Föstudagur, 2. mars 2007
Hættuleg gylliboð á netinu!!! Varúð!!!
Já, ég veit um nokkur.
Þau hættulegustu eru á eftirfarandi síðum:
Úff, ég vara netnotendur eindregið við þessum síðum og þeim boðskap, sem þar er fluttur!
![]() |
Lögreglan ítrekar aðvaranir sínar vegna gylliboða á netinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 2. mars 2007
Hún fær þá varla boð á Bessastaði, eða...?

![]() |
Grísir skelfdu Viktoríu Beckham |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 2. mars 2007
Dóni! Þú ert sjálfur dóni!
Já, þegiðu Móri!
Alveg rétt hjá Ferguson. Bara að láta þennan leiðindaskarf heyra það!
En þetta fer að minna mann á Kryddsíldina forðum þar sem skemmtilegt samtal átti sér stað milli tveggja fyrrverandi formanna stjórnmálaflokka:
"Þú ert dóni!"
"Þú ert sjálfur dóni!"
Ég er víst dóni líka.
![]() |
Ferguson: Mourinho ætti að halda sér saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 2. mars 2007
Mikill höfðingi látinn
Ég þekkti Pétur ekkert. Hitti hann aldrei. En þeir sem lásu (eða þó ekki nema flettu ævisögu hans) verða aldrei samir á eftir. Ég missti reyndar af Kompásviðtalinu, sem Stefán Friðrik greinir frá. Það mun hafa verið ógleymanlegt.
Við, sem urðum fyrir barðinu á erfiðum sjúkleik í barnæsku og höfum ekki borið þess fullar bætur síðan, höfum hér glæsilega fyrirmynd um mann, sem gekk í gegnum ótrúlega þjáningu án þess að láta bugast. Og í ljósi erfiðleika hans, virðist margt það, sem margir hafa vælt yfir og afsakað sig með, vera hjóm eitt.
Enda lít ég á, að séra Pétur í Laufási hafi, þegar á heildina er litið, verið meðal merkustu Íslendinga 20. aldar.
![]() |
Andlát: Pétur Þórarinsson |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 2. mars 2007
Hann ætti heldur að skamma barnaskólakennarann sinn!
Kennslan hefur greinilega mistekist hrapallega.
P.S. úr því nafnlitlir aðilar vilja misskilja þetta, þá þarf ég víst að þýða þetta.
a) maður þessi kenndi radarvarasölumanni um, að hafa verið tekinn á of miklum hraða.
Niðurstaða: maðurinn ekki með öllum mjalla í rökhugsun sinni.
b) það hlýtur þá að hafa orsakast af lélegri kennslu, með sömu röksemd, en ekki gáfnafari sjálfs drengsins eða leti hans í skóla
Þ.e. maðurinn gat ekki tekið ábyrgð, heldur kenndi öðrum um eigin mistök. En ætli barnaskólakennari hans hafi kannski skrifað athugasemd hér áðan og ekki þorað að kvitta með fullu nafni?
![]() |
Vill fá endurgreiddan radarvarann vegna hraðaksturssektar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Aulahúmor | Breytt s.d. kl. 12:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 2. mars 2007
Hugmynd fyrir Fréttablaðið?
Hvernig væri, ef Fréttablaðið myndi nú t.d. hætta að flytja fréttir og "skýringar" af málefnum eigenda sinna?
Eða að Mogginn myndi hætta að flytja fréttir af erlendum slúðursíðum?
osfrv.
Væri gaman að sjá hvað úr slíku kæmi.
![]() |
AP hætti fréttaflutningi af Paris Hilton |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 2. mars 2007
Vill VG kannski banna netið?
![]() |
Skilja vegna netfíknar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 2. mars 2007
Föstudagspistill
Jæja, enn ein vikan að líða í gleymskunnar haf. Og að venju hefur ýmislegt verið að gerast.
Pólítísk umræða vikunnar mótaðist af tvennu, aðallega. Sl. helgi héldu Vinstri grænar landsfund sinn og á meðan á honum stóð, kom ofurfemínistinn Steingrímur J. Sigfússon, "forkona" flokksins, í Silfur Egils og hótaði þar netlöggu og allskonar forræðishyggju ofaní þjóðina. Hlaut hann mikla gagnrýni fyrir og ekki síður á Alþingi, þar sem hann neitaði að svara ítrekuðum spurningum framsóknarmanna um, hvers vegna hann hafi skipt um skoðanir í umhverfismálum og flokkur hans væri reikandi á því sviði? Þar tapaði VG e.t.v. nokkrum prósentum til viðbótar.
Gallup/Capacent birti skoðanakönnun í gær, mjög vandaða. Hún er niðurstaða hringinga í febrúarmánuði öllum, svo að segja. Þar vinnur VG góðan sigur, en ég efast um að hann haldi, því flestir tilsvarendur höfðu svarað fyrir landsfundinn og Stóra hræsnismálið á Alþingi. Það var líka áður en VG skilgreindi sig sem kvennalista og tók upp hinn gamla listabókstaf Kvennalistans, V.
Samfylkingin lendir enn í vandræðum, en við blasir mikið fylgistap. Það kemur ekki á óvart, en formaður flokksins hefur valdið flokknum skaða nærri því í hvert skipti sem umræddur, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hefur opnað munninn. Og í vikunni kom enn eitt málið, þegar í ljós koma að hún hafði fleygt nestor flokksins, Jóni Baldna Hannibalssyni, á dyr. Og c.a. í kjölfarið yfirgaf Jakob Frímann Magnússon, eðalkrati úr JB-arminum, flokkinn, en í staðinn kom nöldurkerling, sem fékk ekki gott sæti á borgarstjórnarlista VG og hrökklaðist smám saman í Samfó. Hún virðist a.m.k. passa betur við ISG en Jakob, sem kom mér þægilega á óvart í Silfrinu um daginn.
Nú, og sem betur fer eru Frjálslyndir að detta niður í bjórstyrk og kom í ljós hjá Gallup, að lang flestir kjósendur flokksins byggja það val sitt á innflytjendastefnu hans. Án þeirrar stefnu væri flokkurinn fylgislaus, nú þegar gamla gengið er að miklu leyti horfið á braut með Margréti Sverris, sem hefur upp á síðkastið aðallega afrekað það, að níðast á trúfélögum utan kirkjunnar, og minnir mig að formaður Frjálslynda hafi nú orðið að biðja einhver þeirra afsökunar á ummælum hennar. Ég sé þó ekki að hún geti farið í framboð með þetta eina mál (þó FF geti það með útlendingamálið), því ég efast um að kjósendur telji það nægjanlega mikilvægt til að byggja heilan flokk á. Sumir hafa væntanlega horn í síðu hvítasunnusafnaða, en varla ristir það mjög djúpt.
Flokkaskipting virðist núorðið fara eftir "með eða á móti" skilgreiningum, í staðinn fyrir vinstri og hægri og hefur sú árátta einkum sýkt stjórnarandstöðuna.
- Frjálslyndir: á móti frjálsu flæði útlendinga
- Margrétarflokkur: á móti "sértrúarsöfnuðum"
- Ómarsflokkur: á móti virkjunum og álverum.
- Vinstri grænar: á móti öllu.
- Samfylkingin: á móti Davíð og Sjálfstæðisflokknum, en einnig á móti því sem er óvinsælt hjá þjóðinni hverju sinni.
Um þetta verður víst kosið í vor.
Vikan hefur annars verið nokkuð strembin hjá mér. Ég byrjaði á nýju verkefni c.a. um síðustu helgi og hef haft meira en nóg að gera. Maður stekkur þar út í djúpu laugina og þarf að fjalla á fagmannlegan hátt um efni og hugtök, sem ég vissi voðalega lítið um hvað snerust. En ég held að þetta hafi gengið bærilega.
Í vikunni lauk fordæmisgefandi máli, sem háð var fyrir skákstiganefnd FIDE um, hvort ég skyldi tapa skákstigum á skák, sem aldrei var tefld. Ég sagði ætíð, og hélt því sterklega fram, að lög FIDE væru skýr og skildi ég ekkert í fáránlegum rökræðum sumra, sem virtust ekki skilja lögin og töldu að skákina ætti að reikna, burtséð frá reglum alþjóða skáksambandsins. Ég hafði auðvitað "sigur" að lokum, enda greinilega í "rétti" skv. lögum FIDE. En þetta var samt leiðinlegt mál, en ég hafði tapað toppbaráttuskák í Meistaramóti Hellis þegar GSM sími minn hringdi þegar ég var kominn á skákstað, en skákin ekki hafin. Skv. reglum FIDE tapast skák, þegar svo ber við. En þetta hlýtur að vera stysta skák sögunnar. Heimsmet!
Í kvöld hefst seinni hluti Íslandsmóts skákfélaga, eins og Gunnar Björnsson ræðir hér á blogginu. Hellismenn hans standa vel að vígi eftir glæsilega frammistöðu í fyrri hlutanum í haust. Við TR erum í þriðja sæti og eigum litla von á að verja titilinn. Við stilltum upp afar veiku liði í haust, þar sem vantaði marga sterka skákmenn í liðið, þám Þröst Þórhallsson stórmeistara, Héðin Steingrímsson alþjóðlegan meistara, Helga Áss Grétarsson stórmeistara, Arnar Gunnarsson alþjóðlegan meistara (tefldi reyndar eina skák) og fleiri. En nú mætum við galvaskir til leiks með EM liðið okkar á sex efstu borðum (Þröstur Þórhallsson, Stefán Kristjánsson, Héðinn Steingrímsson, Arnar Gunnarsson, Jón Viktor Gunnarsson, Snorri G. Bergsson) ásamt sterkustu unglingum landsins, þeim Degi Arngrímssyni og Guðmundi Kjartanssyni. Enn vantar þó aðeins upp á, að TR stilli upp sínu sterkasta liði. Við mætum Helli einmitt í kvöld, og gæti sú viðureign haft mikil áhrif á það, hvort Hellir eða málaliðasveit Vestmannaeyinga sigri. Þótt Hellir hafi gott forskot, á félagið þrjú næstu lið eftir, þ.e. liðin í 2, 3, og 4. sæti, en eru búnir með "botninn". Þeir koma nokkuð sigurvissir til leiks með c.a. 2 erlenda málaliða, en óvíst hvort það dugi gegn fjölþjóðaliði Eyjamanna.
Jæja, nú þarf maður að fara að drífa sig í vinnuna. Mikið að gera á þessum föstudegi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 2. mars 2007
Vér mótmælum allir
Ég er einn þeirra, sem er ekki allskostar hrifinn af götumótmælum. Ég held ég hafi aðeins einu sinni tekið þátt í slíkum mótmælum, en það var þegar ég var í MH í gamla daga og við MHingar gengum niðrí Menntamálaráðuneyti í mótmælaskyni og héldum þar fund. Þetta var c.a. 1988-9. Man ekki akkúrat hvenær.
Maður getur svosem skilið, þegar t.d. kennarar mótmæla, eldri borgarar eða aðrir, sem telja sig þola órétt. "Gjör rétt, þol ei órétt" var mottó syndikalistaleiðtogans og ritstjórans Chr. Christensens. Lærisveinn hans, Ólafur Friðriksson ritstjóri Abl. og bæjarfulltrúi tók þetta mottó síðan upp frá honum, en síðan komst það í "eigu" sjálfstæðismanna.
En að standa fyrir svona uppþotum og látum og ekki út af stærra máli en einni borgarbyggingu, sem skipti um "eigendur" (eða öllu heldur leigjendur, ef ég hef skilið þetta rétt) fyrir nokkrum árum og hinir nýju vilja gjarnan komast þar fyrir.
En a.m.k. lýsi ég frati á þessa mótmælendur. Tilgangurinn helgar alls ekki meðalið að þessu sinni.
![]() |
Mótmælendur taka stefnuna á Ráðhústorgið í Kaupmannahöfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)