Húkkað far í Lúx

201Jæja, erfiður dagur. Strákarnir fóru í Lúxembourg City, en ég sat heima og stúderaði fyrir Kasparov. Þeir ætluðu svo að sækja mig kl. 17.15 í síðasta lagi, en rétt yfir fimm hringdi Robbi í mig. Þeir voru þá fastir í ótrúlegri umferðarteppu og reiknaði GPS systemið hans Grétars það út, að þeir myndu, miðað við óbreyttar aðstæður, ná á svæðið 17.45, þ.e. kortéri eftir að skákin átti að hefjast.

Mér var semsagt ráðlagt, að taka leigara. En hótelgaurinn hringdi á leigara, en enginn laus fyrr en eftir dúk og disk. Ég lagði því af stað á puttanum, en ég var varla komin af stað, þegar bíll stoppaði og voila. Þá var það Belginn sem ég væóleitaði við skákborðið í gær og pabbi hans. Þar fékk ég solid far og mátti prísa mig sælann.

En aftur að Kasparov. Hann tefldi allan f...... í databeisnum, svo ég varð að circa hann út. Og auðvitað var þetta allt til einskis. Hann tók mann út í helstu teoríum í Paulsen og tefldi sama og ég tefldi gegn Hannesi Hlífari í einvígi okkar á Skákþingi Íslands síðast. Ég nennti ekki að bíða eftir að hann kæmi á mig og fór af stað á hann og gaf honum færi á hróksfórn sem hefði leitt til hörku sóknar hjá honum, en hann tefldi eins og hann ætlaði í þá leið. EN þar eyddi ég 15 mín til einskis því 190hann svaraði samstundis og hafnaði fórninni. Hefur greinilega treyst útreikningum minum, enda stóðst þessi fórn ekki, ekki frekar en fórnin hans gegn Robba í 2. umferð. En þetta var snjallt hjá honum, því nú fékk hann mjög þægilega stöðu og tel ég, að þar hafi ég haft stöðulega tapað. Amk taldi ég víst, að dagar mínir væru taldir en ákvað að sprikla á önglinum. Ég fórnaði síðan peðinu, sem hélt stöðunni saman en náði að virkja mennina og plata hann svoldið. Hann fann einu leiðina til að halda taflinu gangandi, en þegar við sömdum þá hefði ég frekar getað haldið áfram en hann, en staðan var samt teorískt jafntefli. Hann var ekki sáttur kallinn, en svona er lífið.

Hjörvar og Róbert sömdu jafntefli. Hannes líka með hvítu. Rúnar Berg vann glæsilega, eftir glæsilegt riddarahopp. Héðinn tapaði.

Ég fæ Hannes á morgun, en Robbi fær Fionu okkar. Og Héðinn fær Kasparov með hvítu. Spái ég, að þar fái Hvít-rússneski stórmeistarinn einn eitt áfallið gegn Íslendingunum í þessu móti.

 


Kaupþingsmótið í Lúx

179Jæja, só far só gúdd.

Fréttir frá mótinu eru á www.skak.is og svo vitaskuld á þessu bloggi: http://hvala.blog.is

 

til vinstri: Hjörvar að stúdera aðeins á tölvu undirritaðs í "stúderingahorninu", meðan sá gamli tekur einvígi við Svíann.


mbl.is Sex íslenskir skákmenn tefla í Lúxemborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Réttur dagsins

Þari með villisveppasósu, frönskum og diet Sprite. 1.990.-

Fæst einnig undir nafninu: McWeed á næsta McDonalds stað.

 

En spurning hvort ekki væri hægt að selja hingað sérstakar afsláttarferðir fyrir Skota: Fá að tjalda í fjörunni og borða eins mikinn þara og þeir geta týnt.

En talandi um Skota. Merkilegt samtal hérna í gær hjá Skotunum tveimur.

Skoti 1: Hehe, ég hljóp heim á hótelið af skákstað, beint á eftir rútunni, og sparaði mér 3 evrur.

Skoti 2: Slakur ertu, ég hljóp heim á eftir leigubílnum og sparaði mér 18 evrur.


mbl.is Þara landað í fyrsta sinn á Bíldudal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðir félagar

"Þrír aðstoðarmenn fylgja honum yfir sundið í bát, þeir Ingþór Bjarnason sálfræðingur, Stefán Karl Sævarsson verkfræðingur og Heimir Örn Sveinsson tölvunarfræðingur."

Mér finnst þetta svolítið skondið. Hér er greinilega um vini kappans að ræða, en ég fatta ekki hvers vegna starfsheiti þeirra koma málinu við.

Svipað eins og ef ég ætlaði að heyja maraþonskákir a la Krummi, og mér til aðstoðar væru fjórir verslunarmenn og fimm ruslakallar. Það væri annað, ef til aðstoðar væru læknir, hjúkka og næringarfræðingur.

En jæja, breytir svosem engu. Þarna eru á ferðinni góðir félagar, greinilega. Og traustir vinir geta gert kraftaverk.


mbl.is Reynir að synda yfir Ermarsund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Morkinn morgunn í Lúx

203Ég ætla að byrja á því að segja það sem ég hef gleymt undanfarið. Leiðin til Differdange.

Og þessi er sérstaklega tileinkum Jóhanni Hirti og öðrum "bæernissinnuðum" Garðbæingum, en við ökum á skákstað förum við framhjá þorpi, sem heitir næstum því Garðabær og reyndar fór svo að Rúnar Berg las "Garðabær" á skiltinu og hefur sá bær verið kallaður svo síðan. En það þarf ekki að taka fram, að við ökum beint framhjá. Þar er ekkert að sjá, eins og í vinabænum heima á Íslandi.

Og meira af nöfnum. Á skilti við bæjarmörk Bascherage stendur nafn bæjarins, þetta franska, en síðan orð, sem mér skilst að sé hið þýska nafn hans. En það er BIFF, sem er gælunafn á vel kunnum íslenskum skákmanni. Og rétt hjá hótelinu er stórt skilti: "Biff Car Wash". Jæja, svo Helgi er kominn í bílaþvottinn??

En jæja, Dagurinn í gær!

Ég vaknaði á sama tíma og venjulega hér, eða um sjöleytið og tölti niður í morgunmat. Aldrei þessu vant gat ég borðað eitthvað og var það góðs viti. Greinilega höfðu tvær máltíðir af hráu nautakjöti tekið sinn toll, en orðið að lúta í lægra haldi fyrir Svíanum að lokum. Robbi og Rúnar fóru í gönguferðir út í sveit. Robbi er búnað að kenna Rúnari þetta, en hann féll fyrir þessu göngusystemi þegar við vorum í Serbíu í fyrrahaust, en sjálfur varð ég hooked af þessu, þegar ég var á móti með Ágústi Sindra 2002, en sjálfur hefur hann vísast lært þetta af Margeiri, MP-bankamanni.

201Síðan reyndi ég að stúdera aðeins fyrir IM Michiels, og gekk það svosem vel, meðan maður fékk frið fyrir msn-istum og öðrum truflunum (sem eru vissulega kærkomnar í hófi!). Síðan tóku við 2 klst stúderingar með Hjörra og síðan meiri stúderingar. Síðan um kl. 16 var ég sóttur. Við ætluðum í mat niðrí Differdange. Af einhverjum ástæðum loka helstu matsölustaðir hér í bæ kl 14.00 og opna aftur kl. 18.00. Þetta system hentar okkur frekar illa.

En við föttuðum ekki annað. Í fyrsta lagi er omögulegt að fá bílastæði og í öðru lagi voru næstum allir matsölustaðir í 20.000 manna bænum Differdange lokaðir á mánudögum. Þetta er semsagt dagurinn sem Lúxarar fasta eða elda sjálfir.

Við fundum loksins pizzastað sem var opinn. Þar pantaði ég mér "bara eitthvað", og fékk síðan pizzu með bacon og spæleggi! Svoleiðis hef ég aldrei séð áður og hef þó unnið á pizzastað. Þar var einn annar gestur, sem leit út eins og Mr. Bean, gekk eins og hann var jafn undarlegur í háttum og sá enski. Þetta var svoldið skondið.

196En ég var svosem ekki svangur, frekar en venjulega, en ég varð að pína þetta ofaní mig. Hafði ekkert borðað nema súpu 1x síðan á föstudag og var orðinn frekar sloj. En þetta tókst. Um leið lagaðist hausverkurinn aðeins -- ég fatta ekki hvers vegna svoleiðis heimsóknir koma oftar á mig þegar ég er erlendis en heima.


Við mættum bræðrunum HS eldri og HS yngri á skákstað. Við ræðum jafnan aðeins við Hannes fyrir og eftir skákir, en hittum hann annars lítið. En af Héðni höfum við engar spurnir. Hann bara er þarna og hefur engin samskipti við okkur hina -  gjóir kannski augunum til okkar þegar við mætumst á leið til eða frá Svíanum. Og síðan er hann bara horfinn, þegar skák er lokið, áður en einhver okkar getur þó ekki sé nema kastað á hann kveðju.

Þeir HSarnir búa á Threeland ****, í næsta þorpi við okkur hina. En mér skilst þó, að það hótel sé ekkert betra en Hotel Carpini okkar, í þægindum talið. Ég skoðaði herbergin þar á netinu og sýnist mér mitt herbergi vera stærra en þeirra og búið amk sömu þægindum. Og síðan er frábær restaurant á okkar hóteli. En þeirra herbergi kosta helmingi meira (en þeir fá vísast heldrimannaafslátt). (Já, gleymdi; það stóð á pöntunarsíðunni, að það væri internet á hótelum Hannesar/ Héðins og Róberts /Rúnars, en ekki okkar. En síðan kom í ljós, að netið þar er selt dýrum dómum, en hins vegar er gott net hjá okkur, og ókeypis, og er inni á herbergjunum!!! Snilld!)

 

En jæja, skákirnar gengu jafnan vel hjá okkur Mörlandanum eins og sagði frá í gærkvöldi. Og ekki var pörunin upplífgandi: Robbi og Hjörri tefla saman og ég fæ Kasparov í hefndarhug gegn Íslendingum.

En staðan hjá okkur Íslendingunum er, að Héðinn, Hannes og ég erum í 4.-21. sæti með 3/4, Robbi og Hjörri hafa 2/4, Rúnar Berg 1.5/4.

Veðrið passaði líka. Þegar heitt er heima á Íslandi er tiltölulega kalt hér í Lúx (og í Prag, skv. Hannesi). Hér var þá semsagt frekar kalt í gær og aftur í dag.


Bloggfærslur 10. júlí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband