Fífl!

Frekari orð eru í raun óþörf. Þetta hyski í Saving Iceland ætti að hunskast heim, og taka þessa íslensku taglhnýtinga sína með sér. Landhreinsun takk! That is how we save Iceland!
mbl.is Málningu hellt á skrifstofur Athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frá Obrenovac

Ok, er að taka til í myndasysteminu hjá mér. Datt í hug að lauma nokkrum fleiri myndum frá Serbíu, að þessu sinni frá Obrenovac. Þar hef ég tekið þátt í skákmóti tvisvar, 2005 og 2006. Þessi bær er úthverfi Belgrað, til norðvesturs, um það bil jafn stór og Reykjavík, fólksfjöldalega séð, en mun minni flatarmálslega séð og töluvert öðruvísi samansettur efnahagslega séð.

En gaman að vera þarna samt, svosem, og flest allt mjög ódýrt, þó helstu vörur hafi hækkað nokkuð á milli ára.


En ég lauma þrátt fyrir allt þetta nokkrum myndum:

12juli 10112juli 13212juli 149

 

Og fleiri:

12juli 12912juli 136


Á byltingarkaffihúsinu: Kastró, Kúba, Che og við strákarnir

12juli 102Ég var að fletta gömlum myndum, sem ég hafði einhvern veginn ekki sett inn í tölvuna fyrr en nýlega, nánar tiltekið í Lúx. Þar voru nokkrar myndir sem mér fannst við hæfi að lauma hingað inn.


Í nóvember 2006 fór ég með Róberti Harðarsyni Lagerman á skákmót í Serbíu, nánast tiltekið í Obrenovac, útborg Belgrað. Þar er tekin þessi mynd til vinstri, en hún er graffiti á vegg nærri Hótel Obrenovac.


Við laumuðumst síðan í bæinn, þ.e. til Belgrað, snemma að morgni einn daginn, m.a. í leit að farsíma og bara "til að skoða pleisið". Ég hafði reyndar skoðað það merkilegasta árið áður, þegar ég var þarna á ferð með núverandi Íslandsmeistara kvenna í skák, en að þessu sinni var tíminn naumur fyrir okkur strákana.


12juli 094En í miðborg Belgrað rákust við á fínt kaffihús, byltingarkaffihús! Það var í hliðargötu frá "Laugaveginum", hreint og fínt. Þar pöntuðum við okkur "standardinn", þ.e. kaffi og vatn "mit gas". Þetta kaffihús hét reyndar "Byltingarkaffihúsið" á spænskan máta, enda var kúbanska byltingin einskonar þema þess, eins og sjá má m.a. á myndinni hér til hægri, sem btw er tekin fyrir 15 kílóum síðan.


Þetta var hinn merkilegasti staður. Við hliðina á borðinu okkar var "herkista", þ.e. einhverskonar trékassi, sem hefur kannski verið notaður til að flytja vopn, eða amk góð 12juli 095eftirlíking slíks apparats. Þarna voru fánar, myndir af byltingarleiðtogum og margt fleira.


Jú, jú, kaffið var ágætt, salernin hrein (ekki of algengt þarna suðurfrá; þarna voru ekki einu sinni alltaf Svíar, heldur holur í gólfið!12juli 096 Jæja, maður hefur nú séð það áður svosem) og góð þjónusta. Og Robbi snýr öfugt á myndinni, en ég nenni ekki að breytenni.


En jæja, datt í hug að lauma þessu inn, svona að gamni bara.

 


Vísindaárangur

Ég frétti af því nýlega, að íslenskur vísindamaður hefði fundið lausnina á yatzy-spilinu og afgreitt öll vandamál þess með umfangsmiklum stærðfræðilegum útreikningum.


Ergo: jatsí er afgreitt.


mbl.is Íslenskur vísindamaður tekur þátt í að leysa gátuna um eitt vinsælasta borðspil heims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

200 kíló af

Shaky, ég sem var ánægður með að missa 2 kíló þegar ég snyrti á mér bringuhárin.
mbl.is Þyngsti maður heims léttist um 200 kg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. júlí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband