjartans ríður á vaðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 5. september 2007
Hveiti hækkar
Jæja, það eru blendnar tilfinningar hjá mér í þessu. Mér ofbýður matarverð á Íslandi og þetta bætir ekki úr skák.
En á hinn bóginn er ágætt að hafa þetta kolvetnasull dýrt, eins og hverja aðra lúxusvöru.
![]() |
Hveitiverð hækkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)