Lélegur leikur, lélegt lið, lélegur þjálfari

En kannski ættum við að skora á Lesotho í landsleik. Þá gætum við vonandi slysast til að vinna.
mbl.is Eyjólfur:„Mikil samkeppni um að komast í landsliðið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sagan endalausa

Og flestum er skítsama. Þau hætta og byrja saman einu sinni í mánuði og blöðin keppast um að birta af þeim sögur.


En ágætis PR-stunt hjá þeim tveimur. Með þessu eru þau alltaf í fréttum og verða áfram celebrity. LJóta kjaftæðið þetta allt og blöðin lepja þetta rugl upp.


mbl.is Kate og Pete saman á ný?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bill Murray í Svíþjóð

Murray hefur góðar afsakanir fyrir þessu. Það, að vera staddur í Svíþjóð, er nægileg ástæða hverjum sem er til að lina þjáninguna með því að skvetta aðeins í sig.


Sænska löggan verður einfaldlega að hafa það í huga. Og ekki bætir úr skák: "...horfa á golfmót". Úff, ég er mest hissa á að hann skuli enn vera standandi.


mbl.is Bill Murray gripinn drukkinn á golfbíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenska landsliðið og Tyrannosaurus Rex

"Risaeðlan Tyrannosaurus rex hefði getað stungið knattspyrnumann af ef marka má niðurstöður tölvulíkans sem var notað til þess að áætla hlaupahraða risaeðla."

 

Í síðustu landsleikjum kom í ljós, að flest dýr gætu stungið af íslenska landsliðsmenn í fótbolta, en þeir eiga, af einhverjum ástæðum, erfiðara með að hreyfa sig þegar þeir spila fyrir Ísland en félagslið sín, þ.e. fái þeir að spila fyrir félagslið sín að staðaldri.


Spurning að fá eins og eina eðli lánaða úr Jurassic Park og setja á hægri kantinn í landsliðinu?
 


mbl.is Tyrannosaurus rex hefði getað stungið knattspyrnumann af
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mogginn vs. Fréttablaðið - lítil saga!

Móðir mín verður sextug eftir nokkra daga. Hún ætlaði að tilkynna það í blöðunum, þetta "árnað heilla" dæmi.


Og sjá!


Hún mætti með myndina og helstu upplýsingar á Fréttablaðið og Moggann. Jújú, hvorir um sig vildu gjarnan taka við myndinni og textanum til birtingar. Nema hvað Mogginn rukkaði ekki krónu fyrir þetta, meðan Fréttablaðið heimtaði tæpar 10.000 krónur.


Halló!


Þegar Fréttablaðið kom í morgun, fór það beint í tunnuna. En ég las Moggann.


"Tæknileg mistök" apótekanna

Og hvað heitir það þá, þegar apótek smyrja hressilega ofan á innflutt lyf? Tæknileg mistök, eða bara "eðlileg álagning".


Hvað eru mistök í apótekunum?

1. Verðið.


Og ekki bara á lyfjum. Keypti mér ástralskt krem um daginn í verslun í Kringlunni, þetta sem er svo gott fyrir húðina, unnið úr trákvoðu og einhverju svoleiðis. Það kostaði 400 krónur í einni búðinni þar. Síðan átti ég erindi í Lyf og heilsu; þar kostaði sama system um 1.500 krónur!!!

 


mbl.is Mismunandi hvað apótekin telja mistök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. ágúst 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband