Fimmtudagur, 17. maí 2007
Sætasta stelpan á ballinu?

![]() |
Formlegar stjórnarmyndunarviðræður hefjast væntanlega á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 17. maí 2007
Ný stjórn framundan?

![]() |
Vaxandi vantrú á framhald stjórnarsamstarfs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 17. maí 2007
Kolbeinn til Arsenal?
Maður hlýtur að fagna þessu. Unglingaþjálfunin er til fyrirmyndar hjá Arsenal. Þarna getur efnilegur leikmaður eins og Kolbeinn orðið að góðum leikmanni.
Fjölmargir Íslendingar hafa farið til Arsenal: Albert Guðmundsson, Sigurður Jónsson, Valur Fannar og Stefán Gíslasynir, og Ólafur Ingi Skúlason. Og nú er röðin etv komin að Kolbeini.
Áfram Arsenal!
![]() |
Arsenal vill fá Kolbein |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 17. maí 2007
Guðm. Magnússon líka hættur að blogga
Jæja, Guðmundur Magnússon hættur líka, Sigmar Guðmunds í gær.
Jæja, nú hafa Steingrímur Sævarr og Guðm. Magnússon ofurbloggarar báðir hætt á Moggabloggi við að vera ráðnir í vinnu hjá 365 veldinu. En af hverju hætti Sigmar? Er hann kannski á leiðinni yfir í Ísland í dag? Ok, áður en einhverjir fara að búa til samsæriskenningu, þá var hann bara kominn með bloggleiða.
Ég skil það svosem, ég fæ svoleiðis líka á stundum, sérstaklega maður fær yfir sig skammir og dónaskap fyrir að segja frá staðreyndum málsins, eins og t.d. hér í gær, þegar dónaleg kerling fór all in á mig fyrir að dirfast að segja frá því að Kolbrún Halldórsdóttir hefði fengið margar útstrikanir. Ég væri að ljúgja þessu, ég væri auli, osfrv. Áður hafði vinstrigræn kerling hafnað þessu líka og talið bull, án þess að geta hrakið þetta. Á slíkum stundum fær maður bloggleiða, sérstaklega þegar maður fær á sig svona skot, eins og frá þeirri fyrrnefndu. Nú bíð ég eftir að hún sendi mér afsökunarbeiðni, en ég býst þó alveg eins við að hún þegi þetta niður eða reyni að snúa sér út úr þessu með einhverjum hætti.
En jæja, uppstigningardagur. Þetta verður enginn frídagur hjá mér. Þarf að klára textavinnslu fyrir glænýja heimasíðu, dálítið umfangsmikla, sem verður "lönsuð" á morgun; verð að kenna non-stop frá því síðla dags og fram á kvöld, og er ekki enn orðinn góður af ristilbólgunni, sem hefur verið að gera mann brjálaðan síðan á laugardagskvöld.
Nú mega einhverjir hugsa hlýtt til mín...ekki veitir af.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)