Sunnudagur, 8. júlí 2007
3.umferð
Jæja, fyrst uppfærsla frá 2. umferð. Hannesi varð það á, að rugla saman tímamörkum í a- og b-flokki, og hélt því að hann fengi viðbótartíma eftir 40 leiki. En svo gilti aðeins um b-flokkinn. Agalegt að lenda í svona. Hann féll semsagt á tíma.
Update frá Robba. Kasparov sýndi af sér dónaskap, þegar RObbi vann hann í morgun. Hann rauk frá borðinu, tók ekki í hendina á Robba, raðaði ekki upp og hreytti einhverju út úr sér. Fífl. Þessi maður fær greinilega aldrei boð á mót á´Islandi. Annars var þetta snilld. Eins og menn vita hafði Robbi nú samræmt skáknafn sitt og löglegt nafn, en hann, sem hefur teflt undir Róbert Harðarson frá upphafi, heitir í raun Róbert Lagerman og teflir undir því núna. Og þegar Kasparov ætlaði að stúdera fyrir Robba, fann hann engan Lagerman í beisnum, nema nýlegar skákir og var ekki mjög pleased.
Nú, það verður að segjast að Íslendingar voru fjarri sínu besta í dag og flestir hálf meðvitundarlausir, þe í þriðju umferðinni. Héðinn var með hartnær unnið, að okkur fannst amk, en skákin endaði með jafntefli.
Rúnar Berg gerði jafntefli við Pocket Fritz, en vinur andstæðings hans stóð nær allan tímann yfir skákinni. RB fannst þetta óþægilegt, ekki síst þar sem þeir fóru síðan saman út og afsíðis, eins og þeir væru að ræða skákina. Hann kvartaði við skákstjóra. Þegar ég skrapp út að fá mér ferskt loft úr mollukennda salnum sá ég vininn vera með Pocket Fritz (eða svipað apparat) að leika sér og fór síðan beint inn að tala við vin sinn. Ég kvartaði við skákstjóra og það tvisvar. En ég held að þeir hafi ekkert gert. Algjör muppet. En greinilegt er, að náungi þessi tefldi mun verr þegar ég laumaðist á eftir þeim út og stóð rétt hjá og þóttist vera að horfa út í loftið. En niðurstaðan jafntefli. En vonandi munu skákstjórarnir góma kauða redhanded, þó ekki sé nema síðar.
Annars tefldi RB þetta ágætlega.
Nú, við hinir vorum allir meðvitundarlausir í byrjunni. Robbi og Hannes sögðust báðir vera gjörsamlega meðvitundarlausir, eftir erfiðar skákir fyrr um morguninn. Hannes vann samt, enda mótherjinn ekki sérlega sterkur, sagði hann, þrátt fyrir að tefla illa. EN Robbi tapaði.
Hjörvar var juðaður út af borðinu, eins og í 1. umferð. Þreytandi Hunsbragð, sem hvítur laumaði á strákinn, sem varðist þó ágætlega.
Ég hafði verið búinn snemma, en eytt mestum frítímanum í einvígi við Svíann og mætti á skákstað með bullandi hita og gjörsamlega lost eftir að hafa ekki getað borðað neitt nema eina súpuskál og eina jógúrt sl. 2 daga. Enda var ég gjörsamlega týndur fyrstu leikina, enda lak af mér svitinn og þurfti að þurrka af borðinu! Ég laumaðist síðan fram, þegar ég var kominn með hartnær tapað eftir innan við 10 leiki (held ég) og laumaði í mig einni parkódín forte. Smám saman lagaðist ég í hausnum og líkaminn stabíliseraðist. Jafnframt náði ég að finna bestu leikina, held ég, í mjög erfiðri vörn og rétta úr kútnum, þrátt fyrir að þessi gaukur hefði teflt mjög vel og jafnan fundið þá leiki, sem ég vildi síst fá á mig.
En síðan þegar ég hafði stöðvað sóknina réðst á hann og skildi kónginn minn eftir á miðborðinu á berangri með tvo hróka og drottningu við það að fara all in á hann. En með snyrtilegri "Hróksfórn" náði ég að skáka hann til og vinna síðan hrókinn til baka. Hann gafst þá upp, enda með koltapað endatafl. Sá var fúll.
Jæja, 3-3 í dag. Jæja, gat verið verra, en hefði átt að vera betra.
Og fyrir ónefnda íslenska skákáhugamenn, set ég með mynd af Fionu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 8. júlí 2007
Robbi vann Kasparov
þ.e. hinn sterka alþjóðlega meistara (held ég), Sergei Kasparov, og það með svörtu. Héðinn vann auðveldlega, býst ég við eftir byrjunina, Hjörvar vann (vísast auðveldlega líka), ég vann með Vodafone gambítnum, en Hannes og Rúnar Berg töpuðu.
Ergo: 4-2 fyrir Ísland í dag.
Röðun er komin, sjá hér. Ég fæ local gaur, sem vann alþjóðlega meistarann Fred Berend í fyrstu umferð með hvítu. Og já, ég fæ svart. Nú þarf að bretta upp ermarnar!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 8. júlí 2007
Ótrúleg steypa
1. Hello borgar 2 millur dollara fyrir myndir frá brúðkaupi. Það segir meira til um lesendahópinn en brúðhjónin, sem fá þarna "easy money" og spara sér rándýran hirðljósmyndara.
2. Það segir líka margt um fólk, að stór hópur skuli safnast saman til að sjá ókunnugt fólk gifta sig, bara af því að hér er um frægt fólk að ræða.
Erum við ekki bara föst í einhverjum sýndarveruleika, þar sem heilbrigð lífsgildi eru á undanhaldi og svona cyperdæmi er tekið við? Allt sem er raunverulegt er hulið, en þeir sem flestu stjórna á bak við tjöldin vilja sýna fólki sýndarveruleika, sem er settur í hásætið og innhaldsleysið vegsamað.
En ef við viljum lifa í Séð og heyrt heimi, held ég að það sé okkar vandamál, ekki blaðsins sem uppfyllir slíkar gerviþarfir fólks.
![]() |
Longoria hunsaði aðdáendur sína á brúðkaupsdaginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 8. júlí 2007
Sigur í boði Vodafone
Jæja, morgunumferð í Kaupþingmótinu í Lúx. Ég prófaði nýja og ekki svo mjög góða hugmynd gegn Þjóðverja, sem býr hérna á sama hóteli (og sama gangi) og ég. Strákur, sem greinilega er betri en stigin segja til um.
En það reyndi ekki á hana, því þegar ég var að teygja mig eftir c-peðinu, sem ætlaði áfram um tvo reiti í 10. leik, hringdi GSM sími hans og skv. reglum FIDE og mótsins tapaði hann þá skákinni. Þetta var semsagt hinn frægi VODAFONE gambítur. Leiðinlegt að vinna svona, en ég var feginn. Ég var of þreyttur og fúll eftir skákina í gær til að meika þetta núna og var frekar áhugalaus.
Hjörri (a.k.a.Humpy) var kominn upp með sömu stöðu og í gær, en með skiptum litum. Ég efa ekki að hann á eftir að kreista Adrian Hærri (Haerri) sannfærandi.
Robbi var með Robbastöðu, RB fékk á sig Shabalov árásina gegn sterkum IM, sem tapaði óvænt í gær. Héðinn fékk á sig einhvern gambít, en ég efa ekki að hann á eftir að rúlla mótherja sínum upp, enda miklu betri skákmaður. Hannes fékk gamlan kunninga frá EM og hefur svart. Þeir gerðu þá jafntefli, en strákurinn var þá nærri GM áfanga og er, skv. Hannesi, nokkuð góður.
En jæja, nú fær maður smá auka hvíld og get vonandi mætt ferskari í eftirmiðdagssumferðina en þessa. Og dinner með hinni fögru Fionu fyrir skákina hlýtur að hjálpa eitthvað. En áður en menn fara að hugsa eitthvað misjafnt, þá bauð íslenska liðið hér henni í mat, en hún hefur verið okkur afar hjálpleg og verður það vísast áfram. (Á neðri myndinni er Stefanova næst, en þessi með furðuhárið sigraði Hjörra í 1. umferð. Takið eftir hárgreiðslunni, ef svo skuli kalla. Við strákarnir höfðu svoldið gaman að þessu í Fugen í fyrrahaust, en þetta er ekki fyndið lengur!)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 8. júlí 2007
Aðeins frá Lux
Jæja gleymdi að nefna tvennt í gær.
Það urðu smá vandamál hjá Héðni. Hann hafði ekki skráð sig á skráningarsíðu mótsins, heldur verið í beinu sambandi við mótshaldara, sem gleymdu að skrá hann á keppendalistann, en Héðni misfórst að staðfesta sig formlega við skákstjóra í fyrradag, við komuna. Hann lenti því á neðsta borði og vann örugglega.
Hannes hafði lent í seinkun frá Prag og því misst af tengiflugi frá Zurich. Hann sýndi þó hörku og tók leigubíl alla leiðina frá Frankfurt til að komast á mótsstað í tíma. Hann vann einnig örugglega.
Nú, að myndunum. Við erum hér þrír með myndavélar, en enginn okkar mundi eftir snúrunni til að færa myndir úr vélinni í tölvu. Þrátt fyrir lúsaleit hér í bænum fundust ekki réttar snúrur hjá Grétari, en hann tók reyndar ranga snúru, sem virðist passa við mína myndavél, svo vænta má fleiri mynda frá mótinu fljótlega. Hér koma því nokkrar myndir frá heimasíðu mótsins og frá þeim, sem Grétar lét framkalla og setja á disk.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)