Þriðjudagur, 12. júní 2007
Jæja, þá er það byrjað fyrir alvöru
Undirritaður hefur á undanförnum mánuðum haldið því fram, að fyrr eða síðar, líklega fyrr, myndi allt fara í háaloft á Gasa milli Hamas og Fatah. Að vísu hélt að þetta myndi springa í loft upp fyrr, en þetta hefur reyndar verið shaky síðustu vikur og mánuði.
En jæja. Það er ömurlegt að horfa upp á þetta. Óbreyttir borgarar falla líka í svona löguðu, þeir verða í vegi bardagamannnanna, sem skirrast ekki við, frekar nú en áður, að fórna eigin fólki, óbreyttum borgurum, til að fullnægja eigin hatri og valdagræðgi. En nú er þeim ekki att fram gegn Ísraelum, heldur lenda fyrir byssukúlum frænda sinna, vina, kunningja, nágranna.
Öll stríð eru ógeðsleg. Borgarastríð þeirra verst.
![]() |
Hamas tekur yfir höfuðstöðvar öryggissveitar Fatah |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 12. júní 2007
Verslun í miðborginni
Nú jæja, kemur það á óvart, þótt fimmtungur Reykvíkinga versli aldrei í miðbænum. Ég er víst einn þeirra.
Það kemur mér á óvart, hversu margir versla þar þó. Ég sé ekki að miðborgin hafi neitt upp á bjóða, sem ekki er hægt að redda með auðveldari hætti (t.d. betri bílastæði) í úthverfunum.
Það er hreinlega of mikið vesen fyrir þá, sem ekki búa þarna í grenndinni, að fara í bæinn i verslunarleiðangur, og óvíst hvort þeir græði nokkuð á því.
Sjálfur versla ég aðeins í Kringlunni og Skeifunni og á því svæði. Þar er allt sem ég þarf.
Hef eiginlega ekki komið í "bæinn" mjög lengi, nema í öðrum erindum, og þá aðeins örsjaldan.
Mig grunar, að margir úr "úthverfunum" hafi svipaða sögu að segja.
![]() |
Rúmlega 40% höfuðborgarbúa sækja nær aldrei verslun í miðborg Reykjavíkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 12. júní 2007
Ingibjörg til Gasa?
Og með henni fara nokkrir íslenskir friðargæsluliðar sem lífverðir? Ástæðan: jújú, gera stjórnmálasamband við Hamas! Já, eða stilla til friðs milli Hamas og Fatah, og Palestínumanna og Ísraela, eða ég veit ekki hvað. Og hvernig myndi hún heilsa heiðursvörðum Hamas? Með "sieg Heil" kveðjunni, sem þeir hafa tekið upp. Fussumsvei.
Ég held að vinstri menn hér og víðar séu algjörlega búnir að missa glóruna. Þetta er svo heimskulegt, að það hálfa væri fyndið.
Það á ekki að verðlauna þessa ofbeldisstjórn (sem btw ræðir ekki yfir sjálfstæðu ríki og hótar að afmá ríkið við hliðina og kæfa íbúana í blóði) með stjórnmálasambandi. Þá yrði vegur Íslands á alþjóðavettvangi minni -- ríki með glóru myndu halda að hér væri eitthvað bananalýðveldi. Það gæti reyndar keypt atkvæði múslímskra ríkja í SÞ, en fyrr má nú aldeilis fyrr vera.
Hvernig væri að taka upp stjórnmálasamband við ETA, þeir eru öllu friðsamari og hafa barist lengur en Hamas fyrir málstað sínum?
Og málstaður ETA er, að stofna sjálfstætt ríki. Málstaður Hamas er að eyða ríkinu við hliðina og stofna öfgaíslamsríki, sem yrði nýtt Taliban-Afghanistan.
Við gætum líka tekið upp stjórnmálasamband við Fath al Islam í Líbanon, jú, eða bara Hizb Allah! Síðan gætum við hafið viðræður við tétneska skæruliða, útlagastjórn Talibana, osfrv.
Fussumsvei. Vinstri menn á Íslandi og víðar gjörsamlega að týna glórunni.
![]() |
Abbas sakar Hamas um að reyna að ná stjórn á Gasa með valdi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 12. júní 2007
Eiður til West Ham?
Gæti orðið ágætis endastöð fyrir Smárann. Sé hann ekki fyrir mér fara til Tyrklands eða annarra svoleiðis landa.
Og hver vill borga gott fyrir Eið Smára? Hann hefur amk ekki hækkað í verði hjá Barcelona.
![]() |
Eiður Smári til sölu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 12. júní 2007
París orðin trúuð...eða?
Jæja, allt er nú hægt. Nú er Paris Hilton byrjuð að tala um Guð.
En hvað gera menn ekki, til að reyna að lagfæra ástandið, þegar þeir sitja i fangelsi? En óvíst er reyndar, hversu Guð verður lengi á vörum Parisar, þegar hún kemur út úr djeilinu.
Það er erfitt að átta sig á, hvort Paris sé að nota Guð sem varadekk þarna, eða einskonar fjarvistarsönnun, eða hvort hún virkilega meinar það, að láta loksins gott af sér leiða, þegar hún kemur úr prísundinni.
Ef þetta er einlægur ásetningur Parisar, verður maður að taka ofan. Gott ef stelpan hefur lært sína lexíu á þessu máli.
![]() |
París segist ætla að hætta heimskupörum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 12. júní 2007
Væl
Michael Moore hefur lítið gert annað hin síðustu ár en að áreita Bandaríkjastjórn. Síðan svarar stjórnin fyrir sig, að hans mati, og fer fram á skýringar við, að hann hafi heimsótt land, sem er í banni hjá stjórnvöldum. Og þá verður Moore fúll. Svona haga smákrakkar sér.
Vissulega er þetta tómt bull hjá Könunum að halda Kúbu áfram á svarta listanum. En meðan það er Könum ólöglegt að ferðast til Kúbu, verða menn að hlýta lögunum. Sama hver á í hlut.
Michael Moore ætti bara að halda kjafti þetta skiptið og veita umbeðnar upplýsingar. Lög eru lög, þótt þau séu vitlaus.
![]() |
Moore sakar Bandaríkjastjórn um áreitni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)