Þriðjudagur, 24. júlí 2007
Sykraðir eða sykurlausir gosdrykkir jafnslæmir?
Jújú, það vita flestir að diet drykkur eru í heildina ekki síður hættulegir en sykraðir, að öllu jöfnu.
En hvað ætli gerist hjá t.d. sykursjúku fólki sem drekkur 1 lítra af þessari sykurleðju, sem kallast COKE?
Þetta eru því alhæfingar um ákveðna þætti, eða heilt yfir litið að jafnaði, eða eitthvað. En fyrir sykursjúka er þetta tvennt ólíkt.
En auðvitað er hvorttveggja óhollt...bara mismikið fyrir ákveðna hópa.
![]() |
Sykurlausir gosdrykkir hafa sömu áhrif á heilsu fólks og sykraðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 24. júlí 2007
Þreytt.is
En samt, ég gæti ímyndað mér, að VG tapi nú einhverju fylgi á þessu, enda hópur þessi einna helst bendlaður við þann flokk og eiga einna mestan stuðning þar innanhúss.
Kannski eru þessi mótmæli ekki svo slæm!??
![]() |
Átta handteknir í Straumsvík og hlið opnuð á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 24. júlí 2007
Nýr alþjóðlegur meistari á leiðinni
Jæja, nú stefnir í, að við Íslendingar séum að fá nýjan alþjóðlegan meistara í skák. Þetta er allt að koma, en nú vantar bara herslumuninn að klára dæmið.
Sjá frétt á heimasíðu Taflfélags Reykjavíkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 24. júlí 2007
Merkileg grein í Washington Post
um íslam og hvort það þurfi nauðsynlega að vera bókstafstrúar eða oftúlkandi íslamskra kennisetninga.
http://www.washingtonpost.com/wp-dyn/content/article/2007/07/20/AR2007072001808_pf.html
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 24. júlí 2007
Mugabe - frábær síða
Ok, nú hefur Mugabe tekist að rústa einu gjöfulasta ríki Afríku og það aðeins á nokkrum árum. En nóg um það.
Ég vil benda fólki á að kíkja á Mugabe-síðuna svokölluðu! Hún kemur á óvart. Þetta er algjör snilld.
Mæli sérstaklega með að kjósa um Mugabe og kjósa þannig, að hann "suck bigtime". Þá koma upp með skemmtileg skilaboð!
![]() |
Stefnt að þjóðnýtingu í Simbabve |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 24. júlí 2007
Galdrastrákurinn Potter
Ég fagna því hérmeð í dag, að hafa komist undan því að lesa einn einasta stafkrók í bókunum um Harry Potter. Jafnframt hef ég ekki séð einn einasta glugga úr myndunum um þennan strák.
Ég veit nú ekki hvort þetta sé nokkuð sérstakt afrek, en ég er samt stoltur að hafa komist hjá því að bendlast þessum heimi Mr. Potters.
Mikið er ég feginn að nú fer þessu að ljúka. Tískuæði koma og fara, og ég reyni eins og ég get að missa af þeim. Að þessu sinni tókst það og það all bærilega.
Ég hef jafnframt komist hjá því að kolefnisjafna, en reyni í staðinn að kolvetnisjafna. Ég átti heldur ekki fótanuddtæki.
Ég skal þó viðurkenna, að ég eignaðist Soda Stream sem unglingur!
![]() |
Potter selst á methraða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)