Só far só gúdd

29. leikir aftur...kóngur út á borði...mát eða liðstap. Solid. Ubersáttur.

Skákin...og aðrar skákir frá Íslandsmótinu eru hér í beinni.

Bergzgulur


Muppet

Þetta er tóm lýgi. Ég náði sambandi við Díönu í síðustu viku, með milligöngu klósettskálarinnar minnar, og sagðist hún að vísu ekki hafa notað þetta klósett mitt, og baðst afsökunar á því. En hún sagðist vera áhugasöm um, að Ingvar Sigurðsson myndi leika sig, ef gerð yrði kvikmynd um líf sitt.

 

 


mbl.is Breskur miðill: Díana vill að Paltrow leiki sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú hitnar í kolunum!

KRingarArgggg, og við sunnanmenn fáum bara rigningu og aftur rigningu. Greinilegt að veðrið fer ekki í landshlutagreiningarálit. Óþolandi að haustveðrið skuli mismuna Íslendingum svona.


Ég krefst þess hérmeð, að jafnréttisráð setji sérstaka nefnd til að kanna málið og koma fram með tillögur til úrbóta. Þetta gengur auðvitað ekki lengur.


En það góða við rigningarveðrið hér undanfarið er, að göngur eins og þær, sem sjást á myndinni frá Don Tomasino, geta vart farið fram (eða farið KR) :) En hvað myndi Stebbi ágætisdrengur, sem sést þarna framarlega með skegghýjung, þurfa að hanga heima.


mbl.is Hitinn í 22 gráður á Norðausturlandi í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt

Ég sá síðari hálfleikinn af leiknum og fannst Fjölnir spila mjög skemmtilega. Alltaf gaman þegar "smálið" velgja  hinum "stóru" undir uggum.


En hvernig er það? Geta lánsmenn Fjölnis frá FH spilað í bikarúrslitaleiknum?


mbl.is Fjölnir úr 1. deild í bikarúrslitin gegn FH
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. september 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband