Þriðjudagur, 3. júlí 2007
FRAM

![]() |
Fram og FH unnu góða sigra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 3. júlí 2007
Pamela fertug?
Ja, amk innyflin og fæðingarvottorðið segir svo. En leyfum oss að cirka á restina:
1. Svalirnar: 2 ára
2. Varirnar: 4 ára. Þörf á endurnýjun fljótlega
3. Bakdyrnar: Lagfæring; 3 ára
4. Magi: Læbó og strekking, 1 árs
osfrv
Engin furða þótt Pamela virki ungleg. Flest það, sem fólk sér, beint eða óbeint, er tiltölulega nýlegt.
![]() |
Pamela Anderson fertug |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 3. júlí 2007
Ný hljómsveit Geirs Ólafssonar
heitir víst Furðufuglarnir. Samkvæmt óöruggum fréttum mun hljómsveitin gefa út lag í haust, en það er endurgerð eldra lags og heitir nú, í nýrri mynd: "Byrjaðu í dag að falsa".
En voðalega er Geir orðinn þreyttur gaur.
![]() |
Geir Ólafs hafnar ásökunum um falsað bréf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 3. júlí 2007
Uppreisnarmenn Al-Kæda að skipuleggja árásir?
Jæja, nú eru "uppreisnarmenn" (þetta er nýtt orð yfir terrorista) Al-Kaída komnir á stjá og berjast m.a. gegn yfirgangi vestrænna þjóða á Vesturlöndum, sem auðvitað eiga, skv. íslam, að taka upp íslamska trú og ganga á vegum Kóranins. Og það sem verra er, Vesturlandabúar þessir reka löggulið víða í hinum íslamska heimi, hernámslið í Írak, Afghanistan og víðar.
Al-Kaída rís upp gegn þessum yfirgangi Vesturveldanna í sjálfsvörn, semsagt, og ræðst gegn saklausum borgunum. Uppreisnarmenn þessir láta sér í léttu rúmi liggja, þótt þeirra eigið líf sé lagt á altarið. Þetta er heilagt stríð gegn Vesturlöndum, vestrænni menningu og þeim lífsgildum, sem vestrænir menn hafa jafnan í heiðri.
"Uppreisnarsamtökin" Hamas hafa samskonar stefnuskrá og skal því taka upp stjórnmálasamband við þau, amk að mati Norðmanna og íslenskra vinstri manna. En hvern skal senda sem sendifulltrúa Íslands til fjallgarðanna í Pakistan og Afghanistan, þar sem Talibanar og Al-Kæda hafast við?
Ég held að eini maðurinn, sem hafi víðtæka þekkingu á staðháttum þarna sé Ögmundur Jónasson. Ég held að það liggi beinast við, að skipa hann sendiherra í AlKædistans.
![]() |
Al-Qaeda skipuleggur stórbrotnar árásir í sumar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 3. júlí 2007
Byssumenn og séra byssumenn
Skemmtilegt þetta hjá Mogganum, hvað snertir fyrirsagnirnar. Í gær eða fyrradag drápu Ísraelar palestínskan "uppreisnarmann", eftir að hafa svarað skothríð. Í dag láta lífið 23 uppreisnarmenn, eftir að "uppreisnarmenn" ráðast á bandarískt herlið. En þeir drepast síðan inni í fréttinni sjálfri.
Hundruðir eða öllu heldur þúsundir manna láta lífið á Íslandi á hverju ári, en aðeir örfáir og stundum engir eru beinlínis drepnir. Á þessu er stór munur. En á hinn bóginn átta ég mig ekki á, hvers vegna Bandamenn "drápu" byssumenn þessa, þeir virðast hafa fallið í bardaga.
En Mogginn má auðvitað taka afstöðu í deilumálum þjóða, en það væri samt ágætt að fá opinberaða hina uppgefnu stefnu blaðsins, svo maður geti lesið fréttirnar með hana í huga.
En amk er misræmið furðulegt hjá Mogganum og ákveðinn ruglingur með hugtök í gangi.
![]() |
23 uppreisnarmenn létu lífið í Írak |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)