Sunnudagur, 30. september 2007
Hvar var Stebbi?
![]() |
Hollenskt herskip í kurteisisheimsókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 30. september 2007
Hamas og Fatah
Jafnframt er ljóst, að margir vilja að Hamas hætti að útbreiða fagnaðarerindi sitt til Sderot og annarra bæja í Ísrael, af ótta við hefndaraðgerðir.
En a.m.k. virðist Hamas ætla að komast upp með þetta. Fatah er greinilega búin að missa öll völd á því svæði.
Og ofsatrúargengið stjórnar öllu. En gaman.
![]() |
Þekktur félagi Fatah hreyfingarinnar handtekinn á Gasa-svæðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 30. september 2007
En hvað með Ísland?
Mig grunar að engir Austur-Þjóðverjar hafi njósnað fyrir Ísland heima fyrir, en spurningin en, hversu margir Íslendingar hafi í raun verið á skrám Stasi?
En hitt er svo annað mál, að jafnvel þótt einhverjir Stasi náungar hafi verið hér, hafa þeir vísast ekki gert mikið gagn fyrir A-Þýskaland beinlínis, nema e.t.v. með áróðri gegn USA og Vesturlöndum.
En það var reyndar nóg af slíkum, og er enn, hér á landi og Stasi-menn hafa e.t.v. getað sparað sér peninginn, því slíkt vildu margir, og vilja enn, gera ókeypis.
![]() |
Þúsundir Austur-Þjóðverja njósnuðu fyrir Vestur-Þýskaland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 30. september 2007
Bestur
Anand hefur verið uppáhalds skákmaðurinn minn í mörg herrans ár. Það breytist ekki nú.
Í mínum huga er hann einfaldlega bestur. Málið er ekki flóknara en það.
Ég held að skákheimurinn allur fagni því, að það var Anand sem vann þetta mót og varð heimsmeistari. Hann er verðugur heimsmeistari!
Go Vishy!
![]() |
Anand segist njóta þess að vera heimsmeistari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 30. september 2007
Af hverju erum við svona ruglaðir?
Lítil dæmisaga (sem Kokkurinn sendi mér í gærkvöldi)
Íslenskt og japanskt fyrirtæki ákváðu að keppa í róðri á áttæringi.Liðsmenn frá báðum fyrirtækjum æfðu stíft og voru í toppformi þegar að sjálfri keppninni kom. Japanirnir urðu 1 km á undan íslenska liðinu.Eftir útreiðina var mórallinn að sjálfsögðu heldur slæmur í íslenska fyrirtækinu og yfirstjórnin ákvað að fyrirtækið yrði að vinna keppnina að ári.
Var settur á fót vinnuhópur til að skoða vandamálið.Eftir heilmiklar pælingar komst vinnuhópurinn að því að Japanirnir létu 7 menn róa en einn stýra. Í íslenska liðinu var það einn sem réri og sjö sem stjórnuðu. Vegna þessarar miklu krísu afréð yfirstjórn íslenska fyrirtækisins að fá ráðgjafarfyrirtæki til að kanna strúktur íslenska liðsins og gera nýtt skipurit ef á þyrfti að halda.
Eftir margra mánaða vinnu komust stjónunarfræðingarnir að því að í íslenska bátnum væru það of margir sem stjórnuðu en of fáir sem réru. Með hliðsjón af skýrslu sérfræðinganna var strax ráðist í skipulagsbreytingar. Í stað þess að hafa sjö stýrimenn, einn áramann voru nú hafði fjórir stýrimenn, tveir yfirstýrimenn, einn leiðtogi stýrimanna og einn áramaður. Að auki var áramaðurinn motiveraður" samkvæmt meginreglunni: Að breikka starfssvið starfsmanna og veita þeim meiri ábyrgð".
Næstu keppni unnu Japanirnir með 2 km forskoti. Íslenska fyrirtækið rak að sjálfsögðu áramanninn með tilliti til lélegrar frammistöðu, en greiddi bónus til stjórnarinnar vegna þeirrar miklu vinnu sem hún hafði innt af hendi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)