Mánudagur, 4. júní 2007
Blaðburðarfólk í stórhættu!
Sprengja sprakk í Berút"
Svona er þetta núna.Moggamenn munu vísast laga þetta. En það er greinilega hættulegt að bera út póst eða blöð. Aldrei að vita nema einhver hafi sent bréfsprengju.
![]() |
Sprengja sprakk í Berút |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 4. júní 2007
Wilson Muuga: Frábær lausn!
Algjör snilld. Skipið sækir síðan íslamistana, sem líbanski herinn er að berja á, flytur þá hingað til Íslands, strandar á Meðallandsfjöru um miðja nóttu, íslamistarnir stökkva í land með græjurnar og stofna íslamskt ríki í Skaftárhreppi með Kirkjubæjarklaustur sem höfuðborg.
Voða gaman.
![]() |
Wilson Muuga á leið til Líbanons |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 4. júní 2007
Er Poll í Samfylkingunni?
![]() |
Áreiti áhorfenda knúði Poll til að hætta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 4. júní 2007
Landsliðið
Þetta landslið okkar er orðið til háborinnar skammar. Jafntefli við Liectenstein heima!
Við virðumst hvorki eiga góða leikmenn né góða þjálfara.
Hættum þessu bara og förum að spila yatzy!
![]() |
Þjálfarar óhressir með áhugaleysi landsliðsmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 4. júní 2007
Vefjagigt.is
Ég vil minna á vefinn www.vefjagigt.is, sem nýlega er kominn í loftið. Við, sem höfum lengi þjáðst af þessum sjúkdómi, fögnum því, að loksins séu helstu upplýsingar um þetta mál komnar á vefinn.
Þar er einkennum vefjagigtar m.a. líst eftirfarandi:
Vefjagigt er langvinnur sjúkdómur eða heilkenni sem samanstendur af fjölmörgum einkennum frá hinum ýmsum líffærakerfum. Helstu einkennin eru langvinnir og útbreiddir verkir frá stoðkerfi, almennur stirðleiki, yfirþyrmandi þreyta og svefntruflanir. Önnur algeng einkenni eru órólegur ristill, ofurnæm þvagblaðra, fótaóeirð, kuldanæmi, dauðir fingur (e. Raynaud´s phenomenon), dofi í útlimum, bjúgur, kraftminnkun, úthaldsleysi, minnisleysi, einbeitingarskortur og depurð.
Allt þetta get ég skrifað undir. Og allt þetta hef ég upplifað reglulega. Eiginlega er ég að upplifa allt þetta núna, nema e.t.v. ristildæmið, sem ég hef verið laus við í sl. 2-3 vikur.
Ég greindist með þetta fyrir um 10 árum síðan. Fyrst mætti maður fordómum og nánast hlátri: uppasjúkdómur hvað?
En smám saman hefur fólk verið að átta sig á, að þessi sjúkdómur er ekki ímyndun, heldur raunveruleiki lífsins.
Ég fagna þessum vef og vil þakka Sigrúnu Baldursdóttur, sem hefur verið helsti vefagiftarsérfræðingurinn eins lengi og ég man eftir, fyrir að hafa komið þessu í loftið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 4. júní 2007
Mogginn og fíkiefnin!
"Fíkiefni fundust á ökumanni á Akranesi"
Ég spyr: hvað er þetta, sem þeir kalla "fíkiefni"? :)
![]() |
Fíkniefni fundust á ökumanni á Akranesi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)