Mánudagur, 6. ágúst 2007
Evrópumót íslensku hænunnar
Jæja, þá er það hafið, einu sinni enn, Evrópumót íslensku hænunnar. Það fer að þessu sinni fram á eynni Rhodos. Um 40 íslenskir bændur eru komnir þangað með uppáhalds hænurnar sínar til að etja kappi við erlenda bændur, sem hafa keypt íslenskar hænur til sín og ræktað þær á heimaslóðum.
Keppt verður í fjórum flokkum:
1. Fjöldi eggja á sólarhring
2. Stærð eggja að meðaltali
3. Fegurð, snyrtimennska
4. Hanaprófið: hvaða hænu ákveðinn graðhani líst best á.
Landsliðseinvaldur Íslands, Hans Hansson, segir bæði lið og hænur vera í alveg galandi stuði og allir bíði spenntur eftir niðurstöðunum.
![]() |
Heimsmeistaramót íslenska hestsins hafið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 6. ágúst 2007
Hneyksli! Hvílíkt og annað eins
Ég hef verið að leika mér að því undanfarið, að prófa mig áfram í samnotkun texta og undirtexta hér á blogginu. Og jafnvel blandað saman samspili texta, undirtexta og grafíkur.
Satt best að segja er ég nokkuð sáttur með útkomuna. Til dæmis virðist þessi pistill hafa gengið ágætlega.
Þar segir: Áfram KR! í titli. Menn gætu því haldið, af því að lesa titilinn einan, að ég væri KRingur (þ.e. þeir, sem ekki hafa lesið bloggið mitt undanfarið!), en síðan kom textinn og af honum mátti ráða, að ég væri að "dissa" frammistöðu KRinga í sumar. Og meðfylgjandi mynd sýndi síðan og sannaði, að ég var enn einu sinni að gera smá grín í KRingunum, sem hafa á stundum ekki tekið því vel upp.
En hverju á að trúa, texta eða mynd? Ég man í Yes Minister, að sir Humphrey sagði svo, að best væri að setja erfiðasta orðið í titilinn (á skýrslunni), en fjalla síðan sem minnst um það í sjálfum textanum. T.d. voru skýrslurnar frá honum jafnan í andstöðu við vilja ráðherrans, sem las aðeins útdráttinn og titilinn, en mátti ekki vera að því að lesa allt frá orði til orðs.
Ég hefði getað skrifað langan og hlutlausan pistil um KR og sögu félagsins, og síðan sett það, sem ég vildi segja og kom fram í ofanlinkaðri grein, einhvers staðar inn í textann. Þá hefði ég getað falið boðskapinn, látið hinn eiginlega boðskap drukkna í tómri endaleysu. En þá hefði enginn tekið eftir honum, býst ég við, ekki nema svallhörðustu KRingar.
Málið er, að textaskrif á vefnum lúta ákveðnum lögmálum, sem eru ólík þeim, sem ríkja t.d. í prentuðu máli, þó að vísu sé ákveðinn samhljómur milli dagblaða og bloggsíðna, á sumum sviðum a.m.k.
Og þá virðist titilinn skipta meira máli en hinn eiginlegi texti.
En það fer síðan eftir myndavali, hvernig menn túlka boðskapinn, því augu lesenda sjá alltaf fyrst grafíkina, myndina eða annað myndrænt efni, en textann á eftir. Því sáu allir um leið, í ofanlinkaðri grein, að ég var að djóka í KRingunum aðeins. Engu breytti þótt staðið hefði í titlinum Áfram KR.
En það má þó ekki vera svo, þegar um er að ræða alvarlegar síður, að myndin beri textann ofurliði. Vefurinn snýst um að miðla texta, fyrst og fremst. Mér skilst að latneska orðið yfir "vef" sé "textus", svo það ætti að segja eitthvað.
Því á myndin að styðja við textann, draga athygli að boðskapnum (sbr. t.d. hér), en ekki vera í mótsögn við hann, eins og hefur verið í þessari grein. Simpsons og Gallarnir tveir hafa ekkert með umræðuefnið að gera, en teiknimyndarfígúrur þessar eru þess eðlis, að þeir draga til sín augu lesenda, sem annars hefðu vísast fyrir löngu gefist upp á að lesa þessa rollu, því veftexti á að vera stuttur, vel skipulagður og hnitmitaður. Ég er ekki svo viss um, að slíkt hafi verið raunin hér, enda var það í raun ekki tilgangurinn, heldur að athuga hvort menn nenni að lesa svona langan texta um efni, sem þeir hafa vísast ekki mikinn áhuga á, hugsanlega til að komast á snoðir um, hvaða hneyksli ég var að vísa til í titli þessa stutta pistils.
En ef þú hefur lesið alla leið hingað niður máttu gjarnan kvitta í athugasemd. Mig dauðlangar að vita hvernig þetta gekk! Og helst, ef einhver getur lesið úr, hver "undirtextinn" var í raun...hvað var ég að reyna að segja í þessum pistli?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 6. ágúst 2007
Áfram KR!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 6. ágúst 2007
Komið að Chelsea
Ok, Chelsea átti við meiðsli Cechs og Coles að stríða á síðasta ári en síðan bara smámeiðsli, í aðalatriðum amk. En nú þarf liðið að reyna, það sem hin toppliðin hafa þurft að berjast við, amk mínir menn í Arsenal, að lykilmenn séu meiddir langtímum saman.
Hvað ætli Mourinho geri núna? Nú reynir virkilega á kallinn.
![]() |
Níu leikmenn Chelsea á sjúkralistanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 6. ágúst 2007
Verslunarmannahelgin liðin
Jæja, nú fara Reykvíkingar og nærsveitarmenn að búa sig ti heimferðar. Nú verður, að venju, bíll við bíl frá Rauðavatni til Bláfjalla annars vegar, og Mosfellsbæjar til Hvalfjarðargangna.
Eða ekki? Mér sýnist borgin vera ekki svo ólík því sem gerist á venjulegri sumarhelgi. Kannski hafa sífellt fleiri fattað snilldina í, að vera bara heima og sleikja sólina?
Ég fór oft út úr bænum um þessa helgi í gamla daga meðan ég var unglingur. Ég held ég hafi að mestu hætt því um tvítugt. Fór reyndar í einskonar vatnsútilegu 1998, en ekkert síðan. Stundum var ég að vinna, en oftast slakaði ég bara á heima.
Svo var raunin núna. Ég sat í mestu makindum heima fyrir þessa helgi. Eyddi reyndar töluverðum tíma á skrifstofunni -- ekki beinlínis við hefðbundna vinnu, heldur við að skrifa nokkrar greinar, sem eru komnar í tímahrak. Síðan var ég að dúlla mér við ýmislegt, sem setur hefur á hakanum, taka til og svoleiðis.
Ég tók líka til í tölvunni. Henti ýmsum fælum, sem ég þurfti ekki á að halda eða átti kannski í tveimur eða fleiri eintökum. Það voru einkum skákfælar, sem nóg er að eiga í einu eintaki og síðan í bakkupi á "flakkaranum". Jafnframt raðaði ég fælum upp, en suma átti ég bara í "ýmislegt" hrúgunni. Ég þoli ekki skipulagsleysi, jafnvel í tölvunni. Allt þarf að vera á sínum stað, skipulagt og rétt uppsett.
Jæja, skák og fótbolti.
Mínir menn í Arsenal hafa nú unnið tvö sterk alþjóðamót á einni viku. Fyrst sigraði liðið, sem var án margra fastamanna, Emirates mótið á heimavelli, en þar sigraði liðið í báðum leikjum sínum, annars vegar við Paris St. Germain og síðan Inter Milano. Þá heyrðist ekki í Pöndunni, helsta aðdáanda Inter á Íslandi, en hann reis strax upp í stolti þegar Inter sigraði Man Utd auðveldlega nokkrum dögum síðar. Síðan sigraði Arsenal á Amsterdammótinu,með því að sigra Lazio og Ajax, Og enn vantaði fastamenn í liðið, sem þegar er meira eða minna skipað afar ungum leikmönnum.
Ég horfði á Arsenal - Ajax. Sá leikur var ekkert sérlega skemmtilegur, amk ekki miðað við að þar fara tvö skemmtileg sóknarlið. En hann var þó allt annað líf en hinn ömurlegi leikur Chelsea-Man Utd. Manchester spilaði með Rooney einan frammi, en Chelsea byrjaði leikinn án framherja, lá í vörn og beitti skyndisóknum. Man Utd spilar að jafnaði skemmtilegan bolta, en Chelsea er eitt leiðinlegasta lið Englands og þótt víðar væri leitað. Þarf vísast að fara alla leið til Ítalíu til að sjá önnur eins leiðindi (eða til Bolton!)
Skákin. Héðinn Steingrímsson varð stórmeistari í gær. Hann er mjög sterkur og var það aðeins tímaspursmál, hvenær hann næði að klára þetta. Hann tók nú þrjá stórmeistaraáfanga (þ.e. allan kvótann) á þremur mótum í röð. Glæsilega gert.
Unglingalandsliðið u-16 fór austur til Singapore fyrir helgi á ól-mót u-16 ára. Þetta er sama mót og Íslendingar unnu eftirminnilega 1995, öllum að óvörum. Liðið nú er skipað eftirtöldum skákmönnum:
1. Sverrir Þorgeirsson (Haukum)
2. Ingvar Ásbjörnsson (Fjölni)
3. Daði Ómarsson (TR)
4. Helgi Brynjarsson (Helli)
1v. Matthías Pétursson (TR).
Í liðið vantar reyndar Hjörvar Stein Grétarsson, sterkasta ungling landsins. Hann er nú að taka sér kærkomið frí strákurinn, eftir rosalega mikla taflmennsku síðustu mánuði. En hann kemur sterkur inn á Skákþing Íslands landsliðsflokk í lok ágúst og síðan á HM og EM unglinga í vetur, ásamt öðrum minni mótum.
Strákar þessir eru allir mjög efnilegir. Þeirra stærsta vandamál er skortur á skilningi og kunnáttu í byrjunum, og það, að kunna ekki að stúdera nógu vel upp á eigin spýtur. Þessi vandamál hafa hrjáð ísl. unglinga sl. rúmlega áratug, en vonandi stendur það til bóta.
Ég fékk það hlutverk í sumarbyrjun að ráðast á þessa veikleika strákanna og reyna að bæta úr. Held ég að það hafi tekist vel, en skv. fréttum á www.skak.is eru strákarnir orðnir mjög ákafir að stúdera, eitthvað sem ku hafa vantað töluvert áður. Þeir hafa nú almennileg skákforrit til notkunar og grundvallarþekkingu í að nota þau. Held ég að nú muni þeir verða enn öflugri en áður, þegar búið er að lappa upp á stærsta veikleika þeirra. En hins vegar eru þeir mjög sterkir í einföldu miðtafli og endatafli.
Strákarnir unnu Kínverja (Taipei) í gær 3-1, og hefðu getað unnið stærra, en Daði Ómars vildi ekki sætta sig við jafntefli go tapaði. Slíkt þekkir maður sjálfur alltof vel.En hann hlýtur að koma til baka strákurinn. Þetta gengur bara betur næst.
En jæja, kominn tími til að hita sér morgunkaffið hér á skrifstofunni. Adios.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)