Miðvikudagur, 18. apríl 2007
Verður þetta faraldur?
Í síðustu viku, eða þarsíðustu, var gerð samskonar árás á kristna bókabúð á Gasa og þar áður í Pakistan, ef ég man rétt.
Ég trúi ekki á svona tilviljanir. Þetta hlýtur að vera tengt einhvern veginn.
En hvað myndu múslimar segja og gera, ef gerð yrði samskonar árás á íslamskra bókabúð t.d. í London?
![]() |
Blóðbað í kristnu útgáfufyrirtæki í Tyrklandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 18. apríl 2007
Ætli Þorsteinn hitti nokkuð Kasparov hjá Hr. Pútín?
Spyr sá sem ekki veit.
Kannski ætti hann að biðja um að fá að hitta Kasparov?
![]() |
Þorsteini Inga Sigfússyni veitt eina æðsta viðurkenning rússneska lýðveldisins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 18. apríl 2007
OK, ég skil þetta ekki - 2. hluti
Svo segir í frétt mbl.is
LA Clippers vann Dallas Mavericks, 103:99, í bandarísku NBA körfuboltadeildinni í nótt og á enn möguleika á sæti í úrslitakeppninni þegar einn leikur er eftir. LA Lakers þarf að vinna New Orleans Hornets í kvöld og Golden State Warriors þarf að tapa fyrir Portland Trail Blazers til að Lakers nái 8. sætinu.
Hvort er það Clippers, sem á möguleika á sæti í úrslitakeppninni, eða Lakers?
Menn geta etv horft framhjá stöðugum stafsetningarvillum mbl.is-manna, en lesendur þurfa amk að vita um hvað greinin snýst!
![]() |
NBA: Clippers á enn von á úrslitasæti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 18. apríl 2007
Stútar undir stýri
Jæja, heyrði sögu áðan, hér á BSÍ, frá leigubílstjóra, sem hafði frétteinhvers staðar, að mjög furðuleg þróun ætti sér stað í hópi stúta undir stýri. Um daginn kom frétt, þar sem sagði, að 9 manns hefðu verið teknir undir stýri og verið sendir í blóðprufu.
Það fylgdi reyndar ekki hinni opinberu sögu í fjölmiðlum, að þessir níu hafi flokkast svo:
2 innfæddir Íslendingar
1 Tælendingur
6 Pólverjar.
Pólverjarnir ku hafa gefið þá skýringu, að þeir hafi ekki verið of drukknir og báru við reglum í sínu heimalandi, þar sem a.m.k. venja væri að í lagi sé að keyra heim eftir að hafa drukkið ákveðið mikið magn áfengis.
Nú þekki ég ekki hvaða reglur gildi í Póllandi, en greinilegt er, að þar eru önnur viðmið en hér, hvort sem þau eru samkvæmt ströngustu lögum eða ekki.
Spurning hvort ekki þurfi að útbúa fræðsluefni á pólsku fyrir Polverjana okkar, þar sem hinar íslensku reglur eru kynntar?
![]() |
Eftir einn ei aki neinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)